Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.2000, Blaðsíða 24

Freyr - 01.01.2000, Blaðsíða 24
Mjölvara Dagsetja og merkja bretti uppi og niðri /meta vöruna Dagsetja og merkja Hemax, vítamín, sýrur Ytra eftirlit Þegar komið var á fót eftirliti með loðdýrafóðri, á veg- um SÍL, LBH á Hvanneyri og Bændasamtaka íslands, urðu tímamót í fóðurgerð og fóðurgæðum hér á landi. Vikulegar efnagreiningar gera fóðurstöðunum auð- veldara að fylgjast með eigin framleiðslu og rétta hana af ef frávik varða. Þannig er mun betra fyrir þær að halda réttum orkustyrkleika og efnahlutföllum í fóðrinu en áður. Það tryggir bóndanum betri árangur í fóðrun dýra sinna og þá um leið minni fóðurkostnað. Haldið er áfram hjá Fóðureftirlitinu á Hvanneyri að prófa aðferðir til að greina þráa eða skemmda fitu og baktenuvöxt í fóðri til að veija það frekari skemmdum. Skemmd fita og bakteríur í fóðri eru þeir þættir sem valdið hafa loðdýrabændum mestum skaða undanfarin ár. Miklar vonir em bundnar við að þessar greiningar takist vel og geti þar með hjálpað fóðurstöðvunum að koma í veg fyrir innkaup eða notkun á skemmdu hráefni. Fóðureftirlitið hjálpar þannig fóðurstöðvunum að halda sig við ákveðin hráefnisgæði og fóðursamsetningu og gefur þeim tillögur um æskileg staðla. Eftirfarandi greiningar og æskileg mörk em hafðar til viðmiðunar fyrir stöðvamar. Efnagreiningar Þurrefni g/100g Skekkjumörk Eðlileg skekkja er Aska g/100g innan 3%.Við 5% skekkju þarf að breyta forsendum. Sama Hráprótein g/100g Sama Hráfita g/100g Sama Hrákolvetni g/100g Sama Meltanleg orka Meltanlegt prót. Kcal/lOOg g/100 Kcal Sér efnagreiningar Fríar fitusýrur, (% af fitu) Peroxíðtala, (% 02 í g) TVN, (% af heildar N) Bakteríugreining Heildar kím (fjöldi í g) Sama Sama Efri mörk Minna en 10 Minna en 20 Minna en 2 Efrimörk Minna en 2.000.000 Fóðurflutningar og hreinlæti fóðuríláta við afhendingu Þar sem fóðurstöðvarnar sjá um flutninga þarf að gæta þess að fóðrið komist óskemmt til loðdýra- bændanna. Yfirleitt er fóðrinu ekið út með sérstökum fóðurbíl sem eru með góðan og vel einangraðan tank. Fóðrinu er dælt yfir í móttökutank eða önnur fóðurflát og við dælinguna hitnar fóðrið lítilega. Hitni fóðrið meira en 1°C í flutningi og við dælingu eru hlutirnir ekki í lagi. Einangrun tanksins er þá ekki sem skyldi eða þá að dælan er orðin slitin, nema hvort tveggja sé. Þó að fóðurstöð og starfsfólk skili bændum fersku og góðu fóðri kemur alltof oft fyrir að það er orðið skemmt áður en dýr em fóðmð með því. Astæðan fyrir því er oft sú að nýja fóðrið er látið saman við gamalt fóður, fóður- ílátin hafa ekki verið þrifin áður en fóðrið kom eða að fóð- urílátin em geymd þar sem er sólskin eða annar hiti. Til að koma í veg fyrir þetta þarf fóðurráð stöðvanna að fara í úttektarferðir með fóðurbílnum, óboðað, og birta síðan fóðurkaupendum niðurstöður úr ferðinni. Það er á ábyrgð allra sem koma að og fást við loðdýrarækt, fóðurstöðvar, bændur og aðrir, að sjá til þess að besta nýting fáist á hrá- efni og afúrðir, til hagsældar fyrir greinina. ESB bannar mjólkurhormón ESB hefur ákveðið að banna mjólkurhormóninn rBST. Akvörðunin er rökstudd með því að notkun rBST samrýmist ekki dýraverndarsjónarmiðum. Kúm, sem sprautaðar em með rBST, er hættara við júgurbólgu en öðrum kúm. Þessi hormón, sem einnig finnst í ómeðhöndluðum kúm, er gefinn til að kýmar mjólki meira. Með einni sprautu á dag má auka nyt- ina um allt að 25%. Hormóninn rBST er framleidd- ur með erfðatæknilegum aðferð- um. Hann hefur verið leyfður í Bandaríkjunum hátt í áratug og Bandaríkjamenn hafa aftur og aft- ur reynt að fá því framgengt að ESB leyfi notkun á honum. ESB ákvað snemma á 10. áratugnum tímabundið bann á notkun hans en þing ESB hefur nú ákveðið að bannið skuli vera varanlegt. (Bondebladet nr. 2/2000). Barátta gegn salmonellu Ríkisstjóm Bandaríkjanna lagði seint á síðasta ári fram áætlun um að fækka salmonella tilfellum í eggjum. Um 300 þúsund tilfella af salmonella enteritidis eru skráð þar í landi árlega og er talið að kostnaður vegna sjúkdóma af völdum salmonella nemi á bilinu 150 til 870 milljónum dollara á ári. (Internationella Perspektiv nr. 40/1999). 20- FREYR 1/2000

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.