Freyr

Volume

Freyr - 01.06.2003, Page 4

Freyr - 01.06.2003, Page 4
Viðtal við Grétar Einarsson, deildarstjóra Bútæknideildar RALA á Hvanneyri verkfæra og áhalda og vann þar merkilegt brautryðjendastarf. Þar má nefna smíði á plógum og tindaherfum, sem og handverk- færum og fleiru, sem jafnframt voru aðlöguð að íslenskum að- stæðum. Fljótlega upp úr aldamótunum kemur svo hestasláttuvélin til sög- unnar, sem var mesta bútækni- byltingin á þeim tíma. Arið 1921 var haldin búnaðarverkfærasýn- ing, sem svo var kölluð, í Reykja- vík í Gróðrarstöðinni og Kennara- skólanum við Laufásveg. Þar var þúfnabaninn sýndur í fyrsta sinn en Sigurður Sigurðsson, búnaðar- m-álastjóri, stóð fyrir því að flytja hann inn frá Svíþjóð. Þar sáu menn stórfenglegt tæki til að vinna á þýfinu og virðast hafa tek- ið því með mikilli hrifningu. Tækið var hátt í 7 tonn að þyngd og knúið með steinolíuvél. Sagan segir að þúfnabanann megi rekja til fyrri heimsstyrjald- arinnar og að vélin hafi verið upp- haflega byggð til að draga fall- byssuvagna en síðan þegar stríð- inu lauk var vélin tekin til land- búnaðamota. Hjólin vom breikk- uð og jarðtætari tengdur við afl- vélina. Sá tætari er mjög líkur í byggingu þeim tætumm sem enn em notaðir. Það vom fluttar inn 6 þúfnaban- ar en þeir voru aðallega notaðir á Suðvesturlandi, Skeiðunum og í Eyjafirði, en aðalvandinn við notkun þeirra var sá að erfitt var að flytja þá á milli staða. Síðan er það að um 1928-’29 Grétar Einarsson hefur um áratuga skeið starf- að að málefnum bú- tækni hér á landi, hvort sem er að rannsóknum, leiðbeiningum eða kennslu. Fréttamaður Freys leitaði nýlega á hans fund til að fræðast um þau yf- irgripsmiklu mál, sem á engan hátt verða gerð full skil í einu viðtali. Grétar lauk kandidatsprófi frá Hvanneyri árið 1968, prófí frá 4. hluta í bútækni frá Búnaðarhá- skólanum i Kaupmannahöfii árið 1971 og doktorsprófi frá sama skóla árið 1974. Sama ár var hann ráðinn sérfræðingur við Bútækni- deild RALA á Hvanneyri og frá 1985 deildarstjóri. Hvenær má segja að bútœkni- rannsóknir hejjist hér á landi? Það má segja að bútækni hefji innreið sína hér á landi með stofii- un Búnaðarskólans í Ólafsdal árið 1880. Torfi Bjamason, skóla- stjóri, lagði áherslu á smiði bús- Grétar Einarsson og kona hans, Hafdís Pétursdóttir. (Freysmynd). Bútækni og bútæknirann- sóknir 14 - Freyr 5/2003

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.