Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2004, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDACUR 25. JÚNl2004 Sport DV • Karol Briickner, þjálfari tékk- neska liðsins, gefur lítið fyrir það að hann hafi stillt upp varaliði sínu gegn Þjóðverjum á mið- vikudaginn en hann hvfldi níu leikmenn í þeim leik sem höfðu spilað tvo fýrstu leikina. „Það er ekkert til hjá okkur sem heitir A- eða B-Iið. Það eru allir 23 leik- menn liðsins hluti af tékkneska landsliðinu og hver sem spilar berst fyrir æru sinni. Við tókum leikinn gegn Þjóðverjum mjög alvarlega og þótt einhverjir hafi haldið að við myndum ekki mæta af krafti í leikinn þá hefðu þeir sömu átt að við leggjum okkur alltaf alla fram í leiki, jafnvel vináttulandsleiki," sagði Brúckner. • Patrick Vieira og William Gallas æfðu ekki með franska liðinu í gær og er óvíst hvort þeir verða klárir fyrir leikinn gegn Grikkjum í kvöld í átta liða úrslitum Evrópumótsins í Portúgal. Vieira tognaði aftan á læri í leiknum gegn Sviss og Gallas meiddist á ökkla og varð að fara út af eftir að hafa komið inn á fyrir Willy Sagnol, sem handarbrotnaði og verður ekki meira með á mót- inu. „Það er ómögulegt að segja til um hvort þeir félagar verða klárir í leikinn á morgun. Við munum bíða fram á síðustu mínútu með að ákveða hvort þeir spili gegn Grikkjum," sagði einn lækna liðsins. • Thomas Sorensen, markvörður danska landsliðsins, hlær að ásök- unum ítala um að hann hafi vilj- andi gefið Svíum jöfiiunarmarldð á síðustu mínútunni í leik liðanna á þriðjudaginn en það mark gerði vonir ítala um að komast áfram að engu. „Annað mark Svíanna er ekki mér að kenna. Ég átti ekki mögu- leika á að grípa boltann. Ég náði að slæma annarri hendi í boltann og reyndi að komast fyrir hann við erfiðar aðstæður. Boltinn var háll, völlurinn blautur og það er erfitt fyrir markverði," sagði Sorensen en ítalskir fjölmiðlar hafa kennt honum um að Svíar náðu að jafna á lokamínútunni. • Aleksandrs Starkovs, þjálfari Letta, er himirflifandi yfir ffammi- stöðu sinna manna á Evrópu- mótinu en Lettar voru í skelfilega erfiðum riðli með Tékkum, Hol- lendingum og Þjóðverjum. „Leik- menn mínir gáfu allt sem þeir áttu og þeir voru frábærir fulltrúar þjóð- arinnar. Við vissum að það yrði á brattann að sækja fyrir okkur gegn þessum stórþjóðum en ég held að við getum borið höfuðið hátt. Við æfium okkur að koma aftur og nýta okkur reynsluna sem við fengum núna," sagði Starkovs. Jacques Santini, þjálfari Frakka, mun væntanlega gera breytingu á framherjapari sínu í leiknum gegn Grikkjum. Heimildir herma að Louis Saha muni spila í framlínunni með Thierry Henry í stað Davids Trezeguet. Allt virðist stefna í að Louis Saha, framherji Manchester United, verði í byrjunarliði Frakka gegn Grikkjum í átta liða úrslitum Evrópumótsins í kvöld en leikurinn fer fram á Jose Alvalade- leikvanginum í Lissabon. Saha mun taka stöðu Davids Trezeguet, sóknarmanns hjá Juventus, sem hefur ekki staðið undir væntingum það sem af er. Saha kom gífurlega sterkur inn á sem varamaður í leik Frakka og Svisslendinga og lagði upp annað mark Frakka fyrir Thierry Henry. Þetta var aðeins fjórði landsleikur Saha en hann hefur átt við ramman reip að draga í baráttu sinni fyrir sæti í byrjunarliðinu. Báðar stöður henta mér „Ég var heppinn. Leikurinn var enn jafti þegar ég kom inn á og ég sagði við sjálfan mig að ég yrði að láta eitthvað gerast. Ég hef eytt töluverðum tíma á bekknum og fylgst með hvernig Henry og Trezeguet spila. Ég hef lært mikið á því og ég áttaði mig á því að ég er eins konar málamiðlun á milli þeirra. Ég vil gjarnan bera upp boltann og taka á sprett með hann eins og Thierry gerir oft en ég get alveg eins staðsett mig í miðjunni með bakið í mark andstæðinganna. Báðar stöðurnar henta mér,“ sagði Saha, sem skoraði í fyrstu tveimur landsleikjum sínum, gegn Belgíu og Andorra. Santini hefur ekki verið sáttur við frammistöðu Trezeguet það sem af er og innkoma Saha gegn Sviss- lendingum virðist hafa sannfært Santini um að rétt sé breyta til gegn gríska Uðinu, sem hefur vakið athygli fyrir vaskan og vel skipulagðan varnarleik. Eigum mikið inni Claude Makele, miðjumaður franska liðsins, viðurkenndi í gær að Frakkar ættu mikið inni. „Það er eðlilegt að fólk gagnrýni okkur því að það er orðið svo góðu vant. Við vfljum fara að spila knattspyrnuna sem við erum þekktir fyrir," sagði Makelele, sem var í byrjunarliðinu í sigurleikjunum gegn Englandi og Sviss, en missti af jafnteflisleiknum gegn Króatíu. Hann sagði að liðið þyrfti að bæta varnarleikinn í leiknum í kvöld en liðið hefur fengið fjögur mörk á sig í þremur leikjum. „Við vitum að það er ekki ásættanlegt að fá á sig svona mörg mörk og það er nokkuð sem við þurfum að laga ef við ætlum að komast áfram í mótinu." Gagnrýnir fjölmiðla Robert Pires var harðorður í garð franskra fjölmiðla og sagði þá koma illa fram við franska liðið. Hann hrósaði portúgölskum fjölmiðlum fyrir þolinmæði og sagði Portúgala ekki hafa fengið sömu útreið fyrir tapið gegn Grikkjum og Frakkar, sem unnu tvo leiki og gerðu eitt jafntefli. „Þið eruð alltaf neikvæðir og reynið að setja pressu á okkur," sagði Pires í gær. oskar@dv.is Breytingar í herbúðum þýska liðsins eftir slakt gengi á Evrópumótinu í Portúgal Hvað er málið með þýska stálið? Þjóðverjar eru með böggum hildar þessa dagana eftir ömurlegt gengi knattspyrnulandsliðsins á Evrópumótinu í Portúgal. Liðið er á leið heim eftir tap gegn varaliði Tékka á miðvikudagskvöldið og í gær sagði Rudi Völler, þjálfari liðsins, starfi sínu lausu. Völler, sem tók við liðinu af Erich Ribbeck eftir hörmulegt Evrópumót árið 2000, náði frábærum árangri með liðið í heimsmeistarakeppninni fýrir tveimur árum þegar hann stýrði því í úrslitaleik gegn Brasilíumönn- um sem tapaðist reyndar. Eftir það hefúr leiðin legið niður á við, undirbúningurinn fyrir EM gekk skelfilega og töp gegn Rúmenum og Ungverjum gerðu lítið til að bæta sjálfstraust liðsins. Fyrsti leikur liðsins á EM gegn Hollendingum var góður en eftir það fór að halla undan færi hjá liðinu og jafhtefli gegn Lettum og tap gegn Tékkum gerðu það að verkum að þýska liðið heldur heim á leið fyrr en gert var ráð fyrir í upphafi. Völler sagði á blaðamannafundi í gær að hann teldi nauðsynlegt að fá nýjan mann til að stýra undir- búningnum fyrir HM í Þýskalandi 2006, mann með óflekkaðan orðstír sem þjálfari. Það þarf nýtt blóð „Eftir langa umhugsun þá hef ég ákveðið að segja starfi mínu sem landsliðsþjálfari lausu. Það þarf nýtt blóð í liðið og þótt ég hefði gjarnan viljað stýra liðinu á HM eftir tvö ár þá tel ég þetta það rétta í stöðunni," sagði Völler í gær. Hann sagði frammistöðu hðsins á EM ekki ásættanlega, sérstaklega í tveimur síðustu leikjunum. „Við spiluðum gegn varaliði Tékka en gátum samt ekki unnið. Við höfðum einfaldlega ekki það sem þurfti til. Ég ætla ekki að fara að væla eða vera með afsakanir. Ég er farinn í frí en mun að sjálfsögðu styðja þýska liðið frá áhorfenda- pöllunum." Gerhard Mayer-Vorfelder, forseti þýska knattspyrnusambandsins, vfldi halda Völler áfram en sagðist taka við afsögn hans. „Ég hefði gjarnan viljað sjá Völler leiða þýska liðið á HM á heimavelli eftir tvö ár en það verður því miður ekki," sagði Mayer- Vorfelder. Ottmar Hitzfeld, fyrrum þjálfari Bay- ern Munchen, er talinn lfldegastur til að taka við þýska hðinu af Vöher enda sigursæh þjálfari með eindæmum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.