blaðið - 08.05.2007, Blaðsíða 3
1 I
'*£fel i **" ‘i§
m #
jÆBajf
3
Mér er alvara þegar ég segi að Islands-
hreyfingin sé sú viðbót í hið pólitíska landslag
sem getur fellt stóriðjustefnuna, tálsýn ráða-
manna um sex álver sem þurfa alla virkjanlega
orku landsins en afraksturinn aðeins tvö
prósent af vinnuafli landsins. Stóriðjustefnan
mun valda óbætanlegum spjöllum á náttúru
íslands, einstæðasta og mesta verðmætinu
sem okkur hefur verið falið að varðveita fyrir
komandi kynslóðir og mannkyn allt.
Umhverfismál og stjórnmál hafa verið mér
afar hugleikin í meira en hálfa öld. Ég hef
ferðast um virkjanasvæði landsins, rannsakað
25 þjóðgarða og 18 virkjanasvæði í Ameríku
og Evrópu, rætt við ótal náttúrufræðinga,
hagfræðinga, vísindamenn, sérfræðinga í
viðskipta- og atvinnulífi og venjulegt fólk.
Það er hægt er að skapa betri og fleiri störf í þágu
grósku og velferðar með mengunarlausri starfsemi
fyrir hærra orkuverð og minni orkunotkun. Græn
ímynd stígur hratt í verði. Vinur minn, Andri Snær
Magnason, hefur kallað þessar kosningar mikil-
vægustu kosningar aldarinnar. Þetta mál rís upp
fyrir önnur mál í þessum kosningum af því að það
varðar ófæddar kynslóðir.
Það þarf að fella stóriðjustefnuna núna
- í næstu kosningum er það of seint.
Ómar Ragnarsson
formaður íslandshreyfingarinnar lifandi lands
ISLANDSHREYFINGIN
tif'Midl LmuL ^^0