blaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 4

blaðið - 19.10.2005, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2005 blaöiö FL Group og Fons funda um Sterling Viðræður standa nú yfir á milli FL Group og Fons eignarhalds- félags um kaup FL Group á flugfélaginu Sterling, en það er í eigu Fons. Niðustöðu er að vænta á næstu dögum. Kaupverð er á huldu en danska blaðið Börsen spáir því í gær að greitt verði fyrir félagið með hlutum í FL Group. Einnig kemur fram í Börsen að heim- ildir hermi að Pálmi Haralds- son, eigandi Fons, geri það að skilyrði að Sterling verði óháð dótturfélag FL Group með höf- uðstöðvar í Kaupmannahöfn. Viðskipti Gott uppgjör hjá Kreditt- Banken Hagnaður KredittBanken, sem er dótturfélag Islandsbanka í Noregi, nam ui milljónum íslenskra króna fyrir skatta á þriðja ársíjórðungi þessa árs. Hagnaðurinn fyrir skatta var hins vegar 154 milljónir, samkvæmt tilkynningu til Kauphallar Islands í gær. Hagnaður bankans fyrir afskriítir og skatta fyrstu níu mánuði ársins nemur hins veg- ar 356 milljónum króna, sem er mun betri afkoma en í fyrra þegar hann var 203 milljónir. Áfengisauglýsingar: Opinberar stofnanir vinna gegn hvor annarri Óskýr áfengislög gera það að verkum að mikið ósamrœmi er milli aðgerða opinberra stofnana. Áfengisverslanir ÁTVR hafa á und- anförnum árum sífellt verið að auka markaðssókn sína með margvísleg- um kynningum og þemadögum. Á sama tfma og þetta á sér stað berst önnur ríkisrekin stofnun, Lýðheilsu- stöð, gegn áfengisauglýsingum í fjöl- miðlum og vill setja skýrari lög um markaðssetningu áfengis. Bjórframleiðendur ganga langt Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvarinnar, segir þessar tvær stofnanir vinna eftir mismun- andi lagaumhverfi og markmiðin séu ólík. „Við vinnum eftir ákveðnu lagaumhverfi og okkar markmið eru mjög skýr þ.e. við viljum koma í veg fyrir skaðlega neyslu áfengis og við verðum að vinna samkvæmt því. ÁT VR verður að svara fyrir það sem þeir eru að gera.“ Anna segir óskýr lög gera það að verkum að áfengisframleiðendur geti nýtt sér smugur í lögunum til að kynna vör- ur sínar og að það geti haft alvarleg- ar afleiðingar fyrir ungt fólk. Hún segir markaðskynningu ÁTVR vera minna áhyggjuefni miðað við margt annað sem er í gangi. „Þeir eru með kynningar og miðað við hvernig menn geta auglýst í dag þá held ég að ÁTVR hafi ekki gengið lengra en t.d. bjórframleiðendur. Ég held að þeir séu að ganga manna lengst f dag.“ Ekki auglýsingar Sigrún ðsk Sigurðardóttir, aðstoðar- forstjóri ÁTVR, segir að þar á bæ líti menn ekki á kynningar eða þema- daga sem sérstakar áfengisauglýsing- ar. Hjá þeim er það liður í að bæta samskipti við viðskiptavini og bjóða þeim upp á betri þjónustu. „Við höf- um ekki litið á þetta sem áfengisaug- lýsingar. Við höfum verið að líta á þetta sem tilbreytingu fyrir okkar viðskiptavini." Sigrún segir það ekki á stefnuskrá ÁTVR að draga úr þessari þjónustu og ekki sé vilji til að hverfa aftur til gamla formsins þar sem áfengi var kyrfilega staðsett í hillum fyrir aftan afgreiðsluborð. Auglýsing í glugga Vínbúðarinnar í Austurstræti. Óskýr lög valda furðulegu ósamræmi hjá hinu opinbera. Alþingismenn: Vilja að æðstu embættismenn hljóti sömu eftirlaunakjör og aðrir Eftirlaunafrumvarpið olli kostnaðarauka upp á 650 milljónir króna á árinu 2004. Þingmenn, jafnt ístjórn sem stjórnarandstöðu, vilja breyta lögum um eftirlaun æðstu emb- œttismanna. Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, segir aðeins eitt um þetta mál að segja. „Auðvitað á að nema þessi lög úr gildi hið fyrsta, þau áttu aldrei að koma til framkvæmdar, og það á að setja þetta fólk, eins og annað, inn í almenna lífeyrissjóði. Það er til stað- ar Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis- ins og þar eiga þingmenn og ráðherr- ar að vera, eins og aðrir starfsmenn hins opinbera. I mínum huga er eng- inn millivegur í þessu efni, þannig á þetta að vera og ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar.“ Ögmundur kann engar skýringar á því hvers vegna kostnaðurinn við frumvarpið hefur farið svona fram úr áætlunum. „Því verða þeir að svara sem bera ábyrgð á þessum útreikningum." Þingmenn njóti almennra réttinda Pétur H. Blöndal er sammála Ög- mundi í þeim efnum að þingmenn eigi að njóta almennra lífeyrisrétt- inda en hann vill að þeir geti valið sér Hfeyrissjóð. „Ég hef flutt frum- varp í tvígang um það að þingmenn njóti almennra lífeyrisréttinda. Ég studdi eftirlaunafrumvarpið á sín- um tíma vegna þess að það var ákveð- in nálgun í þá veru í því, að það væri auðveldara að aðlaga réttindin að þeim sem almenningur nýtur eftir samþykkt þess. Þá voru einnig tek- in út ýmis konar sérákvæði eins og í sambandi við makalífeyri. Ég lagði það einnig fram í mínu frumvarpi að það yrði metið til launa hvers virði lífeyrisréttindin væru og ég lagði raunar líka til, í sambandi við opinbera starfsmenn almennt, að það yrði skoðað hvers virði lífeyris- réttindin væru. Mér finnst að þegar menn eru með einhver sérstök rétt- indi, eins og opinberir starfsmenn í B deildinni, sem eru meira virði en sýnist, þá eigi að reikna það út svo það liggi á borðinu.“ ■ Flytjum inn kanadísk verksmiðjuframleidd einingahús. Framleidd miðað við íslenska byggingarreglugerð. www.einingahus.is Emerald ehf sími: 698 0330 Internetið Bilun hjá Og Vod- afone Bilun varð í netbúnaði Og Vodafone í gær sem olli um klukkutíma sambandsleysi á netinu hjá hluta viðskiptavina fyrirtækisins. Að sögn Gísla Þorsteinssonar, upplýsinga- fulltrúa Og Vodafone, kom upp bilun í netbúnaði og á meðan viðgerð stóð yfir datt netsamband að hluta til niður. Hann segir bilun sem þessa afar sjaldgæfa og að viðgerð hafi gengið hratt fyrir sig. Heyrnar- daufbörn fá farsíma Fyrirtækið Og Vodafone afhenti öUum nemendum í 4. tfl 10. bekk á táknmálssviði Hlíða- skóla farsíma í gær. AUs er um 15 síma að ræða en nemendurn- ir fá jafnframt mánaðarlega inneign í formi Og Vodafone Frelsis skafkorta og geta sent SMS og MMS skeyti án end- urgjalds þar tfl skólagöngu í Hlíðaskóla lýkur. Heyrnarlaus og heyrnardauf börn nota SMS og MMS skflaboð mUdð til að tjá sig og er markmiðið með gjöfinni að stuðla að aukinni notkun á nýjustu tækni tU að auðvelda börnunum lffið. I tUkynningu frá Og Vodaf- one segir að skafkortið geri nemendum mögulegt að senda 30 SMS og 30 MMS á dag án endurgjalds. Þá fylgi hverju korti 1.990 króna inneign.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.