Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 43
sem ekki kom á réttum tíma. Við bárum takmarkalaust traust til Einars og höfðum það alltaf á tilfinningunni að það væri gagn- kvæmt. Ekki skal því gleymt hér að Prjónaver var ekki bara Einar Árnason heldur líka Árni Ein- arsson. Árni stóð eins og klettur við hlið föður síns og var það Einari alltaf mjög mjög mikils virði. Það var fastur liður í heimsókn okkar hjónanna til Ís- lands að Hulda bauð upp á kaffi og meðlæti og það ekki af verri endanum. Voru þessi kaffiboð ýmist á heimili þeirra í Goð- heimunum eða á Hvolsvelli. Við hjónin erum þakklát fyrir að hafa fengið að vinna með slíkum heiðursmanni um 20 ára skeið. Við sendum Huldu, börnum hennar og barnabörnum og allri fjölskyldunni okkar innilegustu samúðarkveðjur. Andrés og Eva-Maria. Enn fækkar frumbyggjunum á Vallarbrautinni á Hvolsvelli. Kvaddur hefur verið hinstu kveðju Einar Árnason, raf- virkjameistari, sem var mikill áhrifamaður í samfélaginu hér á Hvolsvelli og í Rangárvallar- sýslu allri. Foreldrar hans, þau Margrét Sæmundsdóttir og Árni Einarsson, póst- og sím- stöðvarstjóri á Hvolsvelli, voru einnig mikið áhrifafólk hér og einir af frumbyggjunum. Einar nam rafvirkjun á þeim tíma þeg- ar rafvæðing sveitanna var að hefjast en rafmagnið olli bylt- ingu á Íslandi og þóttu rafvir- kjarnir líkari galdramönnum en mennskum mönnum enda raf- magnið og áhrif þess göldrum líkast. Lengi vann Einar hjá Kaupfélagi Rangæinga og stýrði rafmagnsverkstæði þess félags um áraraðir. Gamla rafmagns- verkstæðið hýsir nú veitinga- stað við Hvolsveginn á Hvols- velli og er lýsandi fyrir breytingarnar í byggðarlaginu. Síðar stýrði Einar prjónastofu kaupfélagsins og eignaðist síðar sína eigin prjónaverksmiðju, prjónastofuna Prjónaver sem hann rak í gegnum þykkt og þunnt og var sjálfstæður at- vinnurekandi í héraði um langt árabil. Einar lét sig einnig varða málefni samfélagsins með öðr- um hætti því hann var, eins og faðir hans, hreppsnefndarmað- ur í Hvolhreppi hinum forna, sem nú er hluti af sameinuðu sveitarfélagi okkar, Rangár- þingi eystra. Einar var ötull sveitarstjórnarmaður og var einn af þeim sem áttu stóran þátt uppbyggingu gagnfræða- skólans á Hvolsvelli, ásamt öðr- um sveitarstjórnarmönnum og hinum farsæla skólastjóra Trú- manni Kristíansen. Gagnfræða- skólinn var mikið framfaraskerf því þá gátum við sem nutum nýja skólans verið lengur heima við nám en áður hafði tíðkast. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að vera í fyrstu árgöngun- um sem útskrifuðust úr þeim skóla, en áður þurftu nemendur að ljúka lands- og gagnfræða- skólanámi t.d. frá Skógaskóla. Nú hafa sveitarfélögin sem tóku þátt í uppbyggingu skólans sam- einast í eitt sveitarfélag. Með samvinnu um gagnfræðaskól- ann var e.t.v. sá upptaktur sleg- inn. Einar var gæfumaður í einkalífi, giftist sæmdarkon- unni, Huldu Sigurlásdóttur og eignaðist með henni Margréti, Árna og Aðalheiði, gamla og góða leikfélaga mína og systra minna. Að leiðarlokum þakka ég f.h. sveitarfélagsins Einari fyrir brautryðjandastarf í samfélagi okkar. Við sem um hríð vinnum að málefnum sveitarfélaga meg- um aldrei gleyma því að á undan okkur hefur starfað fólk sem rutt hefur veginn. Einar var einn þeirra. Huldu og fjölskyldu hennar votta ég dýpstu samúð, minningin lifir um dugmikinn brautryðjanda. Ísólfur Gylfi Pálmason. Mig langar að minnast elskulegrar fyrrverandi tengdamóður minnar, Guðlaugar Hallbjörnsdóttur, í nokkrum orðum. Ég kynntist Laugu 19 ára gömul þegar Sævar kom með mig í Sörlaskjólið til að kynna mig fyrir mömmu sinni, afa og móðurbróður. Frá þeim degi höfum við verið perluvinkonur og aldrei komið hnökrar á okkar vin- áttu þó svo að leiðir okkar Sævars hafi skilið. Hún tilkynnti mér það þegar við Sævar skildum að ég mundi sko ekki skilja við hana og það stóðst, betri tengdamömmu var ekki hægt að eignast. Eign- aðist ég margar góðar vinkonur í gegnum hana, því að allar hennar vinkonur urðu mínar vinkonur. Og ekki versnaði samband okkar þegar Siggi Jói fæddist, fyrsta barnabarnið hennar og stoltið hennar. Þegar ég flutti norður á Sauðárkrók þá var mér tilkynnt að ég ætti alltaf pláss hjá henni þegar ég kæmi í bæinn. Ekki get ég gleymt hve hjálp- söm hún var mér í veikindum Sigga Jóa. Öll árin sem við þurft- um að koma hingað suður vegna veikinda hans. Þá kom aldrei ann- að til greina en að við værum hjá henni, þó svo að hver heimsókn væri 1-2 mánuðir, það skipti engu máli. Og þegar ég eignaðist Arnar Má, þá sagði hún við mig „ég ætla bara að láta þig vita það, Margrét, að ég verð sko amma þessa barns líka“ og það sýndi hún og sannaði. Drengirnir mínir eru mjög ríkir að hafa átt hana fyrir ömmu. Eftir að Arnar Már og Elsa fluttu til Noregs þá vildi hún alltaf fá að vita hvernig gengi hjá þeim og drengjunum þeirra. Þegar ég fór núna um jólin til Noregs þá kom hún til mín með sokka og Guðlaug Sigríður Hallbjörnsdóttir ✝ Guðlaug Sig-ríður Hall- björnsdóttir, fv. matráðskona, fæddist á Seyð- isfirði, 14. apríl 1926. Útför Guðlaugar fór fram frá Nes- kirkju 7. apríl 2011. vettlinga, sagði að ekki muni veita af í kuldanum. Þær eru ófáar stundirnar sem við áttum sam- an bæði hér og í Bandaríkjunum. Var oft glatt á hjalla hjá okkur í þessum ferð- um okkar. Síðasta langa ferðin okkar var fyrir 4 árum. Þá fórum við í Skaga- fjörðinn og skemmtum okkur vel. Þá gisti Lauga hjá Báru föður- systur minni og skemmtu þær sér konunglega saman. Sátu og spjöll- uðu um alla heima og geima, prjónuðu og drukku „Ammarúll- ar“ eins og þær kölluðu það. Alltaf var gaman að koma til hennar, ég leit oft við hjá henni þegar ég var á leið úr vinnu eða skrapp til hennar í hádeginu til að fá mér snarl með henni. Oft sátum við bara og prjónuðum saman og spjölluðum. Hún sagði mér margar skemmti- legar sögur frá sínum ungdóms- árum og oft fannst mér við vera á svipuðum aldri, hún var svo ung í anda og lífsglöð. En fyrst og fremst er í huga mér þakklæti fyr- ir að hafa fengið að kynnast þess- ari einstöku konu. Það sem hún er búin að hjálpa mér í gegnum tíð- ina er alveg ómetanlegt. Stuðn- ingur hennar og styrkur var ein- stakur. Hún var stoðin mín og styrkur í veikindum og fráfalli for- eldra minna og Steina. Get ég aldrei fullþakkað fyrir það. Arnar og Elsa biðja fyrir hjartans kveðj- ur með þakklæti fyrir allt. Við eig- um öll eftir að sakna þín mikið. En mestur er þó söknuðurinn hjá fjöl- skyldunni. Elsku Sævar, Hrönn, Siggi Jói, Hilmar Kári, Gullý, Maggi og fjölskyldur, guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tím- um. Elsku Lauga mín, Guð geymi þig og blessi. Hvíldu í friði. Þín fyrrverandi tengdadóttir, Margrét Sigurðardóttir. Ég var í vinnunni þegar ég fékk símtal frá barnsföður mínum þar sem hann sagði mér að amma hans hefði dáið þá um nóttina. Þetta voru viðbúnar fréttir þar sem hún hafði verið lasin um tíma svo við vissum hvert stefndi hjá henni svo allmörg tár hafa fallið yfir að þurfa að kveðja hana. Með henni fór góð kona sem átti risastórt hjarta handa öllum sem kynntust henni og hún hafði alltaf pláss fyrir fleira fólk í kring- um sig. Hún hjálpaði mörgum á sinni löngu lífsleið og fékk m.a.s. fálkaorðuna fyrir að hafa hjálpað nýbúum undanfarin þrjátíu ár og stóð heimili hennar ávallt opið fyr- ir þau. Amma Lauga veitti mér mikinn stuðning þegar ég var í námi með börnin mín lítil, hennar lang- ömmubörn. Hún gætti þeirra oft þegar ég þurfti þess, bæði vegna skólans og eins til að stunda fé- lagslífið. Oft hlustaði hún á mig þegar ég þurfti öxl til að skæla á og trúði á mig þegar ég hafði ekki trú á sjálfri mér. Ég efast um að ég hefði komist í gegnum nám mitt ef ég hefði ekki haft stuðning hennar og er ég henni ævinlega þakklát fyrir það. Samband barnanna minna við ömmu þeirra var náið og þó að hin síðustu ár hafði heimsóknum fækkað, þá þótti þeim alltaf gott að koma til hennar. Einu sinni, sem oftar, voru börnin í nætur- gistingu hjá henni þegar litli bróð- ir þeirra fæddist og kom hún með þau strax í heimsókn um morg- uninn svo þau gætu séð hann í fyrsta sinn. Það var því stolt mamma sem tók á móti eldri börn- um sínum og kærri vinkonu til að sýna nýjasta afsprengið og þótti ástæða til að taka mynd af öllum börnunum með ömmu Laugu. Því miður var þetta eitt af síð- ustu skiptum sem ég hitti ömmu Laugu áður en hún veiktist. Fyrsta skiptið sem ég heimsótti hana á spítalann var ég alls ekki viss um að hún myndi þekkja mig, en þegar ég kynnti mig þá spurði hún: „Er þetta Selma mín?“ – og var alveg með á nótunum þegar ég talaði um langömmubörnin henn- ar. Það gladdi mig og gaf mér von um að hún myndi ná sér aftur á strik en það reyndist skammgóð- ur vermir. Börnin mín búa vel að því að hafa kynnst ömmu Laugu og eiga góðar minningar um hana sem þau munu ekki gleyma. Hvíldu í friði. Selma. MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011 ✝ Oddur Helga-son fæddist á Gvendarstöðum í Kinn 28. desember 1926. Hann lést að hjúkrunarheimilinu Sóltúni 6. mars 2011. Oddur var sonur hjónanna Helga Jónassonar grasafræðings og bónda á Gvend- arstöðum og konu hans Halldóru Jónsdóttur frá Fornastöðum. Oddur var sjötti í röð átta systkina. Elstur var Jón- as, f. 1918, d. 2006, næstur var Ingi, f. 1919, d. 1984. Ingi var kvæntur Guðnýju Þórhallsdóttur frá Ljósavatni og eignuðust þau fjögur börn. Rannveig, f. 1921, hennar maður var Þorvaldur Helgason úr Reykjavík og eign- aðist hún einn son. Forni, sem bjó á Gvendarstöðum alla tíð, f. 1923, d. 1981. Sæmundur, f. 1925, d. 2008, kvæntist Guð- björgu Guðmundsdóttur frá Haf- þórsstöðum í Norðurárdal, þau eiga fimm börn. Jórunn, f. 1928, maður hennar var Guðmundur A. Jónsson og á hún eina dóttur. Yngst er Kristín, f. 1930, hún á einn son. Oddur ólst upp á Gvendarstöðum og gekk í Alþýðuskól- ann á Laugum í einn vetur. Þaðan fór hann í bænda- skólann á Hólum, þar sem hann tók eldri bekkinn og út- skrifaðist sem búfræðingur árið 1948. Eftir skólann vann hann um tíma hjá Mjólkursamlaginu á Sauðárkróki, en fer þaðan til Danmerkur þar sem hann út- skrifast sem mjólkurfræðingur frá Dalum Mejeriskole í Óðins- véum árið 1954. Að námi loknu vann hann fyrst við mjólkurstöð- ina í Borgarnesi en flytur sig fljótlega til Reykjavíkur þar sem hann vann síðan allan sinn starfs- aldur hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík. Útför Odds fór fram frá Lága- fellskirkju 15. mars 2011. Jarð- sett var í heimagrafreit að Gvendarstöðum. Er ég sest niður og hugsa til móðurbróður míns Odds Helga- sonar leita kærar minningar á hugann. Í bernskuminningum mínum er Oddur frændi sá sem ég gat ætíð rætt við um allt milli him- ins og jarðar hvort heldur sem var um að ræða gaman eða alvöru. Mörg ævintýraferðalög fórum við í bernsku minni. Oddur var auðvitað bílstjórinn en ég vissi um allar sjoppurnar sem seldu góðan ís. Öll mín bernskuár var hann hjá okkur um jólin og jólin komu ekki fyrr en Oddur var kominn. Þannig hélst þetta eftir að ég var sjálf far- in að búa og þegar dætur mínar voru litlar fannst þeim jólin ekki komin fyrr en Oddur frændi var mættur á aðfangadagskvöld. Margar ánægjulegar stundir áttum við Oddur saman yfir kaffi- bolla er ég heimsótti hann í Hraunbæinn og var þá skrafað um margt. Hann sagði mér þá oft skemmtilegar sögur, bæði af mönnum og málefnum. Oddur sýndi mér jafnan stuðning og að- stoðaði mig á ýmsan hátt bæði í orði og verki. Hann var ætíð jafn rólegur og uppörvandi hvernig sem mér fannst veröldin vera. Allt- af hafði hann fulla trú á því sem ég var að gera og sagðist vita að mér tækist það sem ég ætlaði mér. Síðustu misserin dvaldi Oddur á Landakoti og síðast í Sóltúni. Þótt heilsu hans hefði hrakað var enn jafn gott að koma til hans. Alltaf var hann sami góði frændinn sem ég átti gott með að spjalla við. Síð- ast heimsótti ég hann í Sóltún nokkrum dögum fyrir andlát hans. Hann var þá með hressasta móti og náði að setjast í stól í herberg- inu sínu. Hann vildi að ég fengi mér kaffi með sér og ég sat með kaffibollann minn en hann drakk sitt vatn. Við áttum gott og nota- legt samtal eins og svo oft áður. Þetta var yndisleg heimsókn og minningin um hana, sem og öll okkar samskipti í gegnum árin mun lifa með mér og ylja mér um ókomin ár. Með þessum orðum kveð ég Odd frænda og bið góðan Guð að blessa minningu hans. Halldóra Anna Jórunnardóttir. Oddur Helgason ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna fráfalls okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, ÞORSTEINS PÁLMA GUÐMUNDSSONAR, Steina spil, Furugrund 8, Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Fossheima HSu fyrir hlýju og frábæra umönnun. Unnur G. Jónasdóttir, Soffía G. Þorsteinsdóttir, Eiður Steingrímsson, Guðmundur Þorsteinsson, Dröfn Sigurðardóttir, Silja S. Þorsteinsdóttir, Lúðvíg Þorfinnsson og barnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÞÓRDÍS ÞORBERGSDÓTTIR, Víðigerði 15, Grindavík, áður til heimilis á Mávabraut 12d, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 14. apríl kl. 14.00. Gunnar Páll Guðjónsson, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Geir Gunnarsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Ólafur E. Ólafsson, Þórdís Gunnarsdóttir, Ómar Ásgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elsku besti pabbi minn, sonur okkar og bróðir, BOGI EYMUNDSSON, Vallarási 2, Reykjavík, lést á Karolinska sjúkrahúsinu í Huddinge Stokkhólmi miðvikudaginn 30. mars. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 12. apríl kl. 13.00. Eymundur Þór Bogason, Eymundur Lúthersson, Margrét Halldórsdóttir, Sigurjón Kr. Bergsson, Katrín Eymundsdóttir, Hannes Trausti Skírnisson, Eymundur L. Eymundsson, Lára Eymundsdóttir, Hörður Theódórsson, Eydís Elva Eymundsdóttir og frændsystkini. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR PÁLSSON, Áshamri 55, lést á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmanna- eyjum miðvikudaginn 6. apríl. Útförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn 15. apríl kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Þórey Guðrún Björgvinsdóttir. ✝ Þökkum hjartanlega sýndan hlýhug og samúð vegna andláts HARÐAR G. ALBERTSSONAR forstjóra. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Þórdís Ásgeirsdóttir. ✝ Þökkum öllum þeim sem heiðruðu minningu föðursystur okkar, SIGRÍÐAR KLEMENZDÓTTUR. Rúna Bína, Anna Ingibjörg, Unnur, Jakobína, Jóhanna og Sigríður Sigtryggsdætur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.