Siglfirðingur - 07.04.1945, Blaðsíða 1
[ Siglfirðingur
|: Blað Sjálfstæðismaima í I;
Siglufirði.
Ábyrgðarmaður:
JÓN JÓHANNESSON I
Sigluf jarðarprentsmiðja
14. tbl. Laugardaginn 7. apríl 1945
18. árgangur.
Stíflugarður Skeiðsfossvirkjunarinnar
Þverskurður af aðrennslispípunni.
út í ystu æsar, alla þá möguleika,
sem það býður Siglfirðingum. Það
þarf að modernisera bakaríin, taka
kolaofna með öllu þeirra ryki og
skít, og fá rafmagnsofna í staðinn,
það þarf að koma rafmagnselda-
vélum í hvert einasta eldhús í
bænum, og þvottavélum í hvert
þvottahús, og ef vel ætti að vera,
ætti öll húsahitun að vera með raf-
magni.
Möguleikarnir til aukinna þæg-
Aðrennslispípa frá stíflu að stöðuvatni
1 tilefni af því, að rafmagnið frá
Skeiðsfossvirkjuninni er nú þegar
komið til bæjarins, og að nú má
búast við því, að þau miklu skil-
yrði, til aukinnar atvinnu, og meiri
og meiri þæginda, sem stöðugt
fylgja nægu rafmagni, fari að
sjázt í framkvæmdum, — þá snéri
blaðið sér til bæjarstjórans,
Ó. Hertervig, og óskaði eftir því,
að fá hjá honum upplýsingar um
virkjunina.
Bæjarstjóri segir að nú sé búið
að keyra vélamar við Skeiðsfoss
til reynslu í fullar þrjár vikur, og
og hafi þær reynst að öllu, svo sem
vonir stóðu til. Þær framleiði nú
1500—1800 hestafla orku, en muni
géta framleitt allt að 2300 hestöfl,
eftir að stíflugarðurinn hafi verið
hækkaður um sex metra, en það
verði gert í sumar.
Eftir að búið er að koma hinni
vélasamstæðunni fyrir er reiknað
með að hestaflatala virkjunarinn-
ar verði alls ca. 6000 hestöfl.
Aðrennslispípan, sem er hið
mesta mannvirki, 650 metra löng
og 2,10 m. í þvermál, er byggð
fyrir að flytja nægilegt vatnsmagn
fyrir báðar samstæðurnar. Hún
er úr steinsteypu, og sézt kafli af
henni á mynd hér í blaðinu, ásamt
byggingarmeisturunum, Sveini Ás-
mundssyni og Gísla Þorsteinssyni,
sem höfðu verkið með höndum.
Leiðslurnar frá stöðinni við
Skeiðsfoss hingað til Siglufjarðar
hafa reynst ágætlega. Þær eru
22,8 km. að lengd og var fullklárað
að leggja þær í haust.
Rafmagnsverkfræðingarnir, þeir
Eiríkur Briem og Jakob Guðjohns-
sen hafa verið hér undanfarið, við
að eftiriíta vélar og leiðslukerfi.
★
Það er öllum Siglfirðingum mik-
ið ánægjuefni, að þetta mikla mann
virki, sem hefur tekið svona lang-
an tíma að fullgera, og hefur kost-
að okkur svona mikla peninga,
skuli nú verið farið að gefa eitt-
hvað af sér.
Það urðu mörgum að vísu von-
brigði, að rafmagnið skyldi ekki
lækka, frá því sem það var, en
það er þó talsverð raunabót að vita
það, að ef rafmagnig frá Skeiðs-
foss hefði ekki komið nú, þá hefði
óhjákvæmilega orðið að hækka raf
magnstextan allverulega, vegna
stórkostlegrar hækkunar á olíu, og
einnig vegna þess, að rafstöðin
bar sig engan veginn fyrir hækkun
ina á olíunni. Það, að ^afmagnið
frá Skeiðsfoss er selt eftir gamla
textanum, er því í raun og veru
lækkun á rafmagnsverðinu, miðað
við aðstæðurnar.
★
Rafmagnið er nú komið til bæjar
ins, og nú er um að gera að nota
inda, aukins þrifnaðar, og bættra
atvinnuskilyrða, eru ótæftiandi, þar
sem nægilegt rafmagn er fyrir
hendi. Siglfirðingar geta því litið
ánægðir og vongóðir fram í tím-
ann, allstaðar blasa við ný verkefni
sem bíða úrlausnar fyrir starfs-
glaðan hug, og starfandi hönd.
★