Ný saga - 01.01.1997, Page 9

Ný saga - 01.01.1997, Page 9
í læri hjá Komintern Mynd 6. Bréf Hendriks Ottóssonar til Zinovievs forseta Kominterns 1920. dvalið samtímis í Moskvu fyrr eða síðar held- ur en veturinn 1931-32, en þá munu þeir hafa verið níu talsins. Norðurlandadeild Vesturhá- skólans var lögð niður 1933 og voru Norður- landabúar eftir það sendir á Lenínskólann, að undanskildum Benjamín Eiríkssyni sem var tekinn í framhaldsdeild Vesturháskólans fyrir þýskumælandi nemendur í árslok 1935.23 Á Lenínskólanum voru að jafnaði tveir til þrír íslendingar til 1937. Flestir þeirra íslendinga sem fóru á flokks- skóla til Moskvu luku einni námsbraut og hurfu svo heim til starfa fyrir flokkinn. En ekki allir. Eggert Þorbjarnarson sem var í þjálfun á Lenínskólanum 1931-33 var boðað- ur þangað til starfa árið 1934. Honum var ætl- að að aðstoða deildarstjóra Norðurlanda- deildar, Allan Walleníus, sem hafði miklar mætur á Eggert, og jafnframt átti hann að kenna við deildina. Á starfstíma sínum vann Eggert með Walleníusi og með Arne Munch- Petersen.24 Eggert komst áfallalaust heim aft- ur haustið 1937. Þá var hins vegar búið að fangelsa báða yfirmenn hans, þá Walleníus og Munch-Petersen. Walleníus mun hafa látist 1942. Nýlega hefur komið fram að Arne Munch-Petersen lést af illri meðferð í fangelsi í Moskvu í nóvember 1940.25 í bókun um Egg- ert til M.B. Tsjernomordiks, þáverandi starfs- mannastjóra Kominterns, sagði að Eggert hefði stundað störf sín af samviskusemi og ekki væri ástæða til annars en að veita honum brottfararleyfi.26 Tsjernomordik kembdi ekki hærurnar heldur, búið var að taka hann af lífi áður en árið var liðið.27 Fleiri dæmi eru um að íslenskum flokksskólanemendum hafi boðist að vera lengur eystra og starfa fyrir Kom- intern en Eggert mun vera sá eini sem settist að í Moskvu og varð fastur starfsmaður Al- þjóðasambandsins. Annar íslendingur, Stefán Pétursson, fór til Moskvu haustið 1933 vegna deilna í Komm- únistaflokki íslands og var við framhaldsdeild Lenínskólans.28 Stefán hafði verið í forystu fyrir þeim hópi manna í Kommúnistaflokki íslands sem vildu ekki útiloka allt samstarf við sósíaldemókrata. Á 2. flokksþingi KFÍ urðu hatrammar deilur um afstöðu flokksins til sósíaldemókrata og um túlkun á boðskap Kominterns í því efni. Á þessum árum börð- 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.