Prentarinn - 01.03.1996, Blaðsíða 19
bóta til félagsmanna FBM hefur
félagsmálaráðuneyti falið Félagi
starfsfólks í veitingahúsum. Þessi
aðgerð er hluti af sameiningu
athlutunarnefnda atvinnuleysisbóta.)
Um þessar mundir eru u.þ.b. 40
félagsmenn atvinnulausir. Atvinnu-
lausir félagar geta sótt námskeið hjá
Prenttæknistofnun, Mætti og
hfenningar- og fræðslusambandi
a'þýðu sér að kostnaðarlausu.
^tgáfustarfsemi
hrentarinn er félagsblað FBM og er
gefið út fjórum sinnum á ári.
I Prentaranum er leitast við að
hafa fjölbreytt efni, þ.e. félagslegt
efni, tækninýjungar, viðtöl o.fl.
Pélagsmenn eru hvattir til að skrifa í
Prentarann. Einnig er gefið út frétta-
hréf reglulega rneð hagnýtum
uPPlýsingum um það sem er að
gerast hverju sinni.
^élagsmál
'fmislegt annað félagsstarf er
starfrækt og má þar nefna: Knatt-
spyrnumót fyrirtækja er haldið
ar'ega, brids-, skák- og golfmót og
skógræktarferð í Miðdal. Auk þess
er kaffisamsæti fyrir félagsmenn
1 ■ maí og jólakafft fyrir eldri félags-
ntenn. Eldri félagar fara dagsferð í
°ði félagsins á hverju sumri.
Kvennamál
P Vennahópur er starfræktur hjá
■ Hópurinn heldur fundi einu
S1nni í mánuði yfir veturinn, ýmist
nteð eða án fyrirlesara, og hefur það
a markmiði að stuðla að auknu
Jatnrétti innan prentiðnaðarins.
ar konur eru velkomnar í hópinn.
Orlofshús
á átta orlofshús og eina íbúð,
Sem er í Furulundi 8t á Akureyri. Sex
°r otshús eru í Miðdal, orlofslandi
e agsins rétt við Laugarvatn. Eitt hús
r t Olfusborgum og annað að Illuga-
stoðum í Fnjóskadal. í Miðdal er
e,nnig mjög gott tjaldsvæði einungis
®t að félagsmönnum og gestum
e|rra. Orlofshúsunum er úthlutað í
FÉLAGSMÁL ■ ■ ■
lok apnlmánaðar fyrir sumarið og
skilafrestur umsókna um orlofshús er
auglýstur sérstaklega. Að vetri til er
hægt að leigja þau um helgar eða
viku í senn með stuttum fyrirvara.
Sumarhúsalóöir
í Miðdal er fallegt hverfi sumar-
bústaða í eigu félagsmanna, og sú
uppbygging hefur verið allt frá árinu
1942. Þar hefur fjöldi félagsmanna
reist sér sumarhús. Lóðir til úthlut-
unar eru skipulagðar á góðum stað í
landinu.
Bókasafn
FBM hefur eignast gagnlegt og
merkilegt safn bóka í gegnum
tíðina. f seinni tíð hefur áherslan
verið lögð á fagbækur og fagleg
myndbönd sem lánuð eru félags-
mönnum án endurgjalds. Safnið
hefur ekki ákveðinn afgreiðslutíma,
en starfsmenn eru fúsir til að svala
forvitni félaga um safnið.
Skyndilán
FBM hefur í samstarfi við íslands-
banka milligöngu um skyndilán til
félagsmanna. Upphæð slíkra lána er
allt að 300.000 kr. til 36 mánaða.
Stjórnskipulag
Stjóm félagsins, sem jafnframt er
stjóm sjúkrasjóðs, heldur fundi
hálfsmánaðarlega. Stjómin er
skipuð formanni, sex aðalmönnum
og sex varamönnum. Þrír stjómar-
og varastjórnarmenn em kosnir á
hverju ári til tveggja ára í senn.
Formaður er kosinn í sérkosningu
einnig til tveggja ára. f trúnaðarráði
eru 18 aðalmenn auk stjórnar og
fimm varamenn. Trúnaðarráð er
kosið annað hvert ár. í stjórn
Fræðslusjóðs á FBM tvo fulltrúa og
Samtök iðnaðarins (SI) einn. Stjórn
Prenttæknistofnunar er skipuð
tveimur fulltrúum frá FBM, kosnum
á aðalfundi félagsins, og SI á tvo
fulltrúa. FBM hefur fjögur sæti í
fulltrúaráði Sameinaða lífeyrissjóðs-
ins. Kosið er unt tvö sæti til tveggja
ári á aðalfundi ár hvert.
Auk þess eru ýmsar nefndir
starfandi s.s. ritnefnd, bókasafns-
nefnd, fræðslunefnd og öryggis-
nefnd prentiðnaðarins.
Réttindi
Réttindi félagsmanna em annars
vegar bundin í kjarasamningum og
hins vegar í lögum félagsins. Þau
tengjast þó þannig að sum réttindi
samkv. lögunum verða til í kjara-
samningi. T.d. sjúkra-, orlofs-,
prenttækni- og fræðslusjóður. Mörg
lög, er varða verkalýðsbaráttu, hafa
verið staðfest á Alþingi vegna kröfu
heildarsamtaka verkalýðsins. Rétt er
að nefna fáein lög og ár: Vökulögin
1921, Verkamannabústaðir 1929,
Alþýðutryggingar 1936, Stéttarfélög
og vinnudeilur 1938, Orlof 1943,
Atvinnuleysistryggingar 1956 (hluti
af kjarasamningi eftir verkfall), upp-
sagnarfrestur og réttur fastra starfs-
manna til launa í sjúkdóma- og
slysatilfellum 1958, stytting vinnu-
tímans úr ca. 60 í 48 klst. á viku 1942,
í 44 klst. 1965 og í 40 klst. 1972.
Sameinuð stöndum við
Mörg ofantalin atriði hafa náðst í
samningum hjá einhverju verkalýðs-
félagi og síðar verið staðfest fyrir
heildina. Það má eflaust alltaf gera
betur í baráttunni fyrir bættum kjör-
um. Þó er eitt víst að samtakamáttur
launþega er lykilatriði í þessari
baráttu, um þetta hefði ekki verið
samið inni á teppi hjá forstjóranum í
persónulegum samningi hvers og
eins launþega.
Lokaorð
Það er von mín að greinin hafí verið
upplýsandi fyrir þig, lesandi góður,
og að spurningunum sem settar voru
fram í upphafi hafi verið svarað að
einhverju leyti. Jafnframt má spyrja:
Hvað get ég gert fyrir félagið mitt?
Svarið við þeirri spumingu er í raun
hið sama, því það eruð þið ágætu
félagsmenn sent hafið náð þeim
árangri sem náðst hefur í gegnum
árin og eigið heiðurinn af því sem
félagið er í dag. •
PRENTARINN ■ 1 5