Birtingur - 01.06.1967, Page 11
Einföldun táknanna sem eiga þó stærri víddir
undir yfirborðinu er einkenni á aðferðum
Mrozeks. Við höfum þegar séð í annexíu Þjóð-
leikhússins þáttinn Á rúmsjó, hann var síðan
fluttur í útvarpinu, þennan meinfyndna al-
varlega málfund þriggja manna sem eru að
hrekjast soltnir á rúmsjó og reyna að ákveða
samkvæmt ýmsum leikreglum mannlega sam-
félagsins hvern skuli éta, eða öllu heldur
reyna tveir þeirra: sá feiti og hinn meðalfeiti
að telja hinn magra á að láta éta sig, fyrst með
lýðræðislegum kosningaaðferðum og áróðri,
síðan með ofbeldi, loks með hetjugloríu fyrir
tálbeitu.
Fyrsta leikrit Mrozeks: Lögreglan, þar segir
frá einhverju ríki þar sem bara einn einasti
maður er eftir í fangelsi. Allt er þarna til fyr-
irmyndar, fangelsin hafa orðið fínni og fínni.
Lögreglan æ öilugri. En þá dynur yfir reiðar-
slagið, fanginn sem hefur þrætt fyrir sekt sína
í tuttugu ár snýst skyndilega alveg á band
stjórnarinnar. (Hann hafði verið ákærður fyr-
ir að kasta sprengju að hershöfðingja.) Hann
segist sjá það á öllu að stjórnin hljóti að vera
alveg prýðileg. Hann heimtar að fá að játa
en lögregluforinginn reynir að koma í veg
fyrir það. Því ef enginn er fangi, til hvers þarf
þá svona mikla lögreglu? Og á hverju sér fang-
inn að allt er svona ágætt? Jú — hann sá út
um gluggann fólkið á akrinum hvað það var
ánægt. Veit fanginn þá ekki að það er bannað
að horfa út um gluggann? Að vísu en það
gegndi allt öðru máli þegar ég var á móti
stjórninni, þá var það mín dyggð að óhlýðn-
ast. Núna er ég orðinn hrifinn af stjórninni.
Eg sé reykinn úr verksmiðjunum, framfarir.
O það er nú reykur úr líkbrennslu, segir lög-
regluforinginn. Þegar engin leið er að halda
lengur í þennan turnaða fanga verður lögregl-
an að útvega glæp til að bjarga sínum forsend-
um. Þessi bráðskemmtilegi leikur vekur með
glúrni sinni margar hugsanir um eðli þjóðfé-
lagsins og mannlega náttúru. í þessu ríki er
látið heita svo að æðsta yfirvaldið sé Smá-
barnið og frændi þess Ríkisstjórinn, og hve-
nær sem þetta par er nefnt spretta allir úr
sæti í virðingarskyni, og {rarna hefði verið
tekið eins hart á því að segja að fluga hefði
skitið á keisarann og gert var við góða dátann
Sweig og skyldi þetta ekki eiga enn við hér og
þar í heiminum, þó að það sé reyndar búið að
sprauta eitri á allar flugur í Kína með sam-
stilltu átaki á hinum árlegu DDT-hátíðum
Rauðra varðliða, svo þar er flugan væntan-
lega úr leik.
Tveir menn koma inn í herbergi, í þessu her-
bergi er ekkert. Nema tveir stólar. Þannig
befst leikþátturinn Striptease eftir Mrozek
zr Nektarsýning. Þeir hafa hrakizt inn í þetta
herbergi og taka með sér tal. Hvurnig stendur
BIRTINGUR
9