Ný saga - 01.01.1997, Síða 74

Ný saga - 01.01.1997, Síða 74
Jón Viðar Sigurðsson kvað það illa gert við svo göfuga kennimenn og að frændur þeirra myndu ekki þola þetta. Páll vildi engu að síður hætta á það. Síðan fóru þeir bræður fjölmennir suður til Breiða- fjarðar og komu að næturlagi til Helgafells. Þeir gengu inn í skálann og var Hallgerður „tekin upp ór hvílu sinni og borin út“. Þetta spurðist víða „ok þótti mönnum sýndr í slíku mikill ósómi.“ Runólfur, Ólafur og bróðir hans, goðinn Páll Sölvason í Reykholti, ráku raunir sínar fyrir Jóni Loftssyni á Alþingi sumarið eftir og sögðu honum hvaða „ósæmð“ þeim hefði ver- ið gerð og báðu hann liðsinnis. Jón „kvað víst í slíku sýnast mikinn ósóma ok ágang“, og vegna þess að hann var „allmikill vinr“ Ólafs og Páls Sölvasona og frændi Runólfs var hann skyldugur að veita þeim stuðning í þessu máli.5 Vatnsfirðingar og Hallgerður voru einnig á Alþingi þetta sumar: „Váru þá sem mestar virðingar Jóns, ok var þangat skotit öllum stórmálum, sem hann var.“ Eftir að Jón hafði tekið að sér málið Iét hann „kalla“ Hallgerði fyrir sig, og tjáði henni hversu illa samði, ok bað hana leggja hug sinn frá þessu óráði. „Hefir með oss,“ seg- ir hann, „lengi vel verit, ok vilda ek, at þú sæmðir við bónda þinn. En þótt þér þykki mannamunr, þá er þó miklu meiri munr um ábyrgð þá, er á er. Ok mun þetta ráð illa út seljast, ok samir þér betr, at þú ráðir þik frá sjálfviljandi, en nauðskilnaðr verði, því at eigi mun þér lengi nytja af auðit. En ekki mun ek at sinni þröngva þér um þetta, en segi ek þér, hvat á mun liggja. En ef þú virðir orð mín ok ferr heim með bónda þín- um at þínum vilja, þá skal þat fram ganga. En því mun ek þér heita, ef þú þarft nökk- uru sinni mína ásjá, at ek skal þér heill til liðveizlu, ef þú gerir nú eftir mínum vilja. En ef þú vill þetta eigi, þá mun ek þér aldri ásjá veita.“ Hallgerður svarar: „Þat mun ek kjósa, at þú sér mér í vinarhúsi.“ Síðan lagði Jón til, at Óláfr prestr tæki við konu sinni, og var síðan sætzt á málit.6 Sveinn Sturluson flutti Valgerði, dóttur Hall- gerðar, í Hvamm. Sturlu saga segir einungis að af því hafi gerst „miklar ósættir". Hall- gerðursótli Jón Loftsson að þessu máli. Hann stefndi Sveini og komu öll málin undir Jón „ok réð hann einn sem hann vildi ok skipaði svá, at flestum líkaði vel.“7 Guðmundar saga dýra greinir frá því að um 1190 hafi Þorgerður nokkur Þorgeirsdótt- ir búið á Brattavelli í Þorvaldsdal. Hún hefur sennilega verið ekkja því Helgi prestur í Ar- skógum var henni innan handar með búrekst- urinn. Þorgerður þurfti að gera upp stofu sína og fékk til þess Ingimund smið. Eftir skamma dvöl Ingimundar á Brattavöllum var það mælt að „hjal væri á með“ honum og Þor- gerði, og af frásögninni má ráða að hann hafi farið að búa með henni. Astir þeirra urðu skammvinnar, honum entist ekki „gæfa til“ að elska hana því hann varð ástfanginn af Ás- gerði, sem var á vist á Kálfskinni, og heim- sótti hana iðulega. Þorgerði mislíkaði þetta og stökk því oft ofan í Árskóg til Helga prests. Einu sinni sem oftar þegar Ingimund- ur fór að sækja hana neitaði hún að hverfa á braut með honum. Helgi prestur studdi mál hennar og sagði að hún réði því sjálf hvort hún gisti í Árskógi eður ei. Þetta mislíkaði Ingimundi og drap hann því Helga. Eftir drápið flúði Ingimundur til Hóla og bað biskup ásjár. Brandur biskup taldi hann þess verðan að vera drepinn og neitaði að veita honum skriftir. Engu að síður aumkað- ist Brandur yfir Ingimund og sendi hann til Sumarliða Ásmundarsonar á Tjörn í Svarfað- ardal. Hann var frændi Ingimundar. Helgi prestur var frændi goðans Þorvarðar Þorgeirssonar og þingmaöur goðans Önundar Þorkelssonar. Þeir fengu sinn manninn hvor til að standa fyrir búi Þorgerðar og skyldu þeir „veiða" Ingimund ef þeir gætu. Ingi- mundur var hjá frænda sínum til vors, en þá fór hann að Kálfskinni að hitta Ásgerði og hafði hana á „brott“ með sér. Menn Þorvarð- ar og Önundar urðu þessa varir og fóru og drápu Ingimund, og hefndu þannig Helga prests." Árið 1198 kom goðinn Guðmundur dýri til Öxnahóls og hafði stuðningsmann Þorgríms alikarls, Björn Steinmóðarson prest, og fylgi- konu hans, Þórunni Önundardóttur, „í brott með sér“ heim til Bakka. Sama kvöld kom goðinn og bandamaður Guðmundar, Kol- beinn Tumason, til Bakka því þeir óttuðust 72
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.