Ný saga - 01.01.1997, Síða 29

Ný saga - 01.01.1997, Síða 29
Landnámið eftir landnám um tilvikum að skerða afraksturinn. Þannig hefur orðið erfiðara að lifa af landsins gæðum meðan bústofninn var sáralítill. 3. Hins vegar hafa fyrstu landnemarnir eft- ir fáa áratugi verið komnir með bústofn sem var yfrið stór, bæði miðað við neysluþörf heimilanna og vinnuafl þeirra til heyskapar og skepnuhirðingar. Með einhverjum hætti hljóta nýkomnir nágrannar að hafa haft að- gang að þessum bústofni til viðbótar þeim sem þeir fluttu með sér. Kannski með því að kaupa sér gripi, kannski þannig að hluti ný- komna fólksins réðist í vinnu á búum þeirra sem fyrir voru, eða í þriðja lagi að aðkomu- fólkið gerðist skjólstæðingar fyrri landnáms- manna og fengi á þeirra vegum bæði land og bústofn. Samspil fyrrnefndra atriða hefur mikið far- ið eftir því hve hratt landið byggðist. Ef land- námsfjölskyldur komu tugum saman á hverju ári, það er ef landnámið gerðist í eins konar „þjóðflutningastíl“ sem vissulega þekkisl í sögu germana, gat farið að muna verulega um fyrri atriðin, minna úrval af landi og þrengri aðgang að hlunnindum, áður en þorri bænda var orðinn aflögufær um búfé, og má þá gera ráð fyrir að aðdráttarafl íslands hafi þorrið nokkuð um sinn. Hafi landnám hins vegar gengið hægar í byrjun, hefur búfjárfjölgunin haft sín áhrif tiltölulega fyrr. Hvort heldur var, þá hefur sá tími komið að ekki var lengur raunhæft að gera út land- námsleiðangra til íslands eins og það væri óbyggt mönnum. Nýbyggjar hlulu að ganga út frá því meira og meira, að tækifæri sín í nýja landinu tengdust byggðinni sem þar væri fyr- ir. Meðal annars - og það markar þáttaskilin gagnvart því landnámshugtaki sem ég beiti hér - varð ástæðulaust að flytja með sér bú- stofn til lands sem þegar hafði hann yfirfljót- anlegan. Jú, maður tók kannski með sér kálf undan eftirlætiskúnni, svona til að viðhalda stofninum; eða lambhrút af forustukyni sem ekki mátti deyja út; eða geithafurinn sem maður hafði nú einu sinni helgað vættinni í bæjarfjallinu og gat eiginlega ekki skilið eftir. Eitthvað svona, en ekki þann stofn sem ætti að duga heimilinu til frambúðar; það var ein- faldlega óþarfi. Mynd 4. Titilblað Landnámabókar í útgáfu frá árinu 1688. Landnám „eftir landnám“? Þar með var „landnáminu“ lokið - þannig séð. En það er ákaflega ólíklegt að á þeim tímamótum hafi dregið úr innflytjenda- straumi lil landsins. Það hafði ekki orðið erf- iðara að koma sér fyrir á íslandi við það að búfé fjölgaði í landinu, heldur einmitt auð- veldara - hvílíkur munur að þurfa ekki leng- ur að baslast yfir hafið á fljótandi húsdýra- garði, Örkinni hans Nóa í vasabroti. Hvenær var þessum mörkum náð? Smám saman, í þeim skilningi að elstu landnámin fóru kannski að draga til sín búfjárlausa inn- flytjendur - frændur og vini, keypta þræla eða eitthvað þar á milli - á sama tíma og enn voru gerðir út sjálfbærir leiðangrar til landnáms í öðrum héruðum. En svo hefur byggðin náð því marki að verða nokkurn veginn samfelld um meginhéruð landsins, með kynnum manna á milli, viðskiptum og fréttaflutningi. Þá voru það ekki bara einstök landnám sem höfðu búfé aflögu og gátu tekið við innflytj- endum, heldur ísland í heild, sem samfélag og hagkerfi. Að sönnu ekki markaðshagkerfi í nútíma- skilningi, en þó sprottið af menningu sem við- urkenndi verslun og viðskipti, bæði með vör- Nýbyggjar hlutu að ganga út frá því meira og meira, að tæki- færi sín í nýja landinu tengdust byggðinni sem þar væri fyrir 27
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.