Ný saga - 01.01.1997, Síða 50

Ný saga - 01.01.1997, Síða 50
Viðtal við Arthur Marwick ARTHUR MARWICK THE N A T U R E T h i r (I E d i l i o n ... má jafnvel segja að nú sé litið á mig sem einn helsta andstæðing þeirra leg nauðsyn. í öðru lagi held ég því fram að allir sagnfræðingar, á hvaða sviði sem þeir eru, þurfi að hafa á valdi sínu ákveðna færni, aðferðir og reglur til að rannsaka frumheim- ildir. Það sem ég held að fólk sjái við þessa bók er að hún er vafningalaus, skýr og látlaus og þess vegna hefur hún orðið svo vinsæl. Pótt þú ræðir um hlutlœgni í sagnfræði í síðustu útgáfu Nature of History er þar lítið fjallað um póstmódernismann sem svo mjög hefur verið í tísku á síðustu tíu árum. Hvað veldur? Ástæðan er í fyrsta lagi sú að í Nature of History vildi ég ekki víkja af leið og fjalla um flókin mál heldur halda mig við tilgang og að- ferðir sagnfræðinnar. En það er rétt að ein- mitt um þetta leyti voru póstmódernistarnir farnir að vega að sagnfræðingunum. Ég vildi ró og spekt og á meðan póstmódernistar fengust einkum við listasögu og bókmennta- fræði fannst mér ekki brýnt að blanda mér í leikinn. En síðar fór ég að skrifa gegn þeim og í framhaldi af því kom ég af stað umræðu á vegum Open University við Hayden White, einn þekktasta fulltrúa póstmódernista. Fyr- irlestur minn birtist aukinn og endurbættur í Journal of Contemporary History í janúar 1995 og Hayden White svaraði í aprílhefti sama tímarits. Upp frá því hef ég tekið mik- inn þátt í skoðanaskiptunum við póstmódern- ista og má jafnvel segja að nú sé litið á mig sem einn helsta andstæðing þeirra. Pegar ég endurskoðaði Nature of History á níunda áratugnum voru önnur mikilvægari viðfangsefni mér ofar í huga. Ég hafði þróað með mér nýjar hugmyndir um meðferð heim- ilda, auk þess vildi ég fjalla nánar um söguleg- ar staðreyndir og hvernig ætti að skrifa um sagnfræði. Póstmódernismi skipti ekki miklu máli á þessum árum, hann var flestum stúd- entum framandi og varðaði ekki vinnu þeirra. Petta gerbreyttist á fáum árum og eftir að hafa borið hugmyndir mínar á torg í tímaril- um og fyrirlestrum get ég fullvissað þig um að ég mun fjalla nánar um þetta í fjórðu útgáfu bókarinnar. Segðu mér meira um hvar þig greinir á við E.H. Carr. I Nature of History vitna ég í Carr á tveim stöðum. í fyrra skiptið varðandi fáránlegt dæmi hans um hvað sé söguleg staðreynd. Pað er á þá lund að maður sem seldi pipar- kökur var barinn í þorpinu Stalybridge í Wa- les árið 1850. Carr getur þess að annar frægur Cambridgesagnfræðingur, George Kitson Clark, fjalli um þetta atvik. Síðan spyr Carr: Er þetta söguleg staðreynd eða ekki? Hann svarar spurningunni með því að þetta atvik sé svipað því þegar maður sækir um inngöngu í klúbb. Búið er að mæla með honum en eftir er að greiða atkvæði um hvort hann fær inn- göngu í klúbbinn eða ekki. Ef atvikið sem Clark vekur máls á er talið gott og gilt af öðr- um sagnfræðingum og ratar inn í bækur þeirra þá verði það að sögulegri staðreynd. Ég tel að þessi útlistun Carrs sé gersamlega út í hött. Það sem sagnfræðingurinn hlýtur að spyrja um varðandi þetta atvik er hvort heimildir séu til um það, og ef svo er hvort heimildirn- ar sýni fram á tilvist þess - ekki hitt hvort ein- hverjir aðrir hafi getið atviksins. Enn hæpnari er þó gagnrýni Carrs á þá sagnfræðinga sem „knékrjúpa fyrir skjölun- um“, eins og hann orðar það. Hann gagnrýn-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.