Neytendablaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 20
Rusl eða
verðmæti?
kg/mann/viku af matar-
leifum. Ef pappírsumbúð-
ir (undan morgunkorni
o.þ.h.) eru teknar með
verður magnið 1,65 kg og
ef allur garðaúrgangur er
tekinn með 2,20 kg.
Sjálf jarðgerðin virðist
einnig geta gert sig þótt
vetrarkuldi ríki. Hvað eft-
ir annað mældisl hilastig í
jarðgerðarmassanu á bil-
inu 60-75°C veturinn
1994-95 sem þó var sá
kaldasti á höfuðborgar-
svæðinu síðan 1920.
Gæði afurðarinnar virðast
einnig vera þokkaleg. I
samanburði við mold sem
seld er sekkjuð út úr búð
voru t.a.m. áburðarefni í
mun hærri styrk í afurð
jarðgerðarinnar. Þá bendir
flest til þess að sorpflokk-
unarkerfi af þessu tagi þar
sem kröftum er beint að
jarðgerð lífræns úrgangs,
megi reka sem ábatasama
starfsemi.
Verkefnið í Hafnarfirði
hefur að mestu svarað
þeim spurningum sem
lagt var upp með. Fyrir-
hugað er að víkka verk-
efnið út og taka inn hverfi
þar sem er fjölbýli af
ýmsum stærðum og
ganga úr skugga um hvort
einhverjar þær aðstæður
séu fyrir hendi í tjölbýli
sem ekki er hægt að yfir-
stíga. Verði niðurstöður
af því jákvæðar er ekkert
því til fyrirstöðu að fram-
kvæma þetta fyrirkomu-
lag í heilu sveitarfélagi.
Svörin við spurningun-
um hér í byrjun verða því
þau að í bananahýðinu
eru fólgin verðmæti og að
það getur borið ávöxt á
ný í formi frjósams jarð-
vegsbætis, svo framarlega
sem eitthvert kerfi verði
hannað utan um flokkun
og hirðingu lífræns úr-
gangs. Um ljósaperuna
gegnir öðru máli; enginn
sjáanlegur endurvinnslu-
farvegur er fyrir hana og
hún er því best geymd á
einhverjum góðum urð-
unarstað.
MteÉlk )i
! 1 •'Aét' J ' • j
Stjórn Neytendasamtakanna 1996-1998. Nokkra stjórnarmenn vantar á myndina en alls er
stjómin skipuð 21 manni úr öllum landshlutum.
Mikil endurnýjun í stjórn
Drífa Sigfúsdóttir var kjörin formaður Neytenda-
samtakanna 1996-1998 á nýafstöðnu þingi sam-
takanna í stað Jóhannesar Gunnarssonar sem
gegnt hafði embætti formanns síðan 1982.
Jóhannes gaf ekki kost á sér til endurkjörs en gegnir
áfram starfi framkvæmdastjóra eins og hann hefur
gert undanfarin ár. Jón Magnússon er nýr varafor-
maður samtakanna.
Mikil endurnýjun varð í stjóm
en hana skipa, auk Drífu og
Jóns:
Reykjavík: Ágúst Ómar
Ágústsson, Bjöm Guðbrandur
Jónsson, Einar Jón Ólafsson,
Helga Ólafsdóttir, Hrönn
Marinósdóttir, Mörður Árna-
son, Sólveig Edda Magnús-
dóttir.
Reykjanes: Elísabet Karls-
dóttir, Njarðvík, Hallgrímur
Guðmundsson, Kópavogi,
Sverrir Arngrímsson, Garða-
bæ, Þráinn Hallgnmsson,
Kópavogi.
Vesturland: Ámý Ólína
Ármannsdóttir, Akranesi.
Vestfirðir: Þorgerður Ein-
arsdóttir, Isafirði.
Norðurland: Jón Karlsson,
Sauðárkróki, Pálína Hjartar-
dóttir, Húsavík, Vilhjálmur
Ingi Árnason, Akureyri.
Austfirðir: Guðrún Jóns-
dóttir, Höfn.
Suðurland: Kjartan
Ágústsson, Selfossi, Valgerð-
ur Fried, Selfossi.
Framkvæmdastjóm skipa
þau Drífa Sigfúsdóttir, for-
maður, Jón Magnússon,
varaformaður, Ágúst Ómar
Ágústsson, ritari, Einar Jón
Ólafsson, Hrönn Marinósdótt-
ir, Mörður Ámason, Sverrir
Amgrímsson og Þráinn Hall-
grímsson.
Jóhannes Gunnarsson lét af fonnennsku eftir langan feril í
embætti formanns og var kvaddur með virktum. Hann er hér
með hinum nýjafonnanni samtakanna, Drífu Sigfúsdóttur,
bœjarfulltrúa i Reykjanesbœ.
20
NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1996