Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 51

Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 51
Helgin 14.-16. október 2011 bílar 47 Nýr og fallega hannaður Kia Rio Kia sendir nú frá sér fjölda endurhannaðra bíla. Kia Rio boðinn með þremur eyðslugrönnum og umhverfisvænum vélum.  Kia Motors BílafraMleiðandi í öruM vexti K ia Motors er meðal þeirra bíla- framleiðenda sem örast vaxa en Kia sendir nú frá sér fjölda endurhannaðra bíla. Kia-bíl- arnir hafa undanfarið fengið mikið lof fyrir flotta og nútímalega hönnun og hafa sópað til sín hönnunarverðlaunum víða um heim. Nýjasti bíllinn í endur- hönnuðum flota bílaframleiðandans er Kia Rio en hann er væntanlegur til Íslands í nóvember. Setur ný viðmið í hagkvæmni Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Bílaum- boðinu Öskju, segir að Kia Rio verði í boði með þremur eyðslugrönnum og umhverf- isvænum vélum sem skila bílnum í lágan vörugjaldsflokk og tryggja þar af leiðandi betra verð. „Dísilvélarnar eru 1,1 og 1,4 lítra og bensínvélin er 1,4 lítra og verður sá bíll fáanlegur sjálfskiptur. Með 1,1 lítra dísilvélinni eyðir Kia Rio aðeins 3,2 lítrum í blönduðum akstri – og geri aðrir betur. Bíll- inn skilar 75 hestöflum og koltvísýrings- losunin er aðeins 85 grömm á kílómetra. Bíllinn er því ótrúlega hagkvæmur og umhverfisvænn og setur raunar ný viðmið hvað þetta tvennt varðar miðað við að hann er ekki knúinn öðrum aflgjöfum,“ segir Þorgeir. Hann bætir við að með stærri dísilvélinni skili bíllinn 89 hestöflum. „Þessi bíll er mjög kraftmikill, togið feikigott og bíllinn mjög skemmtilegur og sportlegur í akstri. Bensínvélin er einnig óvenju umhverfisvæn og eyðslugrönn. Hún skilar 107 hestöflum og mengar 150 gr/km sem er einnig góður árangur í markmiðum Kia, að framleiða bíla með sem lægstum Co2 útblæstri,“ segir Þorgeir. Hagkvæmur og ríkulega búinn bíll Nýr Kia Rio er mjög mikið breyttur í hönn- un og aksturseiginleikum miðað við forver- ann. Heildarútlitið er sérlega vel heppnað með rennilegum hliðum og rísandi línu aftur eftir bílnum sem gefur honum mjög sportlegt yfirbragð. Stórt loftinntakið að framan er auk þess mjög flott og sportlegt sem og nett og ávöl afturrúðan. Innanrým- ið er einnig mjög vel hannað og vandað. Bíllinn verður ríkulega útbúinn og mun því verða gott „value for money“, það fæst mikið fyrir peningana, að sögn Þorgeirs. Kia Rio er mjög rúmgóður miðað við bíl í b-stærðarflokki. Plássið er prýðilegt bæði fyrir ökumann og farþega og skottið er rúmgott eða alls 288 lítrar. „Kia Rio er mjög hagkvæmur í rekstri, sem skiptir miklu máli á þessum tímum, og auk þess afar umhverfisvænn. Kia býður 7 ára verksmið- juábyrgð á öllum bílum sínum og er eini bílaframleiðandinn sem býður svo langa ábyrgð sem gerir öryggi kaupandans mun meira og endursöluverðið hærra þar sem ábyrgðin færist á milli eiganda. Við bindum miklar vonir við Kia Rio enda er hann vel hannaður og vandaður bíll í stærðarflokki sem hefur verið vinsæll hér á landi,“ segir Þorgeir ennfremur. Nýr Kia Picanto kominn til landsins Það er margt spennandi í gangi hjá Kia því nýja kynslóðin af hinum smáa en knáa Kia Picanto er nýkomin á markað og var kynnt í Öskju um síðustu helgi. Picanto hefur verið endurhannaður frá grunni og þykir hönnun bílsins ákaflega vel heppnuð. Bíllinn hefur þegar unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir fallegt og frísklegt útlit. Tvær nýjar bensín- vélar eru í boði, 1,0 og 1,2 lítra sem báðar eru mjög sparneytnar, með lágt mengun- argildi og eru því mjög umhverfisvænar. Bíllinn verður boðinn fimm dyra og bein- skiptur en auk þess verður hann í boði sjálf- skiptur með 1,2 lítra vélinni. Grunnverð á nýjum Picanto er 1.997.777 kr. KyNNiNg Kia Rio. Fallega hannaður og umhverfisvænn. Kia Picanto. Endurhannaður bíll frá grunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.