Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.2000, Qupperneq 38

Freyr - 01.12.2000, Qupperneq 38
Það veltur síðan á fram- leiðsluaðstæðum á hverju búi hvort skynsamlegt er að hámarka fóður- framlagið á lítra, mjólkurkú eða ha ræktarlands. Áhrif sláttutíma og endurræktunartíðni á framlag fóðurs Akvarðanir um sláttutíma og tíðni endurræktunar eru veigamest- ar varðandi ákvörðun á gæðum fóð- urs. Gæðafóðri má ná með því að slá tún snemma eða endurrækta tún ört og auka þannig hlutfall orkuríks sáðgresis í fóðrinu. Endurræktun túna kostar fjármagn sem fylgir því að vinna upp tún og sá nýjum teg- undum í það. Snemmslátturinn kemur niður á endingu sáðgresis og dregur úr uppskeru og því verður hvert þurrefniskg af snemmsleginni uppskeru dýrara en ef seinna er slegið. Verðmætið eykst hins vegar vegna hærri meltanleika og þar með hærra fóðrunarvirðis. Nokkurt samspil getur verið á milli heppi- legasta sláttutíma og endurræktun- artíðni og jafnvel á milli burðar- tímaskipulags, afurðastigs, endur- ræktunartíðni og sláttutíma. Hér verður framlag fóðurs á lítra skoð- að við mismunandi afurðastig og burðartímaskipulag. Burðartímaskipulagið er tvenns konar: 1 Haustburður: 80% kúnna bera 1. október, 10% 1. febrúar og 10% 1. júní. 2 Jafn burður: 34% kúnna bera 1. október, 33% 1. febrúar og 33% 1. júní. Afurðastigin eru tvö: 1 4500 kg meðalnyt 2 5500 kg meðalnyt. Miðað er við tveggja slátta kerfi þar sem seinni sláttur er sleginn 20. ágúst og fyrri sláttur á bilinu 15. júní til 25. júlí. Endurræktunar- kerfin eru á 5-10-20 og 40 ára fresti. * Aðrar forsendur: * Greiðslumark 100 þús. lítar * Kjamfóðurverð 30 kr./FEm * Fymingar em núllaðar * Landleiga er engin * Tapávellil5% * Rýrnun fóðurgæða í geymslu 5% * Heygjöf m. beit 2 kg/kú/dag * 25% af uppskeru endurræktunar- árs nýtist * Við endurræktun er sáð vallar- foxgrasi * Miðað er við rúlluverkun heys. Við haustburð virðist ekki vera mikill munur á framlagi fóðurs eftir afurðastigi (/. mynd). Þó virðist lægra afurðastigið skila heldur hærra framlagi. Þetta er eðlilegt miðað við forsendur útreikning- anna þar sem meira kjamfóður þarf við hærra afurðastigið en á móti kemur að hlutfall viðhaldsfóðurs verður lægra með meiri afurðum og það skilar sér til baka í minna flat- armáli túna (5. mynd). Við jafnan burð skilar lægra afurðastigið hærra fóðurframlagi og einnig virðast vera samspilsáhrif á milli endur- ræktunartíðni og sláttutíma (2. mynd). Á 2. mynd sést að hag- kvæmni tíðrar endurræktunar vex með vaxandi afurðum sem ekki þarf að koma á óvart. Hagkvæm- asti meðalsláttutími er í öllum til- fellum á bilinu 25. júní til 5. júlí (miðað við að skrið vallarfoxgrass sé viku af júlí). Jafn burðartími skilar að jafnaði hærra fóðurframlagi en haustburður sem bendir til þess að greiðsla fyrir vetrarmjólk nái ekki að greiða mun á framleiðslukostnaði. Á 3. mynd má sjá áhrif meðalnyt- ar á fóðurframlag og landnotkun. Með aukinni meðalnyt dregur úr landþörf þar sem hlutfall viðhalds- fóðurs fer lækkandi og gróffóðri er skipt út fyrir aðkeypt kjamfóður. Gripum fækkar einnig svo að fóð- urframlag deilt á gripi og ræktað land fer hækkandi. Erfitt er að meta kostnað þess að nota stærra ræktunarland þar sem fjölmargir þættir spila inn í. I fyrsta lagi er erfitt að meta langtímaleigu ræktar- lands sem líta má á sem afskriftir frumræktunarkostnaðar. í öðru lagi verður að huga að launakostnaði vegna fóðuröflunar sem ekki er tek- inn inn í útreikningana. Annað, -e—5 ár —h—10 ár —e—15 ár —x—20 ár -e—5 ár —h—10ár —e—15ár —*—20 ár 1. mynd. Framlag fóðurs við mismunandi endurrœktunartíðni og sláttutíma -haustburður, 4500kg meðalnyt til hœgri og 5500 kg meðalnyt til vinstri. 38 - FREYR 11-12/2000

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.