Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2010, Page 40
38
Katrín Axelsdóttir
Breytingin virðist því hafa hafist snemma á 13. öld og líklegt er að henni
hafi verið lokið þegar á þeirri öld. Ef litið er á dálkana tvo sem sýna fjölda
tenginganna hvortki og hvorki virðast hlutföll mjög svipuð og í fornafna-
dálkunum og styðja þá mynd sem þar kemur fram.
3.7 Samandregnar og ósamandregnar myndir
Forn beyging -zý-/-«g-lýsingarorða (orða eins og auðigr, gfugr) er aðeins
frábrugðin nútímabeygingunni því að síðara sérhljóð í stofni féll í fornu
máli brott á undan beygingarendingu
sem hófst á sérhljóði, sbr. karlkyns-
Þarna skiptust því á samandregnar
og ósamandregnar myndir. Búast
hefði mátt við að sama máli gegndi
um beygingu fornafnsins hvorgi, en
svo er ekki. I þeirri beygingu eru yfir-
leitt ósamandregnar myndir (t.d.
hvorigir) þar sem von væri á saman-
dregnum (t.d. hvorgir), með nokkrum
undantekningum þó, sbr. töflu 10.65
I töflu 10 eru samandregnar mynd-
ir sjö. Ósamandregnar eru miklu
fleiri, eða 60. Ef dæmin sjö eru skoð-
uð nánar kemur í ljós að fjögur þeirra eru myndir þf.kk.et., hvomgan
(dæmið í Heimskringlu og tvö af dæmunum í Sturlungu) og hvorgan
(dæmið í Jómsvíkinga sögu). Hér að framan (3.4) kom fram að engin
traust dæmi hafa fundist um *hvomigan og myndin hvorigan er ung.
Ekkert bendir til þess að þetta séu forverar hvorngan og hvorgan. Hér á
eftir (4.7) er giskað á að myndirnar hvomgan og hvorgan séu ekki sam-
andregnar myndir, þótt þær kunni að líta út fýrir að vera það. Þær eru því
kannski ekki sambærilegar við samandregnar myndir og þá eiga dæmin
beygingu auðígr í töflu 9.64 Saman-
dreginn stofn er þar feitletraður.
EINTALA
NF. auðig-r
ÞF. auðg-an
ÞGF. auðg-um
EF. auðig-s
FLEIRTALA
NF. auðg-ir
ÞF. auðg-a
ÞGF. auðg-um
EF. auðig-ra
Tafla 9: Beyging auðigr í karlkyni
í fornu máli.
64 Hið sama átti við um beygingu orðsins heilagr, eina lýsingarorðsins sem hafði við-
skeytið -ag-.
65 Áður hefur verið bent á að samandregnar myndir í beygingu hvorgi komi fyrir en
séu sjaldgæfar (sjá t.d. Wimmer 1874:94, Cleasby 1874:298, Finnur Jónsson 1908:105,
Noreen 1923:324).