Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Blaðsíða 314
312 Árbók VFÍ/TFÍ 2000/2001
Mæld útgildi hröðunar
I töflu 3 eru sýnd fyrir hvern mælipunkt og stefnu, mæld útgildi hröðunar, PGA, svokallað
heildarafl, P, og loks varandi, Td. Heildaraflið er skilgreint sem tegrið af hröðunarröðinni í
öðru veldi, sjá nánar skilgreiningu í hcimild [ 10]. Varanda jarðskjálftans má reikna á mis-
munandi hátt. Hér er valið að byggja á 2% og 92% vikmörkum heildarafls raðanna, eða
m.ö.o. 90% af afli tímaraðarinnar skilar sér á þeim tíma sem varandinn segir til um, sjá [9].
Af töflunni má ráða að mikill munur er á PGA- og P-gildunum á vestur- og austurstöpli
brúarinnar. Þetta gildir íyrir báða jarðskjálftana og allar stefnur. Þetta bcndir til sveiflumögn-
unar í hraunlögunum ofan á vatnasetinu, sjá nánar [10]. Munurinn á útgildum hraða er mun
minni þó hann sé ekki sýndur í töflunni og útgildi færslna eru mjög svipuð á austur- og
vesturbakkanum. Af töflunni má einnig ráða að hvorki PGA né P eru marktækt minni í stál-
boganum en í stöplunum, þrátt fyrir jarðskjálftaeinangrunina. Á móti kemur að ekki er
heldur um sveiflumögnun að ræða í stálboganum, sem hefði mátt búast við ef hann hefði
verið óeinangraður. Varandinn er svipaður á báðum stöplum, en einkennandi er að varandinn
fýrir sveiflur í þverstefnu á miðri brú er mestur, sem er eðlilegt.
Tafla 3. Mœld útgildi hröðunar, PGA, og P í Þjórsárbrúnni í Suðurlandsskjálftunum 2000.
Mælistaður og stefna Jarðskjálfti 17. júní Jarðskjálfti 21. júní
___________________________________PGA(g) P(g2s) Td(s) PGA(g) P(g2s) Td(s)
Vesturstöpull
Langstefna 0,53 0,089 4,4 0,84 0,178 3,3
Þverstefna 0,37 0,085 4,7 0,77 0,108 4,4
Lóðrétt 0,17 0,010 6,3 0,42 0,069 4,5
Austurstöpull
Langstefna
Þverstefna
Lóðrétt
Stálgrind
Yfir legu að vestan - Langstefna 0,30 0,039 8,4 0,66 0,143 3,6
Yfir legu að vestan - Þverstefna 0,41 0,089 5,7 0,73 0,101 4,6
Á miðri brú - Þverstefna 0,26 0,046 11,2 0,44 0,096 8,7
Á mynd 4 er sýnd mæld hröðun í langstefnu á vesturstöpli og yfir legu á vesturstöpli í
jarðskjálftanum 21. júní. Ennfremur er sýnd mismunafærsla í langstefnu á milli stöpulsins
og stálbogans. Utgildi mismuna-
færslunnar er 65 mm sem passar
vel við vegsummerkin um að stál-
boginn hafi slegist í landbrýmar
og sömuleiðis að einn togbolti í
einu togbandanna slitnaði. Á
mynd 5 eru tilsvarandi tímaraðir
fyrir þverstefnu í sama jarð-
skjálfta sýndar. Hér er útgildi mis-
munafærslunnar aðeins 16 mm og
því ljóst samkvæmt þessu að
áraunin í þá stefnu hefur verið
0.80
S 0.40 -
á 0 00
1 -0.40
-0.80 L
Mynd 4. Mœld hröðun í langstefnu á vesturbakka í stöpli
og ofan legu í jarðskjálftanum 21. júní 2000. Ennfremur,
mismunafœrsla í langátt milli stöpuls og stálboga.
0,22 0,024 4,9 0,54 0,093 2,5
0,14 0,010 4,9 0,45 0,051 2,7
0,06 0,003 8,6 0,28 0,030 4,0