Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 34
Kastljós á lítið land Bókamessan í Frankfurt var sett á þriðjudaginn. Þar er Ísland heiðurs- gestur í ár. Að setningarathöfn lokinni heimsóttu forseti Íslands og Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýska- lands, íslenska skálann þar sem Ísland og íslenskar bókmenntir eru kynnt fyrir gestum á bókamessunni. Ævar Örn Jósepsson rithöfundur sagði í viðtali við Ríkisútvarpið að það hefði mikla þýðingu fyrir íslenskar bókmenntir og íslenska rithöfunda að kastljósið beindist að Ís- landi, væri algerlega ómetanlegt. „Þetta er stærsta bókaveisla í heimi, hingað koma bókaútgefendur og lesendur alls staðar úr heiminum. Hér er verið að kynna tugi þúsunda bókatitla en kast- ljósið er sett á Ísland, þetta pínulitla land.“ Tvö dauðaslys Tvö hörmuleg dauðaslys urðu á Austur- landi á miðvikudaginn. Fólksbíll lenti í árekstri við vörubíl á Fagradal með þeim afleiðingum að bílstjóri fólks- bílsins, sautján ára stúlka, lést. Jafnaldra hennar sem var farþegi í bílnum var flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur en reyndist ekki eins alvarlega slösuð og óttast var. Stúlkan sem lést hét Þorbjörg Henný Eiríksdóttir. Þá lést 41 árs maður í vinnuslysi á Djúpavogi þegar krani brotnaði og féll á hann þar sem unnið var að losun salts úr skipi. Hann hét Jón Ægir Ingimundarson og lætur eftir sig sambýliskonu og tvö börn. Landspítalinn sker Landspítalinn leggur niður deildir og fækkar fólki en spítalanum er gert að skera niður um 630 milljónir króna á næsta ári. Starfsemin á St. Jósefsspítal- anum í Hafnarfirði verður lögð niður og réttargeðdeildin á Sogni verður flutt á Kleppsspítala. Þá verða líknardeildir sameinaðar, starfsemin á Landakoti lögð niður. Öll starfsemi deildarinnar verður því í Kópavogi. Spara á um 160 milljónir króna með endurskipulagningu á lagerum og útboðum í lyfjainnkaupum. Með þessu fækkar störfum á spítalanum um 85. Í tilkynningu spítalans kemur fram að eftir föngum verði reynt að nýta starfsmannaveltu við fækkunina. Tilboð opnuð í göng ÍAV og svissneska fyrirtækið Marti áttu lægsta tilboðið í gerð Vaðlaheiðarganga, tæplega 8,9 milljarða króna. Tilboðið nemur 95 prósentum af kostnaðaráætl- un Vegagerðarinnar, hið eina sem var undir áætlun. Þrjú önnur tilboð bárust. Siv óttaðist um öryggið Siv Friðleifsdóttur alþingismann og Þorstein Húnbogason, fyrrverandi sambýlismann hennar, greindi verulega á um hvort og hversu mikið hann hefði fylgst með ferðum hennar þegar þau gáfu skýrslu í aðalmeðferð í máli sem höfðað var gegn Þorsteini fyrir að koma staðsetningarbúnaði fyrir í bíl Sivjar. Siv sagðist hafa óttast um öryggi sitt. Slæm vika fyrir séra Karl Sigurbjörnsson biskup Góð vika fyrir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur 1 Einkaklósett sem Ólafur Skúlason, fyrrverandi biskup, var með á heimili sínu þar sem hann framdi grimmdarleg brot gagnvart dóttur sinni, Guðrúnu Ebbu, samkvæmt lýsingum hennar. 21,8% Meðaláhorf á fyrsta þáttinn af Heimsendi, flaggskip vetrardagskrár Stöðvar 2, á sunnudaginn. Það hefur ekki hjálpað þeim að vera á sama tíma og viðtal Þórhalls Gunn- arssonar við Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur á RÚV. 6 Félögin sem Willum Þór Þórsson, sem tók við Leikni í vikunni, hefur þjálfað. Hann hefur unnið þrjá Íslands- meistaratitla og einn bikar- meistaratitil á fjórtán ára ferli sem þjálfari. 29,4 Milljarðarnir sem ultu um kreditkort Íslendinga í sept- ember, samkvæmt tölum frá Seðlbankanum. Sólin skín á formannskandídat Í vikunni birtist þriðja skoðanakönnunin í röð sem sýnir að fleiri stuðningsmenn Sjálf- stæðisflokksins treysta Hönnu Birnu Kristjánsdóttur betur fyrir embætti formanns flokksins en Bjarna Benediktssyni. Í könnun sem MMR gerði fyrir Viðskiptablaðið kemur fram að forysta Hönnu Birnu er afgerandi. 70,3 prósent nefna hana, en innan við þriðjungur styður Bjarna. Hanna Birna hlýtur að mega vel við una þetta mikla traust til að taka að sér starf sem hún hefur ekki lýst yfir að hún vilji gegna. Vikan var Hönnu Birnu líka góð utan valla stjórnmálanna því hún varði henni í sólinni í Flórída. Var hún ásamt manni sínum í villu Árna Sigfús- sonar bæjarstjóra í félagsskap Þórs Sigfússonar, fyrrverandi forstjóra Sjóvár, og Halldóru Vífilsdóttur arkitekts. Baráttan um formannsstólinn, ef af verður, bíður landsfundar Sjálfstæðisflokksins sem fer fram um miðjan nóvember. Biskup í bobba Hart hefur verið sótt að Karli Sigurbjörnssyni, biskupi Íslands, í vikunni. Ákaft hefur verið kallað eftir því að hann segi af sér embætti vegna meðferðar Bisk- upsstofu, undir hans stjórn, á erindi Guðrúnar Ebbu fyrir tveimur árum. Ástæðan fyrir því að sú málsmeðferð er til umræðu nú er útgáfa sögu Guðrúnar Ebbu, sem Elín Hirst skrásetti, og viðtal sem Ríkissjónvarpið sendi út af því tilefni. Í viðtalinu og bókinni lýsir Guðrún Ebba hroðalegri misnotkun sem faðir hennar, Ólafur Skúlason biskup, beitti hana frá því hún var barnung. Guðrún Ebba lagði inn bréf til Biskups- stofu sumarið 2009 þar sem hún sagði frá ofbeldinu. Viðbrögðin urðu engin fyrr en DV upplýsti um tilurð bréfsins. Þá loks heyrði Guðrún Ebba frá fulltrúa stofu biskups. Er það heldur nöturlegur vitnisburður um samkennd og mannúð sálusorgarans sem þar ræður ríkjum. 64 Milljarðarnir sem Arion banki af- skrifaði hjá athafnamanninum Ólafi Ólafssyni í skuldauppgjöri bankans við Kjalar, eignarhaldsfélag Ólafs. vikan í tölum Barinn biskup Einlægt og átakanlegt viðtal Þórhalls Gunnarssonar við Guð- rúnu Ebbu Ólafsdóttur hreyfði við fólki sem ruddist inn á Facebook að lokinni útsendingu á sunnudagskvöld, þakkaði Guð- rúnu Ebbu fyrir hugrekkið og fékk útrás fyrir tilfinningar. Kolbrun Baldursdottir Guðrún Ebba er hetja. Thorsteinn J. Vilhjalmsson Lengsta bókarkynning Íslands- sögunnar á RÚV og algjör tilviljun auðvitað að hún er á sama tíma og Heimsendir á Stöð 2, það hitti bara þannig á, fullt tungl, eða Straumnesviti logar ekki. Thorfinnur Omarsson Getur kirkjan ekki einfaldlega svipt fyrrverandi biskup þeim titli og gert hann non grada innan kirkjunnar? Jenný Anna Baldursdóttir Ég er óendanlega þakklát fyrir konur eins og Guðrúnu Ebbu. Þór Jónsson er einstaklega ánægður í kvöld með að vera einn af fáum sem hallmælt er í ævisögu Ólafs Skúlasonar biskups. Helga Vala Helgadóttir Er stolt af hugrakkri frænku. Takk Guðrún Ebba fyrir að segja sögu þína. Illugi Jökulsson Ætti ekki einhver að fara og taka niður málverkið af Ólafi Skúlasyni á Biskupsstofu? Messað yfir forseta Ísland er í brennidepli á Bókamesunni í Frankfurt og þar er forseti vor frekur til fjörsins. Ólafi Ragnari virtist þó ekki mikið skemmt þegar utanríkis- ráðherra Þýskalands hélt inn- blásna ræðu yfir mannskapnum um hversu skemmtilegt það væri að fá Ísland í Evrópusam- bandið. Heiðar Ingi Svansson Fréttir úr Frankafirði. Utan- ríkisráðherra Þýskalands hélt þrumandi lestur um ágæti Evrópusambandsins yfir Ólafi Ragnari og öðrum gestum á opnuninni í dag! Guðmundur Andri Thorsson Heyrði Ingólf Bjarna, tíðinda- mann Útvarpsins í Frankfurt í morgun. Hann hljómaði eins og honum fyndist utanríkis- ráðherra Þýskalands fara með ótrúlegt fleipur þegar hann talaði um að Íslendingar hefðu sótt um aðild að ESB. Rúnar Helgi Vignisson Setningarhátíð bókastefnunnar í Frankfurt kom mér á óvart. Ég bjóst við glæsilegri sýningu en þess í stað fengum við einar sjö ræður, þar af þrjár frá þýskum stjórnmálamönnum. Hápunktur kvöldsins var að forseti Íslands skyldi ekki klappa þegar þýski utanríkisráðherrann fagnaði umsókn Íslands í Evrópusam- bandið. Bergsteinn Sigurðsson Er Ólafur Ragnar búinn að ræða við bókaútgefendur í Frankfurt um möguleika samvinnu á sviði nýtingar jarðvarmaorku? íslenskir undirheimar heilla Þeir sem sáu frumsýningu íslensku glæpamyndarinnar Borgríki á miðvikudagskvöld ruku margir hverjir beint inn á Facebook að sýningu lokinni og lofuðu myndina í hástert. Ásgrímur Sverrisson Borgríki er ekki bara fínn hasar heldur setur fingurinn á það sem er að gerast á meðal okkar; tengslaleysi, firringu, gliðnun. Sá sem síst skyldi reynist mesti síkópatinn, ekki bara vegna þess sem hann gerir heldur einnig vegna þess sem hann gerir ekki. Vel gert Team Poppoli. Börkur Gunnarsson sá bíómyndina Borgríki í gær. óska olaf de fleur og poppóla mönnum til hamingju með flotta mynd! Karl Sigurðsson sá Borgríki í kvöld og leist frábærlega á! Til hamingju allir aðstandendur! Júlía Margrét Alexanders- dóttir Ef ég hefði ekki verið með Green Tea ilmvatn hefði Borgríkið verið hin fullkomna bíóferð, verðið að sjá Slatko. HeituStu kolin á arnaldur fyrir framan íslenska skálann, á spjalli við blaðamenn, áður en forsýning á íslenska skálanum hófst á þriðjudag. Seinna var hann annar af opnunarræðumönnum sýningarinnar fyrir hönd Íslands. Sjá einnig blaðsíðu 60. 34 fréttir vikunnar Helgin 14.-16. október 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.