Fréttatíminn - 16.11.2012, Blaðsíða 84
Bílabúð Benna dekkjaþjónusta
Tangarhöfða 8 • Sími: 590 2045 • 590 2000
Dekkið
sem kemur
þér lengra
Umboðsmenn um land allt
Vilja dýpka skilning almennings á dansi
Ég á örugglega aldrei
eftir að fara í splitt
Dansparið Erna og Valdimar hafa farið sigurför um Evrópu ásamt sviðslistahópi sínum Shalala.
Þau fara að meðaltali út með sýningu tvisvar í mánuði og selja upp víðast hvar. Athygli vekur að
Valdimar er aðeins að stíga sín fyrstu danspor á ævinni í nýja verkinu þeirra, Við sáum skrímsli,
en hann hefur helst unnið bak við tjöldin að uppsetningu sviðsverkanna. Einnig hafa þau tekið við
stjórn Reykjavik Dance Festival og eiga sér draum um að færa dansinn nær almenningi.
Verkið Við sáum skrímsli hefur farið sigurför um Evrópu. Dansparið á bak við verkið tekur við stjórn Reykjavík Dance Festival.
V ið horfum á hryllingsmyndir og hlustum á metal,“ segir listaparið Erna Ómarsdóttir og Valdimar
Jóhannsson aðspurð hvaðan þau fengu
sköpunarkraftinn í nýjasta verk sitt, Við
sáum skrímsli. Saman mynda þau dans-
hópinn Shalala og hafa á undanförnum
árum ferðast saman milli stórborga þar
sem þau sýna dansverk. Þau hafa slegið í
gegn á ferðum sínum um Evrópu og víða
selst upp á sýningar þeirra. Þau eru einnig
nýkomin frá Japan þar sem þau sýndu verk í
samvinnu við rokkhljómsveitina Reykjavík!
„Þetta var svona jaðarsöngleikur ef við ætt-
um að setja það í einhverja flokka,“ útskýrir
Valdimar. Þau segja að Japanir séu frábærir
áhorfendur, „þeir eru svo skemmtilega
klikkaðir.“
Það er skammt stórra högga á milli hjá
þeim þar sem parið mun einnig koma til
með að taka við stjórn Reykjavík Dance
Festival á næsta ári og ætla sér stóra hluti.
„Það hefur ekki verið nein stórsókn í dansi
hér á landi, en það er samt að breytast. Ég
finn að það er eitthvað að gerast,“ segir
Erna, en hún hefur áralanga reynslu í
faginu. Valdimar er hinsvegar að stíga sín
fyrstu skref í dansheiminum, en hann hefur
hingað til séð um tónlist og uppsetningu
verkanna. Hann hefur nú hnýtt á sig dans-
skóna. „Ég á örugglega aldrei eftir að fara
í splitt,“ segir hann kíminn og bætir við
að dansinn sé líklega þægilegasta vinnan
sem hann hefur unnið yfir ævina en hann
vann áður við löndun. „Hún er að minnsta
kosti það besta fyrir heilann. Miklu meira
gefandi en löndunin.“ Parið hefur miklar
væntingar til Reykjavík Dance Festival og
er ætlun þess að koma á samböndum á milli
íslenskra dansara og erlendra. „Við erum
partur af mjög stóru „networki“ og okkur
langar til þess að nýta okkar sambönd
til þess að auka útflutning á íslenskum
dansi,“ segir Valdimar og Erna bætir við að
mikið vanti uppá flæði inn og út úr íslensku
senunni. „Það er líka draumurinn okkar að
festivalið verði að Airwaves dansheimsins,
það komi til með að dýpka skilning almenn-
ings á danslistinni almennt.“
Maria Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Það er líka
draumur-
inn okkar
að festival-
ið verði að
Air waves
dans-
heimsins.
Reykjavíkurnætur
eftir Arnald Indriðason
Ingvar E. Sigurðsson les
Hl
jóð
bó
k
www.ebækur.is
84 menning Helgin 16.-18. nóvember 2012