Ritmennt - 01.01.1999, Blaðsíða 44

Ritmennt - 01.01.1999, Blaðsíða 44
AÐALGEIR KRISTJÁNSSON RITMENNT Sérstaklega lágu Þorgeir og Þorsteinn Helga- son undir grun. Langeland tengdafaðir Þor- geirs var kominn í andstöðu við stjórn fé- lagsins og sonur hans og mágur Þorgeirs gerði sig beran að fjandskap við það eins og fram kemur í fundargerðum félagsins og bréfum Finns Magnússonar til Bjarna Þor- steinssonar. Því má láta sér til hugar koma að úr þeim herbúðum hafi sú alda verið runnin sem hratt deilunni af stað. Innan Fornfræðafélagsins mögnuðust deilurnar svo mjög að Rafn setti því úrslitakosti þess efnis að annaðhvort hætti hann öllum af- skiptum af rekstri félagsins eða Þorgeir færi úr því. Félagsmenn kusu að láta Þorgeir víkja og var það mál frágengið fyrir miðjan apríl 1831. Finnur Magnússon lagðist gegn Þorgeiri í þessum átökum. Það kann að hafa gert sitt til að mánuði áður var gengið fram hjá Finni þegar Þorgeir var valinn forseti Hafnardeildar. Finnur gerði Bjarna Þor- steinssyni grein fyrir afstöðu sinni í bréfi 31. mars 1832. Svo er að skilja sem honum hafi þótt Bjarna skorta réttan skilning á málavöxtum. Hann sagðist hafa reynt að stilla til friðar en nauðsyn hefði borið til að víkja Þorgeiri úr fornfræðanefndinni ef verk þess, eins og konungi var lofað, ættu að koma út í tækan tíma og útgefast á þolanlegan hátt. [...] Við sáum þá ei annað fyrir en félagsins kollvörpun, ef engin breyting skeði, og hafði Rafn þá einsett sér að láta félagið á almennum fundi sjálft kjósa, hvort hann eður Gjuðmund- sen] ætti úr því að víkja, þar tilhlýðilegt samerf- iði var ómögulegt orðið.27 Finnur Jónsson prófessor vék að þessum átökum í grein um Fornfræðafélagið á hundrað ára afmæli þess og greindi frá mála- vöxtum með þessum oróum. Enginn efi er á því, að Þorgeir Guðmundsson reri undir málið. Innan félagsins fór í hart milli Rafns og Þorgeirs og mágs hans; Rafn sagði, að hér eft- ir væri samvinna milli sín og Þorgeirs ómöguleg, annarhvor yrði að víkja. Þorgeir lét þá undan og sagðist ekki geta unnið eins og þá væri komið málum, en kvaðst skyldu segja sig úr nefndinni, ef hann fengi 200 rdl. fyrst um sinn í 5 ár frá 1. jan. 1832. Að þessu gekk stjórnin og félagið, þó með því, að orðunum „fyrst um sinn" yrði sleppt, og að því gekk Þorgeir. Þessa fjárkröfu má verja frá Þorgeirs sjónarmiði; það var þóknun eða uppbót fyrir vinnu og borgun fyrir seldar bækur, sem hann þóttist eiga rétt til, eftir því sem stóð til frá upphafi; en hitt var óþarfi og óverjandi, sem Þorgeir gerði, að reyna að spilla fyrir félag- inu og bóksölu þess á Islandi.28 Þorgeir greindi Bjarna Þorsteinssyni einnig frá málavöxtum 19. apríl 1831 og sagðist þá að öllum líkindum vera hættur afskiptum af starfsemi Fornfræðafélagsins. Félagið sé nú eins og knöttur í hendi Rafns og þeir sem séu í stjórn þess ásamt honum séu of þreklausir til að andæfa honum en þeir upp- lýstari fylgi sér að málum. Hann vék aftur að úrsögn sinni úr Fornfræðafélaginu í bréfi til Bjarna 3. maí 1831 og þeim skilmálum sem hann setti upp. Margir hafi brugðið sér um veiklyndi að láta undan en elcki sé fýsi- legt fyrir hann og Þorstein Helgason að starfa við þau slcilyrði að vera einungis verkfæri í hendi Rafns.29 Hafnar-íslendingar skiptust í tvo flokka. Margir hinna yngri fylgdu Baldvin og Þor- geiri að málum en nokkrir stúdentar gengu úr Hafnardeildinni eftir að Þorgeir varð þar forseti. Heima á Islandi voru félagsmenn 27 Hafnarstúdentar skrifa heim, bls. 64. 28 Hið konúnglega norræna fornfræðafjelag, bls. 4. 29 Lbs 339 b fol. 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170

x

Ritmennt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.