Kjalnesingur - 01.12.1930, Blaðsíða 5
-5-
]?in er æði sárt að sakna,
sonur, bróðir, vinur kær,
stillingin og brosið blíða
birtu á Þina minning slær.
Sveininn unga amma græt-ur,
eins og skýið hylur sól
bak við djúpa sorg ér sigur,
sigur Þennan lifið ól.
Þvi er hinsta Þrautin unnin,
Þina gegnum von og trú.
Fyrir handan dimmu og dauða
dýrlegt áttu geisla bú.
Drottinn vakir yfir öllu;
éftir kalda. dauðans nótt,
ástkær vinur, eyðast meinin,
aftur morgnar, sofðu rótt.
Hjálmar Þorsteinsson.
-----x-----
SÍÐASTI FUNDUR "M. I. STEFNIS".
Stefnir hélt fund 13. Þ.m. Þar sátu 24 meðlimir.
11 Þeirra gengu í félagið á fundinum. Meðal Þeirra
voru 8 stúlkur. - Nefnd hafði verið skipuð til að
endurskoða lög félagsins. Lagði hún tillögur sinar
fyrir fundinn og voru feer saraÞyktar. Ennfremur var
samÞykt, að gefa "Kjalnesing" út fjölritaðan, og
áskorun til stjómarinnar um að halda fundina á
heppilegri tima en áður.
Siðan fór fram starfsmanna kosning. 1 aðalstjórr
hlutu kosningu Sigurður Helgason, Baldvin Pálsson
og Hjálmar Þorsteönsson, en til vara Lárus Halldóra
son, 6laf\xr Bjamnson og Sigurður Magnússon. Full-
trúar i "Félagasamband Kjalameshrepps" voru kosn-
ir Sigurður Helgason og Guðmundur Gislason. Til aö
mæta á Þingi í.S.í. Lárus Halldórsson. Ritstjóri
Sigurður Helgascax