Fréttatíminn - 16.11.2012, Blaðsíða 2
Mikael
Torfason
mikaeltorfason@
frettatiminn.is
Nýr sportjeppi á hrikalega góðu verði
Dacia Duster
Kr. 3.990 þús.
GROUPE RENAULT / NISSAN BL. ehf / Sævarhöfða 2
110 Reykjavík / Sími 525 8000
www.dacia.is
Dísil 5,3L/100 km
Ritstjórar á fundi um þingrof
N emendur og kennarar við Listahá-skóla Íslands fjölmenntu við mennta-málaráðuneytið á fimmtudag til þess
að þrýsta á að ráðist verði í nauðsynlegar úr-
bætur á húsnæðisvanda skólans. Ástandið er
sérstaklega bagalegt hjá leiklistar-, tónlistar-
og dansdeild skólans við Sölvhólsgötu.
„Það er búið að setja niður fullt af litlum
skúrum hérna fyrir framan bygginguna sem
eiga að vera einhverjir plástrar,“ segir Stefán
Jónsson, prófessor við leiklistardeildina.
„Þar fer öll danskennslan fram og þar er ekki
einu sinni sturtuaðstaða fyrir bæði kynin
þannig að þetta er algerlega fyrir neðan allar
hellur.“
Stefán segir vandann vera langvarandi og
skólinn hafi í raun verið á hrakhólum síðan
hann varð til árið 2000. „Við erum búin að fá
útttekt frá byggingafulltrúa og brunaeftirliti
sem sögðu okkur það sem við svosem viss-
um. Að þetta væri algjörlega í trássi við allt
sem leyfilegt er.“ Stefán segir allt í ólestri í
húsinu við Sölvhólsgötu. Aðstaðan sé í trássi
við allt sem leyfilegt er og brunavörnum sé
til dæmis mjög ábótavant. „Það þarf að gera
eitthvað í þessu, ekki seinna en núna. Þetta
hefur legið lengi hjá sofandi samráðshópi og
við höfum fengið hálfvolg loforð um úrbætur
en ekkert hefur gerst.“
Stefán segir rekstur skólans hafa verið
til fyrirmyndar fram að hruni og hann hafi
verið réttu megin við núllið. „En þegar til
niðurskurðarins kom í hruninu þá var af litlu
sem engu að taka þannig að við erum komin
inn í merg og bein og vel það. Nú er þetta
orðin alvöru spurning um hvort við getum
yfirleitt haldið áfram að keyra það sem við
höfum gert að óbreyttu.“
Til að bæta gráu ofan á svart stendur til að
bæta við mastersnámi í leiklist við deildina
en Stefán segir slík áform ekki eiga við rök
að styðjast við þessar aðstæður. „Mennta-
málaráðherra hefur talað fyrir því að hér
verði öflugt listnám og það eigi að bæta við
mastersprógrammi en við getum ekki tekist
á við það. Hvað þá heldur bara að halda uppi
grunnstarfseminni hérna.“
Starfsfólk og nemendur skólans mótmæltu
ástandinu við menntamálaráðuneytið á
fimmtudag. Stefán segir hópinn svartsýnan
en við þetta verði ekki lengur unað. „Við
gerum okkur grein fyrir að ástandið er erfitt
en það er ekki hægt að búa við þetta lengur
og við vitum að það er alveg hægt að redda
einhverju húsnæði og gera það sómasamlegt
þannig að við getum haldið áfram starfsemi.
Við þurfum að fá meira en einhverjar svona
nefndir sem sofa. Nú eru kosningar í vor og
við vitum ekki annað en að ríkisstjórnin hafi
í hávegum einhver gildi sem innibera menn-
ingu og listir. Þannig að við vildum gjarnan
sjá verkin tala og þurfum að fá eitthvað meira
en nefndir sem sofa.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Nýir eigendur Vesturgötu
2 ætla sér stóra hluti en
annar eigendanna er breskur
ríkisborgari. Afi hans fann upp
þotuhreyfilinn.
MiðbæriNN SteiNdór SigurgeirSSoN keypti kaffi reykjavík
Getur orðið eitt glæsilegasta hús bæjarins
„Við ætlum okkur að gera
þetta hús að einu af glæsi-
legustu húsum bæjarins,“
segir Steindór Sigurgeirsson
kaupsýslumaður sem nýverið
festið kaup á Vesturgötu 2,
svokölluðu Kaffi Reykjavík
húsi, ásamt viðskiptafélaga
sínum, Jason Whittle, sem
Steindór segir breskan ríkis-
borgara en afi hans fann upp
þotuhreyfilinn.
„Það er búið að eiga sér stað
mikil uppbygging í miðbæn-
um síðustu ár og búið að gera
upp fjölmörg hús,“ segir Stein-
dór og endurtekur að fyrir
þeim félögum vaki að gera
húsið að sannkallaðri perlu í
Reykjavík.
Steindór er menntaður
sjávarútvegsfræðingur og
rekur fyrirtæki í sjávarútvegi.
Hann hefur meðal annars búið
í Hong Kong og aðspurður um
sögur þess efnis að pening-
arnir fyrir húsnæðinu komi
frá Kína hlær hann og segir:
„Það er enginn Núbó með mér
í þessu.“
Það er enginn
Núbó með mér
í þessu.
LiStaháSkóLiNN kyNiN SaMaN í Sturtu
Hallæri í húsnæðismál-
um ógnar skólastarfi
Þannig að
við vildum
gjarnan sjá
verkin tala
og þurfum
að fá eitt-
hvað meira
en nefndir
sem sofa.
Starfsemi Listaháskóla Íslands er dreifð víða um borgina þar sem nemendur og kennarar þurfa
að sætta sig við þrengsli og húsnæði sem í sumum tilfellum þykir heilsuspillandi og hættulegt.
Stefán Jónsson, prófessor við leiklistardeildina, segir ástandið fyrir neðan allar hellur og að-
stæður séu engan veginn boðlegar. Að óbreyttu segir hann óvíst hvort skólinn geti haldið hefð-
bundnu starfi sínu áfram og hugmyndir um að bæta við mastersnámi í leiklist séu fráleitar í
þessu ástandi. Starfsfólk og nemendur þrýsta á stjórnvöld um aðgerðir.
Stefán Jónsson prófessor segir listafólk oft seinþreytt til vandræða og oft með einhvern þrælsótta um að það megi missa sín.
„Við vitum nú svosem að það er ekki þannig og við viljum að það verði gert eitthvað í þessu. “
Vilja stoppa
nýjan spítala
Minnihluti Sjálfstæðis-
flokks mótmælir áfram
fyrirhugaðri byggingu
nýs Landspítala og
greiddi í gær, fimmtudag,
tillögu gegn breytingu á
svæðisskipulagi höfuð-
borgarsvæðisins sem
nauðsynleg er svo ráðast
megi í byggingu spítalans.
Að sögn Júlíusar Vífils
Ingvarsson, borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins,
hefur flokkurinn frá upp-
hafi talið að bygginga-
magnið sem um ræðir sé
of mikið fyrir svæðið.
„Eftir öll þau mótmæli
sem borist hafa vegna
þessara miklu uppbygg-
ingar við Landspítalann
er ég hissa á því að enn
sé vaðið áfram með
breytingar á skipulagi í
stað þess að staldra við,
endurmeta stöðuna og
taka tillit til þess sem
borgarbúar eru að segja,“
segir Júlíus. -sda
Snilldarlausn fyrir tölvunörda
Tveir nemar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Gunnar Örn
Bragason
og Hrannar
Elí Pálsson,
sigruðu í
keppninni
Snilldar-
lausnir
Marel 2012
– hug-
mynda-
keppni framhaldsskólanema með svokölluðum tölvuvagni.
Að sögn Gunnars auðveldar tölvuvagninn að tengja borð-
tölvuna. „Tölvunördar eins og ég vita hvað það er leiðinlegt.
Með tölvuvagninum er hægt að færa tölvuna úr stað og því
verður auðveldara að tengja hana,“ segir Gunnar. -sda
Óhollusta og hreyfingarleysi
mest á Íslandi
Íslendingar neyta mest allra Norðurlandaþjóða af sætindum
og mest af hvítu brauði, samkvæmt niðurstöðum úr nýrri
samnorrænni könnun sem landlæknisembætti þjóðanna
stóðu fyrir. Mataræði Íslendinga og Svía er óhollast á
Norðurlöndunum þegar horft er til hlutfalls íbúa sem neyta
holls mataræðis, samkvæmt tilteknum stuðli. Þátttakendur
með hærra menntunarstig, af báðum kynjum, höfðu almennt
hollara mataræði en þátttakendur með grunnmenntun. Hlut-
fall þeirra sem stunda enga hreyfingu er hæst á Íslandi, rúm
14 prósent, og erum við feitust allra Norðurlandabúa. -sda
Styrmir Gunnarsson hleypir lesendum inn í bakherbergi
Sjálfstæðisflokksins í bók sinni Sjálfstæðisflokkurinn – Átök
og uppgjör sem kemur út í dag. Meðal þess sem þar kemur
fram er að veturinn 1985 voru ritstjórar Morgunblaðsins,
þeir Styrmir og Matthías Johannessen, boðnir ásamt Birni
Bjarnasyni aðstoðarritstjóra til hádegisverðar á vegum
Sverris Hermannssonar þáverandi iðnaðarráðherra í
Ráðherrabústaðnum. Fundinn sátu einnig Þorsteinn Páls-
son og Davíð Oddsson. „Erindið var að tryggja stuðning
okkar við hugmyndir um að rjúfa þing og efna til kosninga
þá um vorið. Okkur varð ljóst að einn megintilgangurinn
var að skapa forsendur fyrir skipan nýrra ráðherra af hálfu
Sjálfstæðisflokks í ríkisstjórn. Við aftókum það með öllu að styðja
slíkar aðgerðir,“ segir Styrmir í bók sinni. Þorsteinn Pálsson var þá
formaður flokksins en utan stjórnar.
Styrmir
Gunnarsson.
2 fréttir Helgin 16.-18. nóvember 2012