Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2004, Blaðsíða 24
* 24 MIÐVIKUDAGUR 28. APRlL 2004
Fókus XSV
Nýtt ávarp
Siðanefnd Stjórnsýslu ríkis-
ins hefur sent frá sér tilskipun
sem tekur gildi á afmælisdegi
hins ástsæla leiðtoga, Davíðs
Oddssonar, í janúar. Tilskip-
unin hljóðar svo:
„Hinn ástsæli leiðtogi þjóð-
arinnar skal í framtíðinni
ávarpaður með eftirfarandi
hætti og skal hvergi brugðið
þar frá, hver sem á í hlut: Hinn
ástsæli leiðtogi þjóðarinnar,
hjarta hennar og sál, Ijós í
myrkri eilífðar og alltumlykj-
andi stjörnuregn, fóstri barna
ogkvenna, vinur jökulfljóta og
faðir fossa, hans hátign, Davíð
Oddsson."
Leiðtoginn með litninga frelsarans
„Það fer ekkert á milli mála. Litning-
arnir eru jafnstæðir," segir Kjartan
Gunnarsson, nýskipaður forstjóri EÍ;
Erfðagreiningar fslands, um vísinda-
afrek ársins. „Þetta verður stofnuninni
lyftistöng."
Bæði Ríkisútvarplð og Ríkissjónvarpið
greindu frá því (aukafréttatímum
klukkan fjögur i nótt að litningar hlns
ástsæla leiðtoga, Oavfðs Oddssonar,
væru þeir hinir sömu og Jesú Krists.
Hefur fréttin þegar vakið heimsathygli.
James P. Muilroy, forstjóri deCODE í
Bandaríkjunum, var ómyrkur í máli
þegar hann tjáði sig um uppgötvunina
við sólarupprás vestra; „I only have
two words to express my astonish-
ment. Jesus Christl," sagði hann.
Nýr þjóðsöngur
íslendinga
Davíðs þúsund ár
Ó, Davið Oddsson! Ó, Davíð Oddsson!
Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn!
Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans
þinir herskarar, timanna safn.
Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ór
og þúsund ár dagur, ei meir:
v eitt eilifðar smáblóm með titrandi tár,
^ semtilbiðurguðsinnogdeyr.
Daviðs þúsund ár,
eitt eilifðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður Davíð og deyr.
V Ó, Davíð, ó, Davið! Vér föllum fram
■I og fórnum þér brennandi, brennandi sál,
n Davíð faðir, vor drottinn frá kyni til kyns,
B og vér kvökum vort helgasta mál.
H Vér kvökum og þökkum iþúsund ár,
. þvíþú ert vort einasta skjól.
• T Vér kvökum og þökkum með titrandi tár,
þviþú tilbjóst vort forlagahjól.
:; Davíðs þúsund ár,;:
voru morgunsins húmköldu, hrynjandi tár,
sem hitna við sklnandi sól.
Ó, Davíð Oddsson! Ó, Davið Oddsson!
Vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá.,
Vér deyjum, efþú ert ei Ijós það og lif,
sem að lyftir oss duftinu frá.
Ó, vert þú hvern morgun vort Ijúfasta lif,
vor leiðtogi I daganna þraut
og á kvöldin vor himneska hvild og vor hlif
Söngleikur um
Kjarvalsstaðir
verða Davíðsstaðir
Leyfið börnunum að l<
Rikisstjórnin kom saman til skyndi-
fundar siðastliðinn sunnudag kl.
11,03.Varþar borin upp tillagaÁrna
Magnússonar félagsmálaráðherra
um að breyta Kjarvalsstöðum i Dav-
íðsstaði. Tilefnið var baksiðufrétt DV
um listræna hæfíleika okkar ástsæla
leiðtoga en eins og myndirnar bera
með sér er hann undrabarn þegar
kemur að listsköpun hverskonar. Til-
lagan varenda samþykkt einróma
og einnig sú tillaga fyrrverandi pönk-
arans, Árna Magnússonar, að pönk-
lagið með Jonee Jonee, Afþvi að
pabbi vildi það, yrði hér eftir kallað Af
þvi að Dabbi vildi það. Hljómsveitin
hafði óskað eftir þessu í viðtali í Kast-
Ijósi á dögunum. Mun Jonee Jonee af
þessu tilefni koma saman aftur á 17.
júni og skemmta alþýðu Islands I
Lækjargötu. Árni Magnússon ákvað
eftir fundinn að segja afsér þar sem
ekki væri þörfá félagsmálaráðherra
lengurþarsem öryrkjarog annað
minnipokafólk hefði aldrei haft það
jafn gott og einmitt nú, 13 árum eftir
að Davið fór frá völdum.
Listamaðurinn Davíð DV birti
fyrir nokkru flennistóra baksiðufrétt
um listræna hæfileika okkar ást-
kæra leiðtoga Daviðs Oddssonar.
Davíð er besti vinur barnanna Alltaferhann
hjá þeim, aldrei fer hann frá þeim, Davið er besti
vinur barnanna.
Endurskoðandi
leiðtogans
Hinn ástsæli leið-
togi þjóðarinnar,
Davíð Oddsson, hefur
gert Árna Johnsen að
rlkisendurskoðanda. I skipunarbréfi Árna
segir orðrétt:
„I upphafi skyldi endinn skoða en þó
skiptir mestu að endurskoða. Arni John-
sen, vinur minn og ríkisins um árabil, hefur
endurskoðað llf sitt eftir að hafa skoðað
Þjóðleikhúsið ofvel og I Ijósi þeirrar endur-
skoðunar liggur beint við að gera hann að
ríkisendurskoðanda."
Rikisendurskoðun mun hafa aðsetur í
Þjóðleikhúsinu en það hefur staðið autt
síðan leiklistarstarfsemi ríkisins var flutt i
Stjórnarráðið. Skrifstofa nýs ríkisendur-
skoðanda verður á stóra sviði leikhússins.
Áhorfendabekkir hafa verið fjarlægðir og
veit enginn hvað af þeim hefur orðið. Síð-
ast sáust þeir i brekkunni i Herjólfsdal um
verslunarmannahelgina.
fæðingu Davíðs
Hrafh Gunnlaugsson, nýskipað-
ur Þjóðleikhússtjóri, sagði á blaða-
mannafundi í Þjóðmenningarhúsi
Davíðs í gær að í burðarliðnum væri
nýr íslenskur söngleikur um fæð-
ingu okkar ástkæra leiðtoga Davíðs
Oddssonar en hann var eins og al-
þjóð veit eingetinn. Rúnar Freyr
Gíslason mun leika Davíð en Þórar-
inn Eldjám samdi textana við tón-
list herra Davíðs Oddssonar sem er
mesta tónskáld sem þjóðin hefur
alið. Söngleikurinn verður sýndur í
stjómarráðinu þar sem skrifstofa
Áma Johnsen ríkisendurskoðanda
er staðsett á stóra sviðinu.
.
ISöngleikur
Hrafn Gunnlaugsson
þjóðleikhússtjóri til-
kynnti i gær að Þjóð-
leikhúsið myndi setja
upp söngleik um Dav
ið á komandi leikári.
sssie
Fór 18 holur
á17höggum
Ástkær leiðtogi vor Davið
Oddsson bætti svo um munaði
met Kim ll-Sung, fyrrum leið-
toga Norður-Kóreu, þegar
hannfór 18 holurnar á 17
höggum. Met Kims var að fara
völlinn á 24 höggum, eins og
getið var i þarlendum fjölmiðl-
um á sinum tima, en augljóst
er að leiðtogi Davið er án efa
besti leiðtogi heims i golfi, sem
og öðrum iþróttum.