Ný saga - 01.01.1997, Síða 63

Ný saga - 01.01.1997, Síða 63
Guði til þægðar eða höfðingjum í hag? húsbændum sínum. En hafi kirkjubændur bú- ist við skjótfengnum gróða af tíundinni, hefur sú von þeirra brugðist. Elsta heimild um upphæð tíundar er senni- lega frá 1232. Pað ár hét Magnús Gissurarson Skálholtsbiskup því fyrir sína hönd og eftir- manna sinna að greiða helming eins fjórðungs tíundar sinnar til vígslufarar erkibiskupsefnis og útlausnar pallíums, en svo nefndist emb- ættistákn hans.29 Upphæðin nam 24 hundruð- um á landsvísu, og hefur biskupstíund þá ver- ið 192 hundruð (kýrverð).30 Par sem heildar- upphæð tíundar skiptist í fjóra jafna hluta, hljóta kirkjutíund og preststíund að hafa ver- ið hvor um sig sömu upphæðar. Nálægt alda- mótunum 1200 hafði fyrirrennari Magnúsar, Páll Jónsson (1195-1211), látið telja hve marga presta þörf væri fyrir í biskupsdæminu, og reyndust þeir vera 290, en kirkjurnar 220 sem þeir skyldu þjóna.31 Hér var trúlega átt við alkirkjur, þar sem messuskylda var hvern löghelgan dag. Ef tíundinni, 192 hundruðum, er jafnað niður á kirkjurnar, koma 105 álnir (um 0,9 kýrverð) í hlut hverrar. I reynd var þetta ekki alveg svona einfalt. Biskupar áttu það til að breyta tíundarum- dæmum, færa tíund frá einni kirkju til annarr- ar, stundum til að refsa kirkjubónda fyrir van- rækslu hans eða til að styrkja fátækari kirkju, og hálfkirkjur (þar sem messuskylda var að- eins annan hvern helgan dag) fengu yfirleitt tíund heimamanna en ekki sóknarkirkjan. Marktækara er að athuga preststíundina. Ef henni er deilt jafnt niður, fær hver prestur 79 álnir (0,7 kýrverð). Petta var ekki nema brot af tíðakaupi presta sem þeir áttu að fá fyrir fulla þjónustu.32 í heimildum frá dögum Magnúsar biskups kemur fram að prestslaun voru þá fjórar merkur eða 192 álnir sem voru rúmlega hálft annað kýrverð.33 í kristinna laga þætti Grágásar, sem að stofni til er frá fyrri hluta 12. aldar, er gert ráð fyrir enn hærri launum til presta, allt að tólf mörkum.34 Þá hefur að líkindum verið ætlast til að þeir þjónuðu við fleiri en eina alkirkju í héraði, þó tæplega fleiri en tvær því að oftar en tvisvar mátti prestur ekki messa sama dag. Nokkrum áratugum síðar, í lok 13. aldar, var biskupstíundin í Skálholtsumdæmi, og þá um leið kirkju- og preststíund, komin upp í Mynd 5. Kristshöfuð frá Ufsum i Svarfaðardal i rómönskum stil. Liklega frá 11. öld. 280 hundruð.35 Enn var tíundin samt fjarri því að duga fyrir útgjöldum. Frá lokum 14. aldar er til mikið safn mál- daga um eignir og tekjur kirkna í Skálholts- biskupsdæmi.36 Við lauslega athugun á úrtaki safnsins kemur í ljós að tíundartekjur hverrar kirkju hafa að jafnaði verið um 70 álnir og undantekning að þær færu yl'ir 120 álnir (eitt kýrverð).37 Af þessu má sjá að hvorki kirkju- né preststíund var höfðingjum nein sérstök auðsuppspretta. Ef ekki hefðu komið til aðr- ar tekjur eins og arður af stofnfé og gjafir, hefðu margar kirkjur verið þungur baggi á bændum. Á 15. öld drógust tíundartekjurnar saman bæði vegna versnandi árferðis en ekki síður sökum þess að æ fleiri jarðir komust í eigu kirkjulegra stofnana og urðu við það skatt- frjálsar. Að lokum sá Skálholtsbiskup sig knú- inn til að gefa út þau fyrirmæli á prestastefnu í júní 1479 að framvegis skyldi greiða i'ulla tí- und af þeim jörðum sem komist hefðu undir dómkirkjuna og hverja aðra kirkju og klaust- En hafi kirkju- bændur búist við skjótfengn- um gróða af tíundinni, hefur sú von þeirra brugðist 61
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.