Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2005, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2005, Blaðsíða 33
32 LAUCARDAGUR 5. MARS 2005 Helgarblað DV DV Helgarblað LAUGARDAGUR 5. MARS 2005 33 ,Við emm stolt hækka Kallakaffi Hilmar Oddsson leikstjóri hefur trú á að þættirnir fallir ikramið hjá fólki. Hlynur Slgurðsson Hlynur segist Iwfá fengið frábærar viótökur v\ö þættinum og þvi kviðir hann engu. Gísli mætir aftur „Þarna fæ ég tækifæri til að upplifa landið á annan hátt" _______ Frískur að vanda Hemmier spenntur að byrja aftur i sjónvarpinu en þátturinn hans Það var lagið hefst 25. mars. Reykjavíkurnætur Jón Agnar segir persónurnar eiga sér fyrirmyndir í raunveruleikanum. Jón Þór Þorleifsson Segir Djúpu knigina bjoða upp á margt og vonast til að landinn falli fyrir breytingunum. Allt í drasli Margrét er með aralanga reynslu af heimilisstörfum og segir gaman að vinna með Heiðari Úrvalið af íslensku sjónvarpsefni mun batna til muna þegar líður á mánuð- inn. Meðal annars mun nýr fasteigna- þáttur líta dagsins ljós, Gísli Einarsson heldur áfram ferð sinni um landið, Hemmi Gunn kemur aftur á skjáinn, ný og endurbætt Djúpa laug er á leið- inni og tvær áhugaverðar leiknar þáttaraðir eru væntanlegar. fslensk ahreying í mikilli sfikn r Tónlistar-, getrauna- og skemmtiþáttur með Hemma Gunn „Þessi þáttur er allt í senn: tónlistar-, getrauna- og skemmtiþáttur," segir Her- mann Gunnarsson sem mun stjórna þættinum Það var lagið sem hefur göngu sína á Stöð 2 þann 25. mars. Þætt- imir hafa gengið í 39 löndum og Hemmi segist hissa á að þeir hafi ekki fyrr ratað hingað til lands. Hann er vongóður um að þátturinn falii vel að íslensku þjóð- arsáiinni þar sem öll þau element sem við leitum eftir séu þama saman komin. „Þetta er fjölskylduþáttur þar sem allir geta tekið þátt. Keppnin verður ekki í aðalhlutverki heldur verður spiluð tónlist sem allir þekkja ásamt getrauna- elementi sem er náttúrulega þjóðar- íþrótt okkar fslendinga. Við fáum til okkar keppendur sem munu spreyta sig ásamt um 200 gestum í sal og svo geta áhorfendur heima tekið þátt með því að senda sms. í hverri viku koma nýir keppendur, allar gerðir af söngvurum, leikurum og aðrir sem telja sig eiga er- indi, svo það er enginn smá fjöldi sem kemur að þessu." Tekur við af Idolinu Þátturinn mun taka við af Idolinu og er Hemmi hvergi smeykur. „Idolið hef- ur náttúrulega slegið í gegn sem er frá- bært enda er ég manna glaðastur ef mönnum gengur vel í sjónvarpi en það kemur alltaf nýtt líf eftir hvem þátt." Hemmi kemur nú aftur í sjónvarp eftir margra ára fjarveru og er spenntur að fá að byrja. „Mér finnst frábært að vera kominn aftur og núna geri ég þetta algjörlega á mínum forsendum. Hingað til hef ég alltaf látið henda mér út í eitt- hvað sem hefur sem betur fer alltaf ver- ið skemmtilegt en núna fékk ég langan tíma til að hugsa mig um. Eftir langa íhugun sá ég að það er hægt að gera eitthvað spennandi úr þessu enda hefði ég ekki annars tekið þetta að mér." Grenjandi stuð framunan Hemmi er náttúrulega þaulvanur öllu sem viðkemur fjölmiðlun og viður- kennir að hann hafi ekki hoppað af spenningi til að byrja með þegar þessi hugmynd var nefhd við hann eins og hann hefði lfldega gert fyrir 20 árum. Aðdáendur hans úr útvarpinu þurfa þó ekkert að óttast þar sem hann ætlar að halda áfram með þáttinn sinn á Bylgj- unni. „Ég er mjög sáttur með minn litía þátt á Bylgjunni enda hefur útvarpið alltaf höfðað mest til mín. Mér finnst gaman að fá að geta verið í sambandi við fólk, hvort sem það er í gegnum út- varp eða sjónvarp, fá að heyra hvað fólki finnst og hvernig því líður. Ég er að fara inn í þetta með allt öðru hugarfari núna og vonast til að geta nýtt mér þá reynslu sem ég hef. Ég mæti ferskur enda er grenjandi stuð framundan. Ég er svo mikiíl lukkunnar pamffll og það er alltaf rífandi stemning hjá mér um leið og ég vakna svo ég kvarta ekki. Ég þarf ekki að hafa fyrir því að láta mér líða vel og ég vona bara að aðrir njóti þess með mér." Börnin mestu aðdáendurnir Þótt Hemmi sé löngu orðinn heims- frægur á íslandi þá er komin upp kyn- slóð sem missti af þáttunum Á tali og kannast því kannsld ekki við Hemma. Sjálfur segist hann spenntur að fá að kynnast þeim enda standi hann vel að vígi þar sem krakkar hafi verið hans stærstu aðdáendur. „Það var kominn tími til að koma með þátt sem höfðar til allrar fjölskyldunnar og foreldrar geta notað tækifærið og kynnt mig fyrir bömum sínum í rólegheitunum heima í stofu," segir Hemmi að lokum. Þættimir Það var lagið verða alls 40 talsins og verða í gangi langt fram eftir hausti svo það er heilmikið fjör fram- undan. Ný og endurbætt Djúpa laug „Við ætíum að leggja meira upp úr deitinu sjálfu í staðinn fyrir að fara í djammferð út á land," segir Jón Þór Þorleifsson, pródúsent Djúpu laugarinnar 2 sem fer í loftið á Skjá einum þann 18. mars með töluvert breyttu sniði. „Leikurinn verður sá sami en við komum til með að fá að kynnast fólkinu betur. SpyriUinn býður þeim sem hann velur heim til sín í mat en áhorfendur heima í stofu geta svo sent sms þar sem þeir gefa sínum uppá- haldskeppanda atkvæði. Ef það er ekki sá sami og spyrill- inn valdi verður hann að bjóða þeim báðum heim en verður svo á ákveðnum tímapunkti að gera upp við sig hverjum hann ætíar að henda út aftur. Spyrilhnn má hafa vini sína eða foreldra með í matarboðinu svo við fáum sjónarhorn þeirra á stefnumótið líka." Jón Þór segir leit að keppendum standa yfir en áhuga- samir geta sent mynd og upplýsingar á djupalaugin@sl.is. „Vtð viljum fá fólk á öhum aldri og til að þetta gangi betur ætlum við að reyna að fá fólk í þáttinn sem hefur sömu áhugamál svo það sé einhver möguleiki að fólk eigi einhverja samleið," segir Jón Þór og bætir við að þessar breytingar séu gerðar á þætt- inum svo Djúpa laugin komi aftur fersk inn. „Það er leiðinlegt að hjakka alltaf í sama farinu og þetta concept býður upp á svo miklu meira. Ég vona að þessi stfll verði miklu skemmtilegri og að landinn muni falla fyrir þessu." Kómedía með raunsæjum ton „Kahakaffi er gamanþáttasyrpa í anda Staupa- steins, Fraser og Friends," segir Hilmar Oddsson kvikmyndaleikstjóri sem leikstýrði þáttunum sem munu hefja göngu sína í Sjónvarpinu í sept- ember. „Þættirnir eru að því leytinu tU lfldr Staupasteini að þeir gerast mest á kaffihúsi. Aðal- persónumar eru eigendur og fastagestir þar," segir Hilmar og bætir við að þættimir séu skrifað- ir af Guðmundi Ólafssyni og aðaUeikarar séu Valdimar öm Flygenring, Rósa Guðný Þórsdótt- ir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Laddi, Davíð Guð- brandsson og ívar Örn Sverrisson, auk fjölda annarra og þættirnir em framleiddir af Saga film. „Þetta er svona kómedía með raunsæjum undirtón að því leyti að persónumar gh'ma við vandamál sem við hin þekkjum öU. Þama er verið að takast á við mm dagleg vandamál svo sem samskipti kynjanna og annað sem skiptir okkur máli, bæði á skemmti- legan og gagnrýninn hátt." HUmar segir að svona þætti hafi sárlega vantað í íslenskt sjónvarp þó vísar að nokkmm hafi verið gerðir. „Ef svona til- raun á að skfla einhverju þá verðum við að fram- leiða fleiri þætti. Okkur hefur aldrei tekist að þróa svona efni svo við læmm eitthvað af þeim og séum ekki aUtaf á byrjunareit. Mig hefur lengi langað að fást við grínið en skort handrit. Húmor er vand með farinn, bæði er skopskyn og smekk- ur manna mismunandi en ég vona að þetta eigi eftir að ná tU breiðs hóps og að farið verði í ffarn- leiðslu á fleiri þáttum. Það væri stórt skref fram á við og ég trúi að þetta gangi vel í fólk enda em þættirnir skemmtUega skrifaðir." I Hjálpa fólki einbeitum okkur að heimUinu," meðalaldur fólks í sjónvarpinu," segir Margrét Sigfúsdóttir, skóla- stýra Hússtjómarskóla Reykjavík- ur, en hún og Heiðar Jónsson snyrtir byrja með þáttinn AUt í drasli á Skjá einum á sunnudaginn. „Við ætíum að hjálpa fólki að koma lög og reglu á heimUið sitt. Rusl og drasl kemur aUtaf á óvart en fólk getur lent í aðstæðum sem vex því hreinlega yfir höfuð og ef maður getur hjálpað þá er það gott," segir Margrét og tekur fram að þættimir eiga ekkert sam- eiginlegt með ameríska þættinum Queer Eye For the Straight Guy sem sýndur hefur verið á Skjá einum heldur er hann byggður á breska þættinum How Cle- an is Your House? „Við «_ stöndum ekkert í því að taka segir Margrét og bætir við að hún hafi mjög gaman af þessu enda með áralanga reynslu af heimUis- störfum og svo sé líka gaman að vinna með Heiðari. „Við emm hvorki ofboðslega grönn né ein- hverjar fegurðardrotmingar held- ur venjulegt fólk á besta aldri sem ætíar að heimsækja fóUdð í land- inu og skemmta okkur vel í leiðinni." Skemmtilegur fasteignaþattur r _ i Leitað að hamingjunni í gegnum djammið „Eins og nafnið gefur til kynna þá skoðum við eignir Æl sem eru til sölu í hólf og gólf og jRp'f opnum augu fólks fyrir þeim Sm möguleikum sem þær hafa Mm' upp á að bjóða," segir Hlynur K Sigurðsson, umsjónarmaður JK fasteignaþáttarins Þak yfir % höfuðið. Þátturinn, sem er 10 M mínútna langur, hefur göngu sína á Skjá einum 15. mars og verður sýndur á hverjum virkum degi. „Ég er sannfærður um að . svona þáttur á eftir að ganga enda hefur fólk gríðarlegan áhuga á , fasteignaviðskiptum, bæði þeir sem eru að leita sér að eignum og á eins \ \ þeir sem eru að meta in stöðu á markaðnum. Ég hef lflca fengið slflc viðbrögð að ég kvíði k engu." K í hverjum þætti ætlar Hlyrí- ur að skoða 4 til 5 íbúðir. „Pæl- W ingin er að reyna að gera þetta WL á skemmtilegan og aðgengileg- « an hátt svo þátturinn sé að- (E gengilegur þeim sem huga að u fasteignaviðskiptum. Ég mun fá álit fagmanna á ýmsum sviðum og fá þá til að svara algengum spurningum." Þeir sem eru að selja geta haft samband við fasteignasjon- . varp@sl.is eða fasteignasalann sinn og hann kemur iRHk. upplýsingunum áleiðis til I „Þættirnir ijalla um fjóra vini sem búa í miðbænum og eru mikið á djamminu," segir Agnar Jón Egilsson leikstjóri þáttanna Reykjavflcurnótta sem eru á dagskrá frá 11. mars á Stöð 2. Þættirnir eru 25 mínútna langir og verða sex talsins. „Þessir krakkar eru á tvítugsaldrinum og festust í mennta- skóladjamminu. Aðalhlutverkin eru í höndum Björns Hlyns Haraldssonar sem leikur metrósexúal wannabe- módelið Ara Óliver. Inga María Valdi- marsdóttir leikur systur hans, Systu, sem er smart týpa og rekur vinsæla barbúllu þar sem þau hanga mikið, ræði að skemmta sér. Hvað þá þegar maður er að leita að lífshamingjunni í gegnum djammið." Vfldngur Kristjánsson leikur bangsann í hópnum og Þórunn Erna Clausen leikur sveitatúttuna sem er ferska blóðið í hópnum. Hver þáttur snýst svo um það sem þau eru að gera um helgina." Agnar Jón segir allar persónurnar eiga sér fyrirmyndir úr raunveruleik- anum þótt hver og ein sé búin til úr allt að tíu manneskjum. .Ævintýri þeirra eru eitthvað sem geta átt sér stað í raunveruleikanum og þótt stundum sé farið yfir strikið er það bara þannig að þegar maður er að djamma þá fara hlutimir oft úr bönd- unum, enda kostar heljarinnar vand- r „Eins og nafnið gefur til kynna þá munum við bara fara út og suð- ur og þangað sem vindurinn blæs okkur," segir Gísli Einarsson, sem framleiðir þættina Út og suður ásamt Frey Amarsyni, en þættim- ir verða sýndir í Sjónvarpinu í lok maí. „Við erum ekki byijaðir að taka upp enda viljum viö hafa þetta sem ferskast. Við leitum að skemmtilegu fólki sem hefur frá einhveiju skemmtilegu að segja. Svona þættir fá oft á sig stimpil að vera furðufuglaþættir en ég er alls ekki á því. Við heimsækjum fólk sem þorir að feta aðra slóð og þó þama sé einstaka sérvitringur inni á milli sem kryddar mannlífið er þetta að mestu venjulegt fólk sem 1 sinnir sínum störfum og áhuga- málum af svo mikilli ástríðu að það er ekki annað hægt en að hríf- ast með. Það er mjög gaman að spjalla við svoleiðis fólk enda er ákveðinn innblástur sem fylgir því og ég vona að þau áhrif skÚi sér að einhveiju leyti á skjáinn." Gfsli segist hafa ákaflega gam- an af þáttagerðinni enda kynnist hann fullt af skemmtilegu fólki. „Þama fæ ég tældfæri til að upplifa landið á annan hátt og kynnast öðm fólki en við sjáum f sjónvarp- inu aö jafiiaði. Við komum ekki með neinum látum og eigum því auðvelt með að nálgast viðfangs- efiúð á afslappaðan og skemmti- legan hátL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.