Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 25. JÚNl2004 Fréttir DV Risið lækkar á íslandi Hæsti tindur landsins, Hvannadalshnjúkur, sem er 2.119 metrar í öllum kennslubókum og spum- ingaspilum, hefur minnk- að. Samkvæmt nýjustu mælingum Jöklarannsókn- arfélagsins er tindurinn 2.111 metrar. Magnús Tumi Guðmundsson, formaður Jöklarannsóknarfélagsin, segir að taka verði mæling- um með varúð. „Fyrri talan 2119 metrar er 100 ára gömul og er ekki mjög ná- kvæm. Svokölluð jökulfönn er mæld og hún getur verið breytileg eftir árstíðum og snjólögum þannig að það má búast við að þetta rokki eitthvað." NeitarVÍSum viðræður Vátryggingafélag íslands fær ekki ósk sína um við- ræður við Akureyrabæ upp- fyUta. VÍS vildi fá að koma að viðræðum um nýjan vá- tryggingasamning Akureyrarbæjar frá og með næstu ára- mótum. Bæjarráð sagði vátrygginga- samning milh Akur- eyrarbæjar og Sjóvá Almennra trygginga vera í gildi og ekki renna út fyrr enn 31. des- ember 2005. „Akureyrarbær mun því á næsta ári gera nýjan vátryggingasamning er taid gildi frá 1. janúar 2006, að undangengnu út- boði í samræmi við inn- kaupareglur Akureyrarbæj- ar. Bæjarráð getur því ekki orðið við erindi bréfritara um viðræður." Skólarfá Einar Oddur Kristjánsson, vara formaður fjárlaga- nefndar, segir að samkvæmt íjár- lögum séu ffarn- haldsskólunum tryggðir nægir peningar. „Eg fuUyrði það, enda settum við inn verulega peninga fyrir þetta ár. Ef það eru hins vegar einhverjir hnökrar á því, þá ræðum við það bara í annarri umræðu í nóvem- ber. Maður getur ekki verið alveg nákvæmur í þessu en það er allt fuUt af pening- um þarna," segir Einar Oddur. Einar segir ástæðu- laust óþol í mönnum: „Þetta eru mjög skrýtnar umræður og ekki eitthvað sem þarf að hafa áhyggjur af núna.“ Guðmundur Magnússon, landsdómari í golfi, vill breyta reglum Golfsambands ís- lands, þannig að foreldrum verði bannað að vera kylfuberar á unglingamótum. Foreldrar hafa lengi verið til vandræða á íþróttamótum barna sinna en um þver- bak keyrði á unglingameistaramótinu í golfi sem haldið var á Hellu á Rangárvöll- um um síðustu helgi. Foreldrar bannaðir Guðmundur Magnússon, landsdómari í golfi, vill að reglum Golfsambands íslands verði breytt á næsta þingi sambandsins og foreldrar verði bannaðir á mótum þar sem börn þeirra keppa. Guðmundur Magnússon var einmitt dómari á unglingameist- aramóti Golfsambandsins sem haldið var á Hellu á Rangárvöll- um um síðustu helgi. Þar lá við slagsmálum fullorðinna, bílar dældaðir, börn grétu og voru jafnvel skilin eftir að móti loknu í geðshræringakasti foreldranna. „Mótið fór að mestu vel fram ef frá eru skilin rifrildi afa eins kepp- endans og föður annars. Þeir rifust heilar níu holur og ég gat ekki annað en reynt að halda þeim frá ungling- unum," segir Guðmundur og deilir skoðun sinni á foreldrabanninu með öllum þeim golfþjálfurum sem voru á mótinu á Hellu. „í sjálfu sér finnst mér í lagi að foreldrarnir fylgist með og séu með nesti handa keppendum en það verður að halda þeim frá íþróttinni sjálfri. Foreld- arnir eiga ekki að vera að skipta sér af því hvaða kylfur unglingarnir nota eða hvernig," segir hann. Alls staðar í Evrópu hafa foreldrar keppenda ekki leyfi til að vera kylfu- berar barna sinna en sú tilhögun er einfaldlega höfð á til að koma í veg fyrir slagsmál foreldrana. Golfsam- band íslands breytti reglum sínum á þingi árið 2000 og leyfði foreldrum að vera kylfuberar á unglingamót- um. Hefur það ekki gefist vel eins og berlega kom í Ijós á unglingameist- aramótinu á Hellu. Þing Golfsambands íslands verð- „Þeir rífmt heiiar níu holur og ég gat ekki annað en reynt að hatda þeim frá ung- ttngunum" ur haldið á næsta ári og er nokkuð ljóst að þá verði reglunum breytt: „Jafnvel má búast við að málið verði tekið upp á formannafundi sam- bandsins sem haldið verður í haust," segir Guðmundur Magnús- son. Uppákomur eins og þær sem urðu á golfmótinu á Hellu eru ekkert einsæmi í íþróttum unglinga. Ekki þarf að fara nema á knattspyrnuleiki unglinga til að sjá foreldra þar ganga af göflunum og verða bæði börnum sínum og íþróttinni til skammar: „Þetta vita aUir sem farið hafa á völl- inn við þessar aðstæður, sama hver íþróttin er," segir Hinrik Hilmars- son, starfsmaður Golfsambandsins. Fu llorðnir kylfuberar Eiga erfitt með að hemja skap sitt á golfvöllum í keppnum barna sinna. Markús Örn í fangelsi! Svarthöfði hefur endanlega misst trú á að íslenska kerfið leiði til skyn- samlegrar niðurstöðu. Nú hefur kerflð ákveðið að varpa í svartholið þeim mönnum sem stóðu fyrir mestum umbótum í menningu og skemmtun í íslandssögunni, fyrir fá- ránlega lága upphæð. Hinir geð- þekku Árni Þór Vigfússon og Kristján Ra Kristjánsson færðu þjóðinni Skjá einn. Og af hverju í fangelsi? Því þeir notuðu peninga ríkisins til að rækta menninguna! w Svarthofði Nú hefur ekki mörgum dottið í hug að varpa í fangelsi þeim sem komu á fót Sinfóníuhljómsveitinni. Samt kostar hún 257 milljónir, og það árlega. Það er meira en Svein- björn gjaldkeri millifærði frá Lands- símanum í rekstur Skjás eins. Hvort ætli fólk meti meira, Sinfóníuna eða Skjá einn? Á sama tíma og Skjár einn Hvernig hefur þú það? ÓskarJ. Óskarsson, tónlistarmaður og verkefnisstjóri hjá Orkuveitunni:„Ég erað drífa mig á gítarnámskeið hjá gítarleikara Deep Purple og síðan á hljómleika með þessari mögnuðu hljómsveit. Verra er að ég fínn ekki gömlu fötin mín, þau hafa líklega fengið fregnir afbreyttu vaxtarlagi og flúið. Annars er mikið að gera hjá mér sem verkefnisstjóri fímmtugsafmælis mins á laugardag. Það verður grill-smoke on the Elliða-water." hefur verið í gangi hefur Sinfónían kostað hátt í milljarð. Liðlega hálft ár er liðið frá því Svarthöfði hlustaði seinast á klass- ískt verk, en hann hefur aldrei heyrt svoleiðis „live". Það var um jólin síð- ustu, en þá sá hann það í Ríkissjón- varpinu og skipti strax um stöð. Og hvað kostar Rflássútvarpið af fé rík- isins? 2,3 milljarða á ári! Svarthöfði myndi sjálfur velja Sirrý fram yfir Gísla Martein. En það skiptir ekki máli. Hann er neyddur til að borga Gísla Marteini ef hann horfir á Sirrý. Og sá sem færði Svart- höfða Sirrý hefur verið dæmdur í fangelsi, út af því að hann notaði al- mannafé. Hvar er skynsemin í því? Svarthöfði krefst þess að Kristján Ra og Árni Þór verði sýknaðir og fag- urkerinn Sveinbjörn hljóti uppreisn æru, auk fálkaorðu. Til vara krefst Svarthöfði þess að Markús Örn Ant- onsson útvarpsstjóri verði undir eins hnepptur í varðhald og í kjölfar- ið dæmdur í fangelsi fyrir að sóa al- mannafé í vitleysu. Svaithöföi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.