Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 4
H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Gleymdu ekki nestinu Wall Street mótmælin breiðast út V efpressan, sem rekur frétta- og afþreyingar-miðlana Pressuna, bleikt. is, menn.is og eyjan.is, ásamt net- verslununum butik.is og mona.is, hefur unnið að því að auka hlutafé félagsins á undanförnum vikum. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur haft umsjón með hlutafjár- aukningunni sem gengur undir nafninu Project Freyja. Markmiðið var að safna 100 milljónum króna sem eiga að standa fyrir 35 pró- sent af hlutafé Vefpressunnar. Það þýðir að verðmat eigenda Vefpress- unnar er 290 milljónir, tæplega þrefalt meira en öll velta félagsins árið 2010. Lágmarksfjárfesting í hlutafjáraukningunni er 4,2 millj- ónir, samkvæmt skilmálum. Björn Ingi Hrafnsson, stjórnar- formaður Vefpressunnar, segir í samtali við Fréttatímann að þetta verð endurspegli ekki ofmat á virði félagsins. „Það hafa farið fram viðskipti á þessu verði þannig að þessi tala er ekki tilviljun. Þetta er efnilegt fyrirtæki sem skuldar mjög lítið og við horfum fram á verulega tekjuaukningu, bæði á þessu ári og þeim næstu,“ segir Björn Ingi. Heimildir Fréttatímans herma Mótmælin gegn fjármálakerfinu sem hófust á Wall Street hafa breiðst út um Bandaríkin. Um helgina eru viðlíka mótmæli boðuð í 25 borgum utan Banda- ríkjanna. Í Heiminum á blaðsíðu 46, sem er samstarfsverkefni Fréttatímans og Háskólans á Bifröst, er skoðað hvort mótmælaaldan sem reis á neðri hluta Manhattan fyrir fáeinum vikum sé við það að skella á heimsbyggðinni allri.  Fjölmiðlar HlutaFjáraukning VeFpressunnar Project Freyja á að skila 100 milljónum Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður Vefpressunnar, segir yfirstandandi hlutafjáraukningu vera fyrir framtíðina; félagið sé ekki í neinum fjárhagsvandræðum. Stefnt að því að opna leik- fangaverslun og uppboðsvef á næstunni. Björn Ingi Hrafnsson stjórnarformaður og útgefandi Vefpressunnar. að stefnt hafi verið að því að ljúka hlutafjáraukningunni í þessari viku en Björn Ingi segir að það muni ekki nást. „Þeir fyrstu koma inn í þessari viku en það stefnir allt í að þetta ferli verði í gangi fram í nóvember. Okkur liggur enda ekkert á. Þessi hlutafjáraukn- ing er hugsuð til að styrkja félagið til framtíðar. Við erum ekki í nein- um fjárhagsvandræðum núna,“ segir Björn Ingi og bætir við að best sé að tjá sig sem minnst um þetta fyrr en allt sé komið í höfn. Og eigendur Vefpressunnar eru stórhuga því heimildir Fréttatím- ans herma einnig að tekjur félags- ins muni aukast um 130 prósent á árinu 2011 og 182 prósent 2012. Á því ári á hagnaður fyrir afskriftir og skatta að vera 48 milljónir króna. Hluti af því er að opna þrjá nýja vefi, leikfangaverslun sem verður einnig netverslun og tengd við hið fornfræga breska leik- fangamerki Hamleys, uppboðsvef í anda Sotheby’s á Eyjunni og blatt. is auk raftækjavöruverslunarinnar rafko.is sem nú þegar er komin upp. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Net Vefpressunnar Vefpressan rekur ... ... pressan.is ... menn.is ... blatt.is Vefpressan á ... ... Norðurpólinn (100%) ... Eyjan Media (100%) ... Emoll (100%) Norðurpóllinn á ... ... Hönnunarstofu ... bleikt.is ... elvesandtrolls.com (ferðaskrifstofu) Eyjan Media á ... ... eyjan.is Emoll á ... ... aha.is (48%) ... mona.is ... butik.is ... uppboðsvef Eyjunnar ... rafko.is ... leikfangaverslun Þeir fyrstu koma inn í þessari viku en það stefnir allt í að þetta ferli verði í gangi fram í nóvember.Fækkun í Hvalfjarðargöngum Um 8 þúsund færri ökutæki fóru um Hvalfjarðargöng sumarmánuðina júní, júlí og ágúst í ár en á sama tímabili í fyrra. Umferðin var eilítið meiri í ágúst en minni í júní og júlí. Þegar á heildina er litið hefur umferð um göngin dregist saman um 4,5% það sem af er árinu 2011, þ.e. frá janúar til september. Ætla má að efnahagssam- drátturinn í samfélaginu og hátt elds- neytisverð komi þarna við sögu, segir á vef Spalar. Umferð á þjóðvegum landsins hafi minnkað og það hljóti líka að birtast undir Hvalfirði. Vegagerðin gerir ráð fyrir að umferð dragist saman um 4,8% að jafnaði á landinu. -jh Líkur á greiðslufalli Íslands 24,6% Ísland er í 19. sæti þeirra ríkja sem líklegast er talið að verði fyrir greiðslufalli, samkvæmt útreikningi greiningarfyrir- tækisins CMA, sem vefur Viðskiptablaðsins greinir frá. Líkurnar eru reiknaðar út frá skuldatryggingarálagi ríkja. Líkurnar á greiðslufalli Íslands eru taldar vera 24,6%. Þær hafa hækkað talsvert frá áramótum, þegar fyrirtækið mat líkurnar 19,6%. Verst er staða Grikklands en líkur á greiðslufalli Grikklands eru taldar 90,6% á næstu fimm árum. Portúgal gengur næst Grikklandi en fimm Evrópusambandsríki eru á lista þeirra tíu ríkja sem í mestri hættu eru, , þ.e. Írland, Ítalía og Ungverjaland, auk Grikklands og Portúgals. Noregur er hins vegar það ríki sem er líklegast allra til að standa við skuldbindingar sínar en Bandaríkin fylgja í kjölfarið. - jh Krónan styrkist Gengi krónunnar hefur styrkst nær stöðugt frá því um miðjan júlí. Nemur styrkingin hátt í 4% á þriggja mánaða tímabili og hefur krónan ekki verið sterkari síðan í byrjun febrúar, að því er Greiningu Íslandsbanka segir. Hækkunin á gengi krónunnar á tímabilinu kemur að mestu leyti fram í samsvarandi lækkun á verði evru í krónum á sama tíma, en í krónum talið er evran nú rúmlega 4% ódýrari en hún var um miðjan júlí. Sömu sögu má segja um gengi dönsku krónunnar enda er gengi hennar fest við gengi evru. Einnig hefur breska pundið lækkað um svipaða prósentu á sama tímabili en þessar þrjár myndir vega yfir 60% í gengisvísitölunni. Hins vegar hefur þróunin ekki verið með sama hætti á gengi krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar sem er nú á svipuðu verði í krónum talið og í júlí. - jh Veður Föstudagur laugardagur sunnudagur StrekkINgSVINdur af SuðVeStrI. SkúrIr og Síðar rIgNINg um laNdIð SuðVeStaN- og VeStaNVert, eN Nokkuð Bjart NorðaN og auStaNlaNdS. HItI ofaN froStmarkS. HöfuðBorgarSVæðIð: NoKKUð BLAUtt MEð SKúrALEIðINGUM AF HAFI. lItlar BreytINgar og áfram SkúrIr SuNNaN- og VeStaNlaNdS, eN úrkomu- lítIð fyrIr NorðaN og auStaN. HöfuðBorgarSVæðIð: S- oG SV-átt MEð HELdUr MINNKANdI SKúrUM, EN SóL á MILLI. lítur út fyrIr HægaN VINd á laNdINu, Smá úrkoma SuNNaNlaNdS, eN aNNarS Bjart með köflum. fryStIr Víða um kVöldIð. HöfuðBorgarSVæðIð: HÆG S-LÆG átt oG SMáKúrIr. HItI 3 tIL 5 StIG. enn haustsvipur á veðrinu Skemmst er frá því að segja að skúraleiðingar verða sunnan- og vestanlands meira og minna alla helgina með strekkings S- og SV-átt. Hægir mikið á sunnudag. Aðfaranótt laugardags skjótast skil yfir landið með rigningu í flestum landshlutum, en í kjölfar þeirra er von á skárra veðri. Léttir þá til norðanlands og austan. Hægur vindur á sunnudag og enn skúrir sunnan til. Þó smám saman kólni eru þó ekki líkur á frosti á landinu fyrr en á sunnudagskvöld. Það þýðir líka að akstursskilyrði yfir fjallvegi ættu að verða ágæt. Eftir helgi er spáð talsverðu N-kasti. 6 5 8 9 8 5 4 6 7 5 5 3 3 7 5 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is miðborgin okkar! Hundruð verslana og veitingahúsa bjóða vörur og þjónustu. Sjá nánar auglýsingu á bls. 27 og á www.miðborgin.is 4 fréttir Helgin 14.-16. október 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.