Morgunblaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 40
40 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010 ✝ Kristín BergljótÖrnólfsdóttir fæddist á Kaldá í Önundarfirði 27. ágúst 1915. Hún lést á Dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykja- vík 24. febrúar sl. Foreldrar hennar voru Margrét Rey- naldsdóttir, f. 31. desember 1894, d. 10. desember 1966, og Örnólfur Níels Hálfdánarson, f. 19. ágúst 1888, d. 11. september 1960. Alsystkini henn- ar voru Guðrún, Örnólfur, Oddur, Halldóra og Jóna. Samfeðra hálf- bróðir hennar var Hálfdán. Kristín giftist 24. september 1938 Guðmundi Magnússyni, f. 10. mars 1912, d. 4. mars 1984, frá Hóli í Bolungarvík. Börn þeirra eru: 1) Helga, f. 5. maí 1940, gift- ist Ragnari Péturssyni, þau skildu. Börn þeirra eru: a) Guð- mundur, sambýliskona Helga Jónsdóttir, börn þeirra eru Ragn- ar Högni, Ebba Kristín, Jón Egill og Ólafur Tryggvi. b) Kritstinn, bogasyni en hann er látinn. Sonur þeirra er a) Heimir Örn, sambýlis- kona Þórunn Karólína Péturs- dóttir, dóttir þeirra er Eldlilja Kaja. 5) Örnólfur, f. 18. júlí 1947, núverandi sambýliskona hans er Svanborg Magnúsdóttir, áður giftur Málfríði Þ. Sigurðardóttur, þau skildu. Börn hans og Mál- fríðar eru: a) Kristín Bergljót, gift Helga R. Sigmundssyni, börn þeirra eru Sigmundur Ragnar, Málfríður Arna og Kjartan Daní- el. b) Magnús Pálmi, giftur Önnu Björgu Petersen, börn þeirra eru Matthías Ævar, Benedikt Ernir, Kolbeinn Helgi og Sólveig Bríet. c) Martha Sigríður, gift Steinþóri Bjarna Kristjánssyni, börn þeirra eru Sigurður Oddur og Guðrún Hrafnhildur. Barn hrennar frá fyrra sambandi er Unnur Eyrún. Börn Steinþórs frá fyrra hjóna- bandi eru Arnheiður og Jóhanna María. d) Örnólfur Þórir, sam- býliskona Sandra Steinþórsdóttir. Kristín ólst upp í Skálavík fram á unglingsár er hún fór til Reykjavíkur og vann þar fyrir sér um tíma. Hún giftist 1938 og bjó hún eftir það á Hóli í Bolungarvík eða þar til hún varð ekkja. Þá flutti hún til Reykjavíkur og dvaldi þar til dauðadags. Útför Kristínar fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík í dag, 6. mars 2010, og hefst athöfnin kl. 14. núverandi sambýlis- kona Inga Dóra Kjartansdóttir, áður giftur Katrínu Sveinsdóttur, þau skildu. Börn hans og Katrínar eru Ívar Þór og Telma Dögg. Barn hans frá fyrra sambandi er Sig- urður Freyr, sem á soninn Þóri Karl. c) Arnar Þór, giftur Vilborgu Jónsdóttur. Eignuðust þau þrjú börn, Jón Örn sem lést í fæðingu, Völu Magréti og Guðmund Örn. 2) Margrét Fann- ey, f. 17. júlí 1941, gift Karli G. Smith, börn þeirra eru: a) Auður, gift Jóhanni Arnarsyni, börn þeirra eru Oktavía, Karólína og Arnaldur. b) Soffía Björk, sonur hennar er Salvar Karl. 3) Bárður, f. 24. mars 1943, giftur Svölu Hermannsdóttur, börn þeirra eru: a) Hermann. b) Birkir, giftur Guð- laugu Björnsdóttur, börn þeirra eru Bárður Örn, Björn Hólm og Freyja. 4) Karitas Magný, f. 15. ágúst 1945, giftist Hólmari Finn- Kristín Bergljót Örnólfsdóttir, Stína á Hóli eða bara amma eins og ég kallaði hana alltaf, er farin frá okkur. Loksins fékk hún hvíld- ina löngu sem hún hefði sjálfsagt þegið þó nokkru fyrr. Ég á margar ljúfar og góðar minningar um ömmu og afa á Hóli og allar góðu stundirnar með þeim sem voru nú ekki fáar. Amma var í þá daga húsfreyjan á bænum og sá um öll heimilis- störfin með miklum myndarskap. Þegar kaffið eða maturinn var tilbúinn og afi var ekki mættur, þá fór hún út á hlað og kallaði „Mummi hú“, skömmu seinna skil- aði afi sér í eldhúsið og settist á sinn stað. Eftir matartímana fór amma með afgangana út að fjósi á ákveðin stað og kallaði á krumma, bauð honum að koma að borða og alltaf hvarf maturinn. Ekki skipti máli hjá ömmu hvort það væri ósköp venjulegur kaffitími klukkan þrjú eða kaffiboð fyrir góða gesti, alltaf var mikið og gott með kaffinu. Ég sakna mikið baksturs- ins hennar ömmu, það getur eng- inn gert þetta eins, ekki einu sinni mamma. Amma var fín frú og lét nú ekki sjá sig ótilhafða. Þegar hún fór í bæjarferð með afa, þá var skipt um föt, hárið lagað, vara- lit og smá-púðri skellt á sig. Svo var hatturinn settur upp og að lok- um farið í kápuna, þá var hún amma mín tilbúin að fara af stað. Amma var uppalin á Breiðabóli í Skálavík. Skálavík var ömmu og afa mjög kær. Þar byggði afi sum- arbústað fyrir þau sem kallaður er Hraun. Á sumrin eyddu þau mikl- um tíma í Hrauni og áttu þarna góðar stundir. Ég fór mikið með þeim í Skálavíkina enda fannst mér gott að vera þar. Á fallegum sumarkvöldum eftir að ég kom inn var oft spilaður rakki við ljós frá gamla steinolíulampanum og rauð- um sólargeislum frá sólarlaginu sem skein inn um eldhúsgluggann, þetta var góður tími sem ég met mikils. Amma hélt til Kaupmannahafn- ar í kringum 1936 og sinnti þar ýmsum störfum í tvö ár áður en hún gerðist ráðsett frú á Hóli. Það var ansi gaman að hlusta á ömmu þegar hún var að gera eitthvað og var í sínum heimi, þá talaði hún við sjálfa sig á dönsku. Þessar dönskuslettur heyrðust fram á síð- ustu daga ævi hennar. Eftir að afi dó fluttist amma til Reykjavíkur í Efstalandið. Heim- sóknir til ömmu urðu þá reglulegri og að sjálfsögðu var bakkelsið á sínum stað. Amma bjó í Efstaland- inu í 10 ár en fluttist þá á Hrafn- istu þar sem hún dvaldi til síðasta dags. Síðustu árin hjá ömmu urðu æ erfiðari þar sem hugurinn og minnið var farið að gefa sig. Mig langar að enda á smá-frá- sögn af henni ömmu sem Gréta frænka mín sagði mér. Einn dag- inn þegar Gréta kom í heimsókn til ömmu á Hrafnistu, þá spurði amma hana hvort hún hafi nokkuð séð hann Guðmund, hann ætlaði nefnilega að koma að sækja hana, þau væru að fara í ferðalag saman. Þetta sagði amma 3 vikum áður en hún dó. Nú hefur hann afi loksins komið og sótt hana ömmu og þau eru lögð af stað saman í nýtt ferðalag. Hvíl í friði, elsku amma, takk fyrir allt, skilaðu kveðju til afa. Arnar Þór. Kristín Bergljót Örnólfsdóttir Allar minningar á einum stað. ÍS L E N S K A S IA .I S M O R 48 70 7 01 /1 0 –– Meira fyrir lesendur Minningar er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 og til dagsins í dag. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarþel vegna andláts og útfarar systur minnar og frænku okkar, ÞÓRUNNAR GUÐJÓNSDÓTTUR frá Tungu, Kirkjuhvoli, Hvolsvelli. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilisins Kirkjuhvols fyrir góða og hlýlega umönnun Þórunnar síðustu árin. Sigurlaug Guðjónsdóttir og systkinabörnin. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÞORSTEINS JÓNSSONAR, Sogavegi 170, Reykjavík. Hulda Svansdóttir, Ágústa Margrét Þorsteinsdóttir, Gauti Ástþórsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Karl G. Kristinsson, Sigurbjörg Sigurjónsdóttir, Hjalti J. Guðmundsson og barnabörn. ✝ Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, SVANDÍSAR HARALDSDÓTTUR frá Stóra-Lambhaga, Brekkubyggð 7, Garðabæ. Einnig þökkum við starfsfólki á deild 11 E Landspítalans við Hringbraut sem annaðist hana í veikindum hennar. Sólveig Jónsdóttir, Ólafur Ragnar Jónsson, Haraldur Jónsson, Hulda Ingibjörg Benediktsdóttir, Sigurður Sverrir Jónsson, María Lúísa Kristjánsdóttir, Arnbjörg Jónsdóttir, Kristján B. Kristinsson, barnabörn og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SIGURLÍNU SIGURÐARDÓTTUR, Kirkjuvegi 7, Ólafsfirði. Sérstakar þakkir til allra á Hornbrekku og annarra vina sem reyndust henni vel. Hannes Kristmundsson, Sigurbjörg Gísladóttir, Elley Kristmundsdóttir, Sigurjón Kristjánsson, Guðlaug Kristmundsdóttir, Úlf Bergmann, Birna Sveinbjörnsdóttir og ömmubörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug í okkar garð og fyrir margvíslegan virðingarvott sýndan minningu ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNU BERGÞÓRU HANNESDÓTTUR frá Hæli í Vestmannaeyjum, Reynigrund 81, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir kærleiksríka umönnun. Steinar Vilberg Árnason, Guðrún Norðfjörð, Þyri Kap Árnadóttir, Trausti Leósson, Jón Atli Árnason, Salvör Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNU EINARSDÓTTUR frá Leirulækjarseli, Arnarkletti 12, Borgarnesi. Börn, tengdabörn, ömmu- og langömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.