Ritmennt - 01.01.1999, Blaðsíða 110

Ritmennt - 01.01.1999, Blaðsíða 110
JÓN VIÐAR JÓNSSON RITMENNT Þeir óðu ekki um með morðum og ofbeldi eins og nasistarnir geróu hér. Nú um jólin voru settir upp litlir grcnikrossar á götunum, við þá staði þar sem Danir höfðu verið drepnir af nasistum - það var skelfilegt að sjá hvað þeir voru margir. Mér hefur oft orðið hugsað til íslands þessi ár. Þið voruð líka hernumdir, en á allt annan hátt; kannski voruð þið oft gramir við þessa útlend- inga, en þeir kvöldu ykkur og hrjáðu a.m.k. ekki. Ég hef getað fylgst svolítið með því að ég fékk „Fréttir" mánaðarlega sem félagi í Islendingafé- laginu, vélritaðar - þær voru oft nokkurra mán- aða gamlar, þessar fréttir, en maður fylgdist þó svolítið með. Þeim var víst dreift meira og minna ólöglega, opinberlega urðu allar fréttir að fara í gegnum þýsku ritskoðunina. Og því máttu trúa, Halli, að allar mínar hlýjustu hugsanir sendi ég til íslands daginn sem við héldum upp á sjálfstæði ykkar í félaginu! Það var ekki hægt að halda þann veislufögnuð sem ástæða var til, við rétt náðum að hlýða á ræðurnar, síðan urðum við að fara heim, öllu var lokað svo snemma. Auð- vitað voru þar ekki margir Danir, ég var einn af þeim fáu og gladdist mjög. Og ég hef stöðugt reynt að segja löndum mínum að þið vissuð vel hvað þið voruð að gera, við þyrftum ekki að vera móðgaðir fyrir eigin hönd eða konungsins. Mér fannst sjálfsagt mál að þið yrðuð að þekkja stöðu ykkar þegar friður kæmist á. Þú veist að ég hef alltaf hlakkað til þessa dags því að ég vissi að hann myndi gera ykkur glaða - og það skipti sannarlega mestu máli. Ekki skortir átakanlega dramatík í frásögn Gunnars af lífi sínu og sinna nánustu á stríðsárunum: Menn gátu hvenær sem var orðið fyrir því að vera þar staddir sem andspyrnuhreyfingin hafði tekið af lífi Þjóðverja eða einhvern af áhangend- um þeirra - og þá voru þeir mættir þar nokkrum klukkutímum seinna og skutu þann fyrsta sem þeir sáu á staðnum. Þessi hefndarmorð voru við- urstyggileg og þannig var mágur minn myrtur heima hjá sér af þremur illvirkjum sem brutust inn um miðja nótt. Þeir læstu systur mína inni í svefnherberginu drógu mág minn niður í reyk- stofuna og skutu hann aftan frá með vélbyssu. Það var til að hefna þess að reynt hafði verið að sprengja þýska herskipið „Nurnberg" sem lá á höfninni í loft upp. Og mágur rninn var hafnar- stjóri, og því skyldi hann drepinn þó að hann hefði ekki á nokkurn hátt komið nærri því. Þeg- ar þetta gerðist var elsti sonur systur minnar í fangabúðunum Neuengamme hjá Hamborg - mánuði síðar bárust henni þær fréttir að hann hefði dáið úr blóðkreppusótt 21 árs gamall. Nú á hún aðeins einn son svo hún hefur orðið að þjást mikið. Það var ekkert gert fyrir fangana í fanga- búðunum, svínaríið var ótrúlegt, nasistarnir vildu helst að fangarnir dæju. Niels var handtek- inn fyrir að ljósmynda Shell-húsið alræmda sem var aðalbækistöð Gestapo í Kaupmannahöfn og Englendingar gerðu seinna á loftárás. Það voru aðeins tvær sprengjuárásir gerðar á Kaupmannahöfn, í fyrra skiptið var skipasmiðja Burmeister og Wains sprengd í loft upp; hún er stutt þar frá sem ég bý - það var heldur óskemmtileg lífsreynsla. Til allrar hamingju var árásin óhemju nákvæm og kostaði bara fáein mannslíf í sykurverksmiðjunni við hliðina sem varð líka fyrir sprengju. Annars var stundum býsna líflegt í hverfinu hjá mér, ekki síst daginn sem Þjóðverjar gáfust upp - aðfaranótt 5. maí og daginn eftir - því að andspyrnuhreyfingin var með aðalbækistöðvar í næsta húsi við eitt hesta vinafólk mitt. Ég skrapp þangað til að hitta þau, það var hátíð í bænum, en við lágum mestalla nóttina og fram á næsta dag á gólfinu í setustof- unni á meðan linnulaus skothríð dundi á húsinu. Um miðja nótt urðum við að fara út til að bera helsærðan mann inn í húsið þangað til sjúkra- bíllinn kom - til allar hamingju komst hann í gegn. Daginn eftir sá ég tvo menn særða, en ég veit ekki hvað alvarlega, það var ekki sjón að sjá þá. Svo þú skilur að við höfum notið friðar og frelsis eftir þetta! Talið berst einnig að dauða Kambans sem þá var að sjálfsögðu milcið ræddur og ýmsar skoðanir uppi um. Segir Gunnar morðið 106
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170

x

Ritmennt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.