Fylkir - 04.06.1965, Blaðsíða 4
Reykvíkingar vakna
Síðari hluti leiðara Alþýðublaðs-
ins 30. maí s. 1. ber fyrirsögnina
„Fiskasafn”. Endar leiðari blaðsins
á þessa leið:
„Fiska og sjávardýrasafn gæti
gegnt mjög þörfu hlutverki í sam-
bandi við náttúrufræðikennslu í
skólum, auk þess sem slík söfn
gegna ómetanlegu hlutverki í þágu
alls almennings.
Rekum nú af okkur sly'ðruörðið
og vindum að því bráðan bug að
koma upp safni lifandi fiska hér í
höfuðborginni eða grennd. Stofnun
slíks safns er löngu tímabær og
með öllu ástæðulaust að láta fram-
kvæmdir dragast lengur en þegar
er orðið.“
Þetta er eins og fyrr segir úr
leiðara Alþýðublaðsins 30. maí s.' l.
Án efa hefur ritstjórn Alþýðublaðs
ins frétt um uppbyggingu fyrirhug-
aðs safns lifandi fiska hér í Eyjum
og telja ósæmilegt að höfuðborg
landsins verði þar eftirbátur, og er
að sjálfsögðu ekkert við því að
segja. Þeir hafa sinn metnað fyrir
sína borg eins og við höfum okkar
metnað fyrir okkar bæ. En leiðari
Alþýðublaðsins og rök þess eru stað
festing á samþykktum bæjarstjórn-
ár urh upþbyggingu fiskasafns í
Vestmannaeyjum var rétt og raun-
>\
hæf. Vestmimhaeyingar hafa áður
gerzt brautrýðjendúr. Má þar nefna
Bátaábyrgðarfélagið, sem er óum-
deilanlegá • elzta vátryggingarfélag
landsins og Björgunarfélagið, sem
einpig er elzta félag sinnar tegund-
ar á landinu og undanfari og for-
dæmi hinnar skipulögðu björgunar
starfsemi, sem nú hefur aðalbæki-
stöð ,sína í höfuðborg landsins, og
fleira mætti nefna, sérstaklega í
sambandi við ýms félagasamtök út-
gerðarmanná, sem fordæmi urðu
útgerðarmönnum annarsstaðar.
í sambandi við fyrirhugað náttúru
og fiskasafn hér í Eyjum, skal ég
geta þess, að uppbygging þess mið-
ar áfram með eðlilegum hætti og
standa vonir til að hægt verði að
opna það almenningi til sýnis nú í
haust. Persónulega læt ég mig litlu
varða nagg einstakra aðila út í
þetta fyrirtæki. Eg er alveg sann-
færður um, að ákvörðun bæjarstjórn
ar um stofnun þess var bæði tíma-
bær og raunhæf og mun verða til
menningarauka fyrir byggðarlagið.
Eg sé af síðasta Framsóknarblaði
að ritstjórn' þess mun hlakka mikið
yfir að uppbýgging safnsins fari
forgörðum. Stafar'þessi tilhlökkun
blaðsins af því, að glerrúða hafi
sprungið 'í einu fiskabúranna. Að
sjálfsögðu tefur þetta ekkert fyrir
framgangi málsins, en sannar okk-
ur enn einu siniii,'' að of mikill
sparnaður börgar slg sjaldnast. Á-
gizkanir blaðsins um miiljóna-kostn
áð eru áð Sjálfsögðu ýkjur, en þó
mikil hógværð við fullyrðingar
framsóknarmanna, sem í upphafir
héldu því fram að stofnunin myndi
kosta 40 til 50 milljónir króna, og
miðuðu þá við það sem þeir töldu
kostnað við fiskasafnið í Bergen.
Annars var ég að bíða eftir skrif-
um í Framsóknarblaðinu í svipuð-
um anda og nú er fram kominn ,því
eins og ég hef áður bent á, að þeg-
ar Framsóknarblaðið byrjar að
andæfa gegn framgangi mála eða að
reyna að gera þau tortryggileg, er
það orðin nokkuð öruggur mæli-
kvarði á að rétt sé stefnt. Vona ég
að svo fari einnig um andóf þeirra
gegn uppbyggingu fiskasafnsins.
Guðl. Gíslason.
Bæjarfréttir.
V_________ ________)
Landakirkja.
Guðsþjónustur: Hvítasunnudag kl.
10,30 f. h. og annan í hvítasunnu kl.
2 e. h. Séra Jóhann Hlíðar.
Betel.
Samkomur báða hvítasunnudag-
ana kl. 4,30 e. h. Ræðumenn: Bræð-
ur safnaðarins. Allir velkomnir.
Ný rakarastofa.
Laugardaginn 29. f. m. opnaði
Ragnar Guðmundsson nýja og vist-
lega rakarastofu að Bárugötu 5.
Ragnar lærði iðn sína í Reykja-
vik hjá Agli Valgeirssyni, en hef-
ur búið hér í Eyjum um þriggja
ára skeið.
Fjallgöngur unglinga.
Að undanförnu hefur mikið verið
um það, að unglingar og jafnvel
börn færu í fjöll til eggjatekju.
Því miður hefur viðskilnaður
þessa fplks eftir ferðir sínar um
fjöllin oft verið ámælisverður.
Það er t. d. algjörlega vítavert
athæfi að skilja eftir bönd og lín-
ur víðsvegar um björgin, sem óvit-
ar fara svo að glepjast til að
klöngrast eftir.
Það er lágmarkskrafa til þeirra,
er um björgin fara, að þeir bjóði
ekki hættu heim, með því að skilja
þannig við björgin.
Þá hefur og verið nokkuð um
það, að fugl svo sem fýll væri skot
inn i berginu, þar sem hann liggur
á eggi sínu.
Slíkt háttarlag er svo fúlmann-
legt, að orðum tjáir ekki að nefna.
Sniábátar og trillur.
Nokkuð er að færast hér í vöxt,
Vorhdtíð Eyverja - F. U. 5.
verðuir haldin í Samkomuhúsinu á hvítasunnudag.
..T]
Barnaskemmtun kl. 4 e. h.
Kvöldskemmtun kl. 8,30 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Ávarp.
2. Logar leika og syngja.
3. Ómar Ragnarsson skemmtir.
4. Einleikur á píanó: Martin Hunger
5. Magnús Magnússon: Gamanvísur.
Hlé.
6. Skemmtiþáttur: 5 Logar.
7. Hljóðfæraleikur: Arnór og Gísli.
8. Magnús Magnússon skemmtir.
9. Ómar Ragnarsson.
10. Lokadansinn: Logar leika.
Kynnir er Áki Haraldsson.
Dansleikur frá kl. 24 til kl. 4.
Sala aðgöngumiða hefst á laugardag kl. 2—6 e. h. og
hvítasunnudag kl.> 2 e. h. — Aðgangseyrir á barna-
skemmtunina kr. 25.
NEFNDIN.
að menn eigi sér til gamans litla
báta.
Aðstaða fyrir slíka báta hér í
höfninni er því miður næsta bág-
borin.
Óhreinindin eru þessum bátum
sem öllum öðrum vægast sagt
hvimleið.
Þó kastar nú tólfunum þegar
kemur til kasta barna og unglinga,
sem stöðuglega hafa leik af að leysa
bátana, brjóta upp vélarkassa þeirra
og skemma að meira eða minna
leyti.
Virðist sem börn og unglingar
geti átölulaust tekið hvaða smábát
sem er traustataki og stjakað sér
á þeim um höfnina, sem fleytur
þessar væru eitthvert almennings
fleytitæki.
Hér er ekki einungis um stórvíta
vert skemmdarstarf að ræða, held-
er er samfara þessu stókostleg slysa
hætta, sem bægja verður frá.
Smábátasýli og lægi.
Það er vissulega orðið tímabært,
að smábátaeigendur myndi samtök
til að koma hér upp smábátaskýli
og þá um leið bóli.
Einhverjum datt í hug ,að þetta
mætti reisa inni á Eiði við gamla
sundskýlið.
Gaman væri að úr yrði, énda yrði
að vænta aðstoðar og fyrirgreiðslu
hafnaryfirvaldanna hér í því máli.
Skemmtiferð
Slysavarnadeildin Eykyndill hef-
ur ákveðið ferð miðvikudaginn 23.
þ. m. — Flogið verður að Kirkju-
bæjarklaustri. — Allar nánari upp-
lýsingar gefa Sigríður Magnúsdóttir
sími 2004. — Anna Halldórsdóttir,
sími 1338. — Elínborg Pétursdóttir,
sími 1133. — Lilja Sigfúsdóttir,
sími 1683.
Ábyrgðarm.: Sigfús J. Johnsen.
Vantar bifreiðarstjóra strax.
• Olíusamiag Vestmannaeyja