Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 30
É g fæddist í Reykjavík 17. júní árið 1979, dóttir Arnar Þorlákssonar, sem var sölumaður veiðar- færa vestur á Granda, og Margrétar Ákadóttur leikkonu. Þau skildu þegar ég var þriggja ára og ég var mikil pabbastelpa. Eins og oft gerist hjá skilnaðarbörnum lendir pabbinn í guðatölu en mamman, sem annast barnið mest, fellur í skuggann og fær ekki að vita af því fyrr en síðar í lífinu hversu vel barnið hennar mat hana allan tímann. Mamma er klett- urinn í lífi mínu og hefur alltaf verið það. Við pabbi vorum mjög tengd þangað til á unglingsárum mínum. Þau voru okkur báðum svolítið erfið. Pabbi var eitthvað hræddur um mig og ótti hans braust fram í því að hann gat stundum verið óvæginn við mig. Þegar ég var orðin þroskuð ung kona náðum við vel saman en samt voru átök á milli okkar; enda barðist hann við sjúkdóminn alkóhólisma eins og svo margir aðrir gera.“ Leikarabarn Æskuár Helgu voru í miðbænum og Vesturbænum en þær mæðgur fluttu mjög oft. „Mamma var mikil flökkukind og fannst alltaf að hún væri að koma okkur í betri stöðu með því að skipta um húsnæði,“ segir Helga brosandi. „Hún gætti þess þó að flytja aldrei lengra en svo að ég gæti alltaf verið í sama skólanum. Ég þoldi þetta ekki þegar ég var barn, en sem fullorðin manneskja tel ég að ég hafi haft gott af þessu. Börn verða að læra að hafa aðlögunarhæfni og hana hef ég í ríkum mæli. Ég get aðlagast öllum aðstæðum sem mér er boðið upp á. Aðstæðum sem jafnaldrar mínir, sem bjuggu kannski á sama staðnum í tuttugu ár með foreldrum sínum og aldrei neitt rask átti sér stað og ekk- ert kom upp á, ráða kannski ekki við. Hins vegar fékk ég algjört ofnæmi fyrir flutningum; pakka niður, pakka upp – aftur og aftur! Svo hékk ég með mömmu á leiksýningum á kvöldin og fór til dæmis svo oft á leikritið Þar sem Djöflaeyjan rís, sem var sýnt í bragga vestur í bæ og mamma lék í, að ég tók eftir því ef leikararnir gerðu mistök! Ég var mikið leikhúsbarn og einhvern tíma sem barn leiddi ég hug- ann að því að verða leikkona en samt vildi ég hafa örlítið meiri áhrif en leik- arar. Á tímabili langaði mig að verða læknir, láta gott af mér leiða og hafa áhrif – og að vissu leyti eru blaða- og fréttamenn að gera nákvæmlega það. Við erum að koma á framfæri óréttlæti og kalla eftir viðbrögðum ráðamanna. En í raun vissi ég ekkert hvað ég vildi verða þegar ég stundaði nám við Menntaskólann í Reykjavík. Ég slugsaðist bara einhvern veginn gegnum skólann, fór svo í háskólann og tók BA-gráðu í stjórnmálum og frönsku en svo hitti það mig eins og elding í hjartað að verða fréttamaður. Og það er ólýsanlega gott að vita við hvað maður vill starfa.“ Andlát pabba mótað mig mikið Fyrir tíu árum missti Helga föður sinn skyndilega, aðeins 53 ára að aldri. „Elsku pabbi minn var alkóhólisti og það hefur skýrt fyrir mér í seinni tíð hvernig hann brást við á unglings- árum mínum því sá sjúkdómur hefur auðvitað áhrif á viðmót og skapferli fólks. Hann fékk gáttaflökt, fór í rafvendingu, sem fór mjög illa í hann, og þurfti að fara aftur á sjúkrahús. Konan hans hringdi í mig og bað mig að fara á sjúkrahúsið til hans EF eitthvað færi illa. Ég lét mig hafa það að fara, þótt mér þætti það ekki mikilvægt á þeirri stundu, en mikið óskaplega verð ég henni alltaf þakk- lát fyrir að hafa ýtt við mér. Ég fór til hans á miðvikudegi, hann útskrifaðist daginn eftir og fékk hjartastopp um kvöldið. Hann var lagður inn á sjúkra- hús og við vöktum yfir honum í viku. Þá lést hann, aðeins 53 ára. Þarna var ég 23 ára og var hjá honum þegar hann lést. Andlát hans hefur setið í mér öll þessi ár. Ég hef ekki verið sama manneskja eftir þetta. Ég varð vitni að andlátinu og þótt heili pabba væri farinn var líkaminn sterkur. Þetta var mjög kröftugur dauðdagi og ég næ þessari mynd ekki úr huga mér enn. Ég var kannski of ung til að vera í svona miklu návígi við dauðann – og sérstaklega þar sem um foreldri mitt var að ræða. Það gerði það að verkum að ég hef þróað með mér gríðarlega lífshræðslu sem vaknaði í sorgarferlinu. Maður gerir sér ekki grein fyrir því, þegar maður er ung manneskja, hversu stutt þetta bil er; að það sé bara örþunn lína milli lífs og dauða. Ég hélt að dauðinn væri mér fjarlægur og ég myndi ekki kynnast honum nærri því strax. Ég hef verið að vinna í mér með þessa lífshræðslu; borða hollan mat, hreyfi mig mikið og annað slíkt. Ég er alveg ofboðslega hrædd um mína nánustu; mömmu, sem ég er svo gríðarlega náin, bróður minn, systur mína og kærastann minn. Þau mega ekki kveinka sér, þá verð ég dauðhrædd. Mörgum finnst ég ganga of langt með þessa hræðslu en ég ræð bara ekkert við þetta og er, eins og ég sagði áðan, að vinna í þessu.“ Hef unnið fyrir öllu mínu sjálf Helga Arnardóttir, fréttakona á Stöð 2 hristi duglega upp í landsmönnum með viðtölum við sakborninga og aðstandendur í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Þjóðfélagið logaði alla síðustu viku eftir að dagbækur Tryggva Þórs Leifssonar, eins sakborninga í málinu, voru lagðar fram og innanríkis- ráðherra ákvað að skipa nefnd til að fara ofan í saumana á málinu. En hver er þessi stúlka sem aðeins 32 ára hefur uppskorið eins og hún sáði? Ljósmyndir/Hari Þú talar þarna um bróður og systur? „Já, pabbi hafði eignast dóttur áður en hann var í sambandi við mömmu. Hún heitir Ingunn Björg Arnardóttir og er kennari, níu árum eldri en ég. Þegar ég var tíu ára bankaði ég upp á hjá henni og spurði hvort hún vildi vera „memm“. Það hafði ekki verið mikill samgangur á milli okkar. Hún tók svo þátt í að ala mig upp næstu tíu árin, veita mér móður- legan stuðning og í dag erum við bestu vinkonur. Hún er mér mjög dýrmæt. Litli bróðir minn heitir Snæbjörn Áki og er 21 árs. Hann fæddist fjórum mánuðum fyrir tímann og var á spítala í lífshættu fyrstu níu mánuði lífs síns. Það var gríðarlega erfiður tími fyrir mömmu. Áki ber þess merki í dag, þessi elska, að vera fyrir- buri og hann er alveg yndislegur. Hann er með skerta sjón og skerta heyrn en hörkuduglegur; vinnur úti, keyrir sinn eigin bíl og er ekkert að væla! Hann er stórkostlegur. Hann hefur alveg fengið að finna fyrir einelti – það er bara stað- reynd að fólk þolir ekki „öðruvísi“ fólk.“ Tár á koddanum Hún segir samskipti sín við karlmenn hafa litast af því að hafa ekki haft karl- mann á heimilinu þegar hún var að alast upp. „Það er ekki fyrr en nú í seinni tíð sem ég hef fundið menn sem mér finnst ég eiga eitthvað sameiginlegt með. Ég hef alltaf verið hrædd við höfnunartilfinn- ingu og mér var ríkulega hafnað!“ segir hún og skellihlær. „Það hafa sko alveg farið nokkur tár í koddann, skal ég segja þér!“ Helga varð stúdent frá Menntaskól- anum í Reykjavík árið 1999 og þaðan lá leið hennar í Háskóla Íslands. „Ég slugsaðist í gegnum MR og vissi ekkert hvað ég vildi verða. Svo tók ég eitt viðtal í Stúdentablaðið við Ara Edwald, Áki ber þess merki í dag, þessi elska, að vera fyrirburi og hann er alveg yndis- legur. Hann er með skerta sjón og skerta heyrn en hörku- duglegur; vinnur úti, keyrir sinn eigin bíl og er ekkert að væla! Hann er stórkost- legur.“ Framhald á næstu opnu Anna Kristine ritstjorn@frettatiminn.is Helga Arnardóttir „Elsku pabbi minn var alkóhólisti og það hefur skýrt fyrir mér í seinni tíð hvernig hann brást við á unglings- árum mínum því sá sjúkdómur hefur auð- vitað áhrif á viðmót og skapferli fólks.“ 30 viðtal Helgin 14.-16. október 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.