Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.06.2012, Qupperneq 6

Fréttatíminn - 22.06.2012, Qupperneq 6
Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Stórmeistarar á Skákhátíð á Ströndum Skákhátíð á Ströndum 2012 verður haldin um helgina og er efnt til fjölteflis á Hólmavík og skákmóta í Djúpavík, Trékyllisvík og Norðurfirði. Von er á stórmeisturunum Helga Ólafssyni, Jóhanni Hjartarsyni og Þresti Þórhallssyni, auk skákáhugamanna víða að. Þá munu mörg af efnilegustu skákbörnum landsins taka þátt í hátíðinni, sem er öllum opin. Fjöldi viðurkenninga og verðlauna eru í boði. Hátíðin hefst með fjöltefli á Hólmavík klukkan 16 á föstudaginn, þegar Róbert Lagerman, heiðursgestur hátíðarinnar, teflir fjöltefli. Á föstudagskvöld klukkan 20 verður tvískákarmót í Hótel Djúpavík og á laugardag klukkan 13 hefst Afmælismót Róberts Lagerman í samkomuhúsinu í Trékyllisvík. - jh Mjólkin hækkar Mjólkurlítrinn hækkar um næstu mánaðarmót um 4 prósent. Verðlagsnefnd búvara tilkynnti þetta í gær. Staðhæft er að ástæður þessara verðbreytinga séu launabreytingar og hækkanir á aðföngum við búrekstur. Í fréttatilkynningu frá verðlagsnefndinni segir að afurðastöðva- verð til bænda hækki um 2,80 krónur á lítra mjólkur, eða um 3,6 prósent. Þá hækkaði vinnslu- og dreifingar- kostnaður mjólkur um tæp 4,4 prósent. Funda með ungu fólki Allir frambjóðendur til embættis forseta Íslands hafa boðað komu sína á fund með ungu fólki í Ráðhúsi Reykjavíkur á mánu- dagskvöld klukkan 20. Reykjavíkurráð ungmenna, í samstarfi við Landssamband Æskulýðsfélaga og Áttavitann, boðar til fundarins og gefst ungu fólki þar tækifæri til að spyrja frambjóðendurna spjörunum úr. Fundurinn er opinn öllu ungu fólki. É g hef ekkert á móti þessu skotprófi sem slíku, það getur vissulega verið til góðs; setur fókusinn á vopnið og það að menn haldi sér í æfingu. En þetta er alltaf spurning um framkvæmdina,” segir Pálmi Gestsson leikari og skotveiðimaður sem sannarlega mátti ganga í gegnum mjög svo taugastrekkjandi ferli áður en hann náði því umdeilda prófi sem áskilið er að þeir sem fara á hreindýr hafi staðist. Þann 14. júní 2011 var samþykkt breyting á lögum þar sem gerð var aukin krafa til hreindýra- veiðimanna: „Enginn má stunda hreindýraveiðar nema hafa til þess leyfi, vera í fylgd með leiðsögu- manni og hafa staðist verklegt skotpróf,“ segir í bréf sem barst til þeirra sem ekki hafa enn lokið skotprófinu en fengu leyfi. Fréttatíminn hefur fjallað um málið og meðal annars sagt frá því að samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun, þrjátíu prósenta fall sé á þessum prófum sem fara fram á 22 stöðum víðsvegar um landið, próf sem eru umdeild meðal annars vegna þess að menn sóttu um leyfi á tilteknum forsendum en reglum var svo breytt eftir á. Þá þykir prófið strangt. Veiðiriffill ekki skotfimigræja Pálmi segir að menn hafi fullyrt í sín eyru að í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við sé það annað hvort þannig að veiðimönnum beri að standast skot- próf eða að þeim sé gert að fara til veiða með leiðsögumönnum. Sjálfur lenti Pálmi í nokkrum hremmingum er varðar þetta próf eins og svo margir aðrir veiðimenn, en tíma- mörk er varðar að hafa staðist prófið eru nú um mánaðarmót, annars missa menn leyfið. „Þetta er að strangt próf,“ segir Pálmi sem náði prófinu í þriðju atlögu. Fréttablaðið fékk hann til að segja af reynslu sinni sem má heita lýsandi fyrir það sem skotveiðimenn landsins eru að ganga í gegnum um þessar mundir. Pálmi kemur inn á eitt atriða sem veiðimenn telja gagn- rýniverð, sem er að hitta þarf fimm skotum í 14 sm skotmark í 100 m fjarlægð. Á veiðislóð er um að ræða eitt skot og þá er hjörðin rokin. Sjálf- ur er Pálmi þaulvanur veiðimaður, hefur á löngum veiðmannsferli fellt sjö dýr. „Það hefur aldrei klikkað skot hjá mér á veiðum. Ég felldi einu sinni dýr á 270 metrum. Ég er með 7 mm Remington Magnum, öflugt kaliber, má ekki öflugra vera. Þetta er veiðiriffill en ekki skotfimigræja.“ Við að missa hreindýrið Pálmi fór engu að síður nokkuð viss til prófs, enda reynslunnar smiður í þessum efnum. En, fyrsta skotið var þremur millimetrum utan hins 14 sentí- metra hrings. Og þar með var það búið. Hann skaut engu að síður fjórum skotum til og voru þau öll vel innan hrings. Hann meldaði sig í prófið strax aftur og þá gekk allt sem í sögu nema: „Fyrsta skotið beint í mark, annað, þriðja, fjórða ... en, fimmta var rétt utan við. Heyrðu, nú fór mér ekki að lítast á þetta. Það getur ýmislegt spilað inn í, vindur, andardráttur og svo framvegis, en hvur rækallinn. Er ég einn þeirra sem var svo heppinn að fá dýr, tarf á tvö sem eru 15 prósenta líkur og missi svo dýrið á skotsvæðinu?“ Pálmi þurfti því að taka prófið þriðja sinni og var það eðli málsins álag á taugakerfið, enda lokatækifæri. Og, sem betur fer gekk þá allt eins og í sögu. „Nú skal enginn misskilja mig, það er jákvætt að menn og vopn séu í lagi þegar haldið er til veiða. En, við erum að tala um að tvö skot af 15 hafi verið þrjá millímetra utan hrings. Algjörlega við hringinn en snertu hann ekki. Þá hefði ég sloppið – og ég slapp en það munaði mjóu.“ Kostnaður við hreindýraveiðar eru seint undir 300 þúsund krónum á mann sé litið til kostnaðar við leyfi, ferðir, leiðsögumann, gistingu og annan kostnað. Gjald við prófið er svo 4.500 krónur, í hvert skipti, og þegar við bætist að riffilskot eru dýr er hætt við að þetta togi verulega í pyngju venjulegs íslensks veiðimanns. Jakob Bjarnar Grétarsson jakob@frettatiminn.is  Hreindýraveiðar Skotpróf Taugastrekkjandi skotpróf Pálma Er ég einn þeirra sem var svo heppinn að fá dýr, tarf á tvö sem eru 15 prósenta líkur og missi svo dýrið á skot- svæðinu? Pálmi Gestsson leikari er kunnur skotveiðimaður og er einn þeirra þúsund af fjögur þúsund sem fékk „hreindýr“ 2012. Hann gekk í gegnum nokkrar hremmingar áður en hann náði umdeildu prófi sem hreindýraveiðimönnum er nú gert að undirgangast – á ákveðnu augnabliki sá Pálmi fyrir sér að það yrðu engar hreindýraveiðar þetta árið. Pálmi Gestsson. Þaulvön skytta en þurfti að sætta sig við að falla tvisvar á prófi þó árangurinn hafi verið að tvö skot af fimmtán voru 3 millímetra utan hins 14 sentímetra hrings. Borgarráðsfulltrúar Vinstri-grænna og Sjálfstæðisflokks óskuðu á borgar- ráðsfundi þann 7. júní eftir áliti innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar og greinargerð frá menningar- og ferðamálasviði um boðsferð WOW til Parísar. Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins og for- maður menningar- og ferðamálaráðs, þáði boðsferð flugfélagsins í jómfrúar- flugi þess til Parísar á dögunum sem og tveir embættismenn menningar- og ferðamálasviðs. Í bókun minnihlutans segir meðal annars: „Óskað er eftir áliti innri endur- skoðanda á ferðalaginu með hliðsjón af siðareglum og góðum starfsháttum kjörinna fulltrúa og embættismanna á vegum borgarinnar. Jafnframt er óskað eftir greinargerð frá menningar- og ferðamálasviði um ástæður og aðdrag- anda ferðalagsins.“ Fréttatíminn skýrði frá því í síðustu viku að Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra og formaður Vinstri grænna, aðstoðarmaður hans, fulltrúar bæjar- stjórnar Akureyrar og lykilmenn ís- lenskrar ferðaþjónustu fóru í boði Ice- landair til Denver í Bandaríkjunum um miðjan maí síðastliðinn. Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri-grænna, var spurð hvort ekki væri tilefni til að óska eftir skýringum hjá formanni flokks hennar á boðsferð hans til Den- ver á sama hátt og óskað hefði verið eftir skýringum á boðs- ferð Einars Arnar til Parísar. „Ég hef ekki gagnrýnt Einar Örn opinberlega í tengslum við þessa ferð heldur einungis spurt um það hvernig ferðin samræmist siða- reglum borgarfulltrúa,“ segir Sóley. „Það er að sjálfsögðu alltaf matsatriði hvenær á að þiggja svona ferðir og líta ber til þess hvaða hagsmunir eru í húfi,“ segir Sóley. „Ef það er mat Steingríms að hann hafi verið að gæta hags- muna Íslendinga og íslensk viðskiptalífs sem ráðherra, líkt og fram kemur í frétt- inni, finnst mér sú skýring nægja,“ segir Sóley. „Ef ráða- menn telja ástæðu til þess að fara til útlanda af einhverjum ástæðum finnst mér eðlilegast að það sé greitt af ríkinu þótt það sé að sjálfsögðu matsatriði í hvert sinn,“ segir hún.  Stjórnmál Siðareglur og boðSferðir ráðamanna Vilja skýringu frá andstæðingum en ekki samherjum Áframhaldandi bati á vinnumarkaði Vinnumarkaðurinn hefur verið að taka við sér undanfarið. Atvinnuleysi hefur verið að minnka og fjöldi starfandi að aukast. Atvinnuleysi var 8,5% í maí í ár samanborið við 11,0% í maí í fyrra, samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hag- stofunnar sem birt var á miðvikudaginn og Greining Íslandsbanka vitnar til. „Í fjölda fóru atvinnulausir úr því að vera 20.500 niður í 15.900 á tímabilinu sem er fækkun um 4.600 manns, sem verður að teljast umtalsvert. Fjöldi starf- andi fer þá úr 165.500 upp í 170.600 og hlutfall starfandi úr 74% upp í 76%,“ segir Greiningin. „Virðist sá hagvöxtur sem verið hefur undanfarið,“ segir enn fremur, „nægur til þess að draga úr slakanum á vinnumarkaði. Mældist vöxturinn 3,1% á síðastliðnu ári og er það nokkuð umfram jafnvægisvöxt hag- kerfisins. Hagkerfið er þannig á leið upp úr þeim öldudal sem það lenti í við hrun bankakerfisins árið 2008.“ - jh 6 fréttir Helgin 22.-24. júní 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.