Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.06.2012, Page 30

Fréttatíminn - 22.06.2012, Page 30
55 prósent greiddra atkvæði í síðari umferð kjörs vígslu- biskups á Hólum féllu sr. Sol- veigu Láru Guðmundsdóttur í skaut. 475 Vikan í tölum milljónir króna hefur enska 1. deildarliðið Wolves samþykkt að greiða fyrir fram- herjann Björn Bergmann Sigurðarson frá Lilleström í Noregi. Norðfjarðargöng taka þriðjunginn Norðfjarðargöng taka ríflega þriðjung alls fjármagns sem ætlað er til vegagerðar á árinu 2014, samkvæmt nýrri samgön- guáætlun. Gert er ráð fyrir að um 20 milljarðar fari í vegaframkvæmdir á næstu þremur árum. Örmerkja hnakka á Selfossi Hestamenn á Selfossi örmerkja nú hnakka sína til að geta rakið þá og fundið ef þeim er stolið. Þetta eru viðbrögð við innbrotum og gripdeildum í hesthúsum á Suðurlandi síðustu mánuði. Þýsk stríðsáravél í heimsókn Sjaldséðan gest bar að garði á Reykjavíkur- flugvelli undir kvöld á miðvikudag, þýska þriggja hreyfla flugvél af gerðinni Junckers Ju-52. Þær voru smíðaðar á tímum þriðja ríkisins og voru meðal annars nýttar af Hitler. Tónlistarmaðurinn John Grant tróð upp á Hemma og Valda á dögunum og var kampakát- ur að þeim loknum ásamt hljómsveit sinni. Frá vinstri eru Pétur Hall- grímsson, John Grant, Arnar Geir Ómarsson og Jakob Smári Magnússon. Ljós- mynd/Hari Listasafnið fær verk Sigurjóns Staðfest var á fimmtudag gjöf Listasafns Sigurjóns Ólafssonar á listaverkum Sigurjóns og öðrum eignum safnsins til Listasafns Íslands. Þar á meðal er hús Sigurjóns í Laugarnesi, en fasteignamat þess nemur tæpum 60 milljónum króna. Gjöfin felur meðal annars í sér að Listasafni Íslands verða færðar til eignar rúmlega 180 högg- myndir og 240 teikningar Sigurjóns. Skriflegum málflutningi lokið Skriflegum málflutningi í Icesave-málinu er lokið fyrir EFTA dómstólnum. Íslensk stjórnvöld hafa svarað greinargerð framkvæmdastjórnar ESB í málinu og gagnrýndu málflutning hennar harðlega. Veiðigjald skili nær 13 milljörðum Frumvarp um sérstakt veiðigjald var samþykkt á Alþingi. Það á að skila tæpum 13 milljörðum króna til ríkisins á næsta fisk- veiðiári. Sjálfstæðismenn hafa talið þetta gjald of hátt. Bomba Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi íslenska ríkið til að greiða miskabætur vegna yfirlýsingar Jóhönnu Sigurðar- dóttur, vegna brots forsætis- ráðherra á jafnréttislögum. Guðmundur Andri Thorsson Kona sækir um embætti, er raðað neðst í ráðningarmatinu en telur sig samt hæfasta til starfans. Eru jafnréttislög brotin ef það sjálfsmat hennar er ekki lagt til grundvallar og hún ráðin, hvað sem öðrum sjónarmiðum líður? Eða var svindlað á henni í ráðningar- matinu og dregið markvisst úr hæfni hennar til að hleypa karlinum að? Eva Hauksdóttir Kærunefnd jafnréttismála kemst að þeirri niðurstöðu að það sé brot gegn jafnréttislög- um að ráða ekki vanhæfasta umsækjandann. Héraðsdómur kemst svo að þeirri niðurstöðu að þegar sá vanhæfasti heldur því fram að hann sé bara víst hæfastur, þá megi ekki segja frá því hvernig staðan raunverulega var. Er það þetta sem kallað er feðraveldi? Stór bomba Eiríkur Jónsson, blaðamaður, hefur aldrei fetað troðnar slóðir í fréttamennsku sinni en í vikunni þótti mörgum hann fara langt út af sporinu þegar hann tók sjónvarpsviðtal við fyrrverandi eiginkonu Svavars Halldórssonar. Ragnar Thor Petursson Sjitt! Hvað er í gangi? Lilja Þorkelsdóttir Þetta finnst mér fyrir neðan virðingu fjölmiðils. Sjálfsagt heldur Eiríkur að þetta hjálpi framboði Herdísar, náfrænku hans, - en því er þveröfugt farið, er ég hrædd um. Heiða B Heiðars Það er niðurgangur í herbúðum athyglissjúlks fyrrverandi fjöl- miðlamanns og illa innrættrar konu. Torfi Geirmundsson Hér er fagmaður á ferð. Eir aftur í sjónvarp. Stærri bomba Guðbergur Bergsson gerði allt brjálað á þjóðhátíðardaginn þegar hann birti grein um mál Egils Einarssonar á Eyjunni. Bragi Valdimar Skúlason Hjúkkitt að Guð- bergur er ekki for- seti, hver veit hvað hann hefði skrifað undir Icesave? Helgi Seljan Grein Guðbergs Bergssonar gerir álíka mikið fyrir málstað Egils Einarssonar og það ef leik- skólakennarar myndu sprengja leikskóla til að mótmæla upp- sögnum. Grímur Atlason Ég vona að kallarnir 3300 sem fagna Guðbergi og skrifum hans þurfi aldrei að horfa upp á dætur sínar, systur, eiginkonur, mæður og/eða vinkonur fást við afleiðingar nauðgunar. Ekki viss um að kátína þeirra yfir ummælum eins og “stelpu- pussulátum” yrði jafn sönn... Þórarinn Leifsson Ætli Agli Guðbergi Gilzenegger sé ekki örugglega boðið í þessa göngu [Meinta druslugöngu]? Hefði gott af að skokka þetta blessaður karlinn. Skokka smá illsku úr krumpuðum rass- kinnunum :) Andri Þór Sturluson Ekki vissi ég að Guðbergur Bergson, rithöfundur, væri í eiturlyfjunum. Góð Vika fyrir Þorgerði Ingólfsdóttur kórstjóra Slæm Vika fyrir Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra Jafnréttissinni brýtur jafnréttislög Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í vikunni Önnu Kristínu Ólafsdóttur 500 þúsund krónur í miskabætur. Anna Kristín sótti um stöðu skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu en Arnar Þór Másson var ráðinn í stöðuna. Héraðsdómur kemst að þeirri niður- stöðu að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafi brotið gegn ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna þegar hún skipaði Arnar í stöðuna. Þetta er augljóslega áfall fyrir Jóhönnu sem hefur látið sig jafnréttismál varða og gagn- rýndi, þegar hún var í stjórnar- andstöðu, stöðuveitingar stjórn valda á þeim forsendum. HeituStu kolin á Gullmoli í menningarlífinu Þorgerður var útnefnd Borgarlistamaður Reykjavíkur þetta árið við hátíðlega athöfn í Höfða á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Þorgerður er heiðruð fyrir ómetanlegt frumkvöðlastarf í tónlist og menningar- uppeldi en eins og margir vita er hún stofnandi Kórs Menntaskólans við Hamrahlíð og Hamrahlíðarkórs- ins. Þorgerður hefur leiðbeint á þriðja þúsund ungmennum í kórunum tveimur og þeirra á meðal eru margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar. Þorgerð- ur er sannkall- aður gullmoli í menningarlífinu og óhætt er að fullyrða að hún er vel að þessari viðurkenningu komin. 420 talsins urðu sýningar Gísla Arnar Garðarssonar og Vesturports á Rómeo og Júlíu. Þær áttu upphaflega að vera fimm. 86 þúsund krónur hafa bæst í launaumslag Jóhönnu Sigurðardóttur á hverju ári síðustu þrjú árin. 48 sekúndur tók það Reykvíking ársins, Theodóru Rafnsdótt- ur, að setja í fyrsta laxinn í Elliðaánum þetta sumarið. Laxinn reyndist sex punda þegar Theodóra og leið- sögumaður hennar lönduðu honum skömmu síðar. 00000 Veiðikortið 37 vötn Eitt kort 6.000 kr. www.veidikortid.is FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ 30 fréttir vikunnar Helgin 22.-24. júní 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.