Fréttatíminn - 22.06.2012, Blaðsíða 30
55
prósent greiddra atkvæði í
síðari umferð kjörs vígslu-
biskups á Hólum féllu sr. Sol-
veigu Láru Guðmundsdóttur
í skaut.
475
Vikan í tölum
milljónir króna hefur enska 1. deildarliðið
Wolves samþykkt að greiða fyrir fram-
herjann Björn Bergmann Sigurðarson frá
Lilleström í Noregi.
Norðfjarðargöng taka
þriðjunginn
Norðfjarðargöng taka ríflega þriðjung alls
fjármagns sem ætlað er til vegagerðar
á árinu 2014, samkvæmt nýrri samgön-
guáætlun. Gert er ráð fyrir að um 20
milljarðar fari í vegaframkvæmdir á næstu
þremur árum.
Örmerkja hnakka á Selfossi
Hestamenn á Selfossi örmerkja nú hnakka
sína til að geta rakið þá og fundið ef þeim
er stolið. Þetta eru viðbrögð við innbrotum
og gripdeildum í hesthúsum á Suðurlandi
síðustu mánuði.
Þýsk stríðsáravél í heimsókn
Sjaldséðan gest bar að garði á Reykjavíkur-
flugvelli undir kvöld á miðvikudag, þýska
þriggja hreyfla flugvél af gerðinni Junckers
Ju-52. Þær voru smíðaðar á tímum þriðja
ríkisins og voru meðal annars nýttar af
Hitler.
Tónlistarmaðurinn
John Grant tróð
upp á Hemma og
Valda á dögunum
og var kampakát-
ur að þeim loknum
ásamt hljómsveit
sinni. Frá vinstri
eru Pétur Hall-
grímsson, John
Grant, Arnar
Geir Ómarsson
og Jakob Smári
Magnússon. Ljós-
mynd/Hari
Listasafnið fær verk Sigurjóns
Staðfest var á fimmtudag gjöf Listasafns
Sigurjóns Ólafssonar á listaverkum Sigurjóns
og öðrum eignum safnsins til Listasafns
Íslands. Þar á meðal er hús Sigurjóns í
Laugarnesi, en fasteignamat þess nemur
tæpum 60 milljónum króna. Gjöfin felur
meðal annars í sér að Listasafni Íslands
verða færðar til eignar rúmlega 180 högg-
myndir og 240 teikningar Sigurjóns.
Skriflegum málflutningi lokið
Skriflegum málflutningi í Icesave-málinu
er lokið fyrir EFTA dómstólnum. Íslensk
stjórnvöld hafa svarað greinargerð
framkvæmdastjórnar ESB í málinu og
gagnrýndu málflutning hennar harðlega.
Veiðigjald skili nær 13
milljörðum
Frumvarp um sérstakt veiðigjald var
samþykkt á Alþingi. Það á að skila tæpum
13 milljörðum króna til ríkisins á næsta fisk-
veiðiári. Sjálfstæðismenn hafa talið þetta
gjald of hátt.
Bomba
Héraðsdómur
Reykjavíkur dæmdi
íslenska ríkið til
að greiða miskabætur vegna
yfirlýsingar Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, vegna brots forsætis-
ráðherra á jafnréttislögum.
Guðmundur Andri Thorsson
Kona sækir um embætti, er
raðað neðst í ráðningarmatinu
en telur sig samt hæfasta til
starfans. Eru jafnréttislög
brotin ef það sjálfsmat hennar
er ekki lagt til grundvallar og
hún ráðin, hvað sem öðrum
sjónarmiðum líður? Eða var
svindlað á henni í ráðningar-
matinu og dregið markvisst
úr hæfni hennar til að hleypa
karlinum að?
Eva Hauksdóttir
Kærunefnd jafnréttismála
kemst að þeirri niðurstöðu að
það sé brot gegn jafnréttislög-
um að ráða ekki vanhæfasta
umsækjandann. Héraðsdómur
kemst svo að þeirri niðurstöðu
að þegar sá vanhæfasti heldur
því fram að hann sé bara
víst hæfastur, þá megi ekki
segja frá því hvernig staðan
raunverulega var. Er það þetta
sem kallað er feðraveldi?
Stór bomba
Eiríkur Jónsson, blaðamaður,
hefur aldrei fetað troðnar
slóðir í fréttamennsku sinni en
í vikunni þótti mörgum hann
fara langt út af sporinu þegar
hann tók sjónvarpsviðtal við
fyrrverandi eiginkonu Svavars
Halldórssonar.
Ragnar Thor Petursson
Sjitt! Hvað er í gangi?
Lilja Þorkelsdóttir
Þetta finnst mér fyrir neðan
virðingu fjölmiðils. Sjálfsagt
heldur Eiríkur að þetta hjálpi
framboði Herdísar, náfrænku
hans, - en því er þveröfugt
farið, er ég hrædd um.
Heiða B Heiðars
Það er niðurgangur í herbúðum
athyglissjúlks fyrrverandi fjöl-
miðlamanns og illa innrættrar
konu.
Torfi Geirmundsson
Hér er fagmaður á ferð. Eir
aftur í sjónvarp.
Stærri bomba
Guðbergur Bergsson gerði allt
brjálað á þjóðhátíðardaginn
þegar hann birti grein um mál
Egils Einarssonar á Eyjunni.
Bragi Valdimar Skúlason
Hjúkkitt að Guð-
bergur er ekki for-
seti, hver veit hvað
hann hefði skrifað
undir Icesave?
Helgi Seljan
Grein Guðbergs Bergssonar
gerir álíka mikið fyrir málstað
Egils Einarssonar og það ef leik-
skólakennarar myndu sprengja
leikskóla til að mótmæla upp-
sögnum.
Grímur Atlason
Ég vona að kallarnir 3300 sem
fagna Guðbergi og skrifum
hans þurfi aldrei að horfa upp á
dætur sínar, systur, eiginkonur,
mæður og/eða vinkonur fást
við afleiðingar nauðgunar. Ekki
viss um að kátína þeirra yfir
ummælum eins og “stelpu-
pussulátum” yrði jafn sönn...
Þórarinn Leifsson
Ætli Agli Guðbergi Gilzenegger
sé ekki örugglega boðið í þessa
göngu [Meinta druslugöngu]?
Hefði gott af að skokka þetta
blessaður karlinn. Skokka smá
illsku úr krumpuðum rass-
kinnunum :)
Andri Þór Sturluson
Ekki vissi ég að Guðbergur
Bergson, rithöfundur, væri í
eiturlyfjunum.
Góð Vika
fyrir Þorgerði Ingólfsdóttur
kórstjóra
Slæm Vika
fyrir Jóhönnu Sigurðardóttir
forsætisráðherra
Jafnréttissinni
brýtur jafnréttislög
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í vikunni
Önnu Kristínu Ólafsdóttur 500 þúsund
krónur í miskabætur. Anna Kristín
sótti um stöðu skrifstofustjóra
í forsætisráðuneytinu en Arnar
Þór Másson var ráðinn í stöðuna.
Héraðsdómur kemst að þeirri niður-
stöðu að Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra hafi brotið gegn
ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan
rétt karla og kvenna þegar
hún skipaði Arnar
í stöðuna. Þetta er
augljóslega áfall fyrir
Jóhönnu sem hefur látið sig
jafnréttismál varða og gagn-
rýndi, þegar hún var í stjórnar-
andstöðu, stöðuveitingar
stjórn valda á þeim forsendum.
HeituStu kolin á
Gullmoli í menningarlífinu
Þorgerður var útnefnd Borgarlistamaður Reykjavíkur
þetta árið við hátíðlega athöfn í Höfða á sjálfan
þjóðhátíðardaginn. Þorgerður er heiðruð fyrir
ómetanlegt frumkvöðlastarf í tónlist og menningar-
uppeldi en eins og margir vita er hún
stofnandi Kórs Menntaskólans við
Hamrahlíð og Hamrahlíðarkórs-
ins. Þorgerður hefur leiðbeint
á þriðja þúsund ungmennum í
kórunum tveimur og þeirra á
meðal eru margir af fremstu
listamönnum þjóðarinnar.
Þorgerð-
ur er
sannkall-
aður gullmoli
í menningarlífinu og
óhætt er að fullyrða
að hún er vel að þessari
viðurkenningu komin.
420
talsins urðu sýningar Gísla
Arnar Garðarssonar og
Vesturports á Rómeo og
Júlíu. Þær áttu upphaflega
að vera fimm.
86
þúsund krónur hafa bæst
í launaumslag Jóhönnu
Sigurðardóttur á hverju ári
síðustu þrjú árin.
48
sekúndur tók það Reykvíking
ársins, Theodóru Rafnsdótt-
ur, að setja í fyrsta laxinn í
Elliðaánum þetta sumarið.
Laxinn reyndist sex punda
þegar Theodóra og leið-
sögumaður hennar lönduðu
honum skömmu síðar.
00000
Veiðikortið
37 vötn
Eitt kort
6.000 kr.
www.veidikortid.is
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
30 fréttir vikunnar Helgin 22.-24. júní 2012