Birtingur - 01.07.1955, Qupperneq 10

Birtingur - 01.07.1955, Qupperneq 10
að hindra umbætur á ytri kjörum manneskj- unnar. Þar skilur með honum og mörguir kristnum bölsýnismönnum. Þvert á móti gengur Laxness út frá því að manneskjuna verði að vernda einmitt vegna veikleika henn- ar. Hin bölsýna skoðun hans á manneskj- unni gengur í þjónustu þjóðfélagslegrar vandlætingasemi hans. Það hlítir listrænum rökum að í sósíalistisku niðurstöðuna glittir aðeins á síðustu blaðsíðum Sjálfstæðs fólks. Meðal annars gerir þessi hófsemi í uppbygg- ingunni Sjálfstætt fólk að meiri bók en Salka Valka er. Með yfirburða nærfærni tekst Laxness að ná líkum árangri í skáldsagnabálknum um skáldið Ólaf Kárason. Hér er vandlæting hans margþættari en nokkru sinni fyrr, og þó er auðveldara að greina milli þess sem hann deilir á og hins sem hann sættir sig við. Dostojefsky hefur verið nefndur í sam- bandi við Ólaf Kárason og það er engan veg- inn fráleitt. I Ólafi er gæzka Myskins fursta og einfeldni, líka glöggskyggnin sem stafar af því að báðir lifðu þeir lengi utan við mann- félagið, sá rússneski fursti í myrkri vitfirr- ingarinnar, hinn íslenzki hreppsómagi í ein angrun vegna sjúkleika. Hann er maður upp- ljómunarinnar eins og Myskin fursti og Alosja Karamazoff báðir en það gerir hann einlægt framandi mann í tilverunni. Einn er sá kafli í skáldsagnaflokknum sem vekur al- menna aðdáun er vert væri að stjaldra við og skoða innan þess þrönga sjónarhrings sem hér er gert. Það er samræða Arnar XJlfars, vinar skáldsins, og hans við dánarbeð dótt•• urinnar, sá þáttur hefur sömu meginþýðingu sem sagan af yfirrannsóknardómaranum í Bræðrunum Karamazoff. örn Úlfar sem sækir Ólaf heim þá nótt er hann vakir yfir lítilli dóttur sinni dauð- 8 vona, hann er líka skáld en þess utan sósíal- isti. Hann er virkur í baráttunni fyrir bætt- um lífsháttum fólksins í Sviðinsvík. Ólafi þykir hann hafa ásjónu Ijónsins er hann rek- ur höfuð sitt allt í einu inn í hreysi skáldsins, og það er ekki neinn fagurgali þvi ljónið hefur „það andlit sem veit sig eiga allskostar við alla og er þess vegna hið fullkomnasta andlit jarðarinnar og það andlit sem er manninum fjarst.“ Ólafur Kárason er gagntekinn þeirri þrá að þær þjáningar sem ríða i boða- föllum yfir dótturina smáu mættu brotna á honum sjálfum í staðinn. Yfir deyjandi stúlkubarninu kemur ljóst fram sú andstæða í mannlegu viðhorfi sem skilur með Erni Úlf- ari og Ólafi. — Ólafur heldur hér fram hinu „skepnu-lega“ (kreaturliga) viðhorfi til mann- anna, breyskleika þeirra. Hann getur aðeins gleymt því andartak að manneskjan er mold- arvera, Örn veit að hún er það ekki. Kær- leikurinn til annarra er að hyggju Ólafs mik- ilvægastur alls, örn veit að einungis rétt- lætið fær borgið manninum undan þeim sem fótumtroða mannkynið. Ólafur sér eitthvað mikilfenglegt í því að guðssonur þjáðist á krossi fyrir mennina í þessu gamla ævintýri sem hann kallar svo. örn svarar að „með- aumkunin með mönnunum hafi orðið guðin- um að bana.“ Ólafur veit að „hægt sé að berjast fyrir réttlætinu þangað til enginn maður stendur lengur uppi á jörðinni.“ „Mað- urinn lifir fyrst og fremst á ófullkomleika sínum og fyrir hann“. „Maðurinn lifir á sinni fullkomnun og fyrir hana, sagði Öm Úlfar.“ „Ekki getur þú neitað því Örn, að mann- eskjan er í eðli sínu fátæk, sagði skáldið. Manneskjan er í eðli sínu rík, sagði gestur hans." Laxness leggur áherzlu á það í næstum hegelskri framsetningu að andstæð sjónar- mið leiði hvort af öðru, og það höfum við þegar séð. Það er vissulega ekki í fyrsta sinn

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.