Fjölnir


Fjölnir - 04.07.1997, Blaðsíða 24

Fjölnir - 04.07.1997, Blaðsíða 24
Halldór Björn Runólfsson (K)veljum íslenskt nema miklu betri en ungir, íslenskir listamenn láta frá sér fara. Þannig hefur hann um árabil reynt að halda niðri vaxtarbroddinum í íslenskri listsköpun, bersýnilega út af engu öðru en öfúnd og illgirni. Honum væri nær að tala um „stuld“ eða „sníkjur" þekktra, erlendra listamanna á íslensku hugviti, en það dettur honum aldrei í hug vegna inngróins fjandskapar síns við þá samlanda sína sem verst hafa orðið fyrir barðinu á þessum erlenda „þjófnaði". Það er því upplagt áður en lengra er haldið að leggja í dóm lesenda hvort um hnupl sé að ræða eða eitthvað annað. Hér kemur fýrra dæmið: Árið 1985 varð bandaríski myndhöggvarinn Haim Steinbach heimsfrægur fyrir uppstillingar sínar á ýmsum varningi sem hann raðaði upp á þar til gerðar hillur í Cable Gallery í New York. Mörgum íslenskum listáhugamanninum var brugðið því verk Steinbachs voru svo kunnugleg að menn klóruðu sér í hausnum og hváðu: „Hvar hef ég séð þetta áður?“ Þeir sem höfðu um fimmtán ára minni eða meira mundu vel eftir svipuðum röðum Sicurðar Guðmundssonar á varningi sem hann kallaði Full House og sýndi árið 1971 í Galerie Balderich í Mönchengladbach í Þýskalandi. Samstillingar Sigurðar á gólfi og hillum byggðu á pari af varn- ingi við hlið þriggja sambærilegra hluta eins og fúllt hús á hendi í pókerspili. Þótt vissulega megi greina ákveðinn hugmyndalegan mun á verkum Sigurðar og fjórtán árum yngri uppstillingum Steinbachs kemur skynrænn skyldleikinn í veg fyrir að maður njóti verka hins síðarnefnda sem skyldi. Hvernig má vera að menn geti öðlast heimsfrægð fyrir jafngreinilega endurtekið efni? Hitt dæmið og nýlegra eru „negatífar“ gips- myndir enska myndhöggvarans Rachel White- read, en hún var gestur Listahátíðar í Reykjavík í fyrra. Whiteread varð fræg undir lok síðasta ára- en svaraðu mér þessu, Ósk Vlltijálmsdóttlr tugar fyrir jfsteypur sínar í gips af tómarúmi sem myndast við allar hugsanlegar aðstæður og tæki- færi. Svo óheppilega vill til að nágranni hennar í Lundúnum, Magnús Pálsson, myndlistarmaður, leikmyndateiknari og kennari, var þá löngu orð- inn þekktur fyrir „negatíft verk“ sitt Sekúndurnar þar til Sikorsky-þyrlan snertir sem hann sýndi á Bíenalnum í Feneyjum um tíu árum fyrr, eða árið 1980. Verk Magnúsar samanstendur af þremur, hvítum epoxýklumpum sem mynda nákvæman þríhyrning eins og þann sem er milli dekkjanna á gömlu Sikorsky-þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ofan í íbjúgt yfirborð klumpanna er greypt farið eftir dekk þyrlunnar. Magnús „fyllir“ með öðrum orðum tómarúmið milli hjólanna og vallarins í þann mund sem þyrlan lendir. Þegar hann sýndi verkið í íslandsskálanum í Feneyjum var hann búinn að vinna í ein fimm ár að gerð slíkra nega- tífra höggmynda með nákvæmlega sömu for- „Myndlistarfólk er ofiast á skjön við þjóðfélagið ogfyrir vikið nýtur það meirafielsis en mjög margir þjóð- félagsþegnar. Og þrátt fyrir lág meðallaun og mikið vœl tilheyrir mynd- listarfólkfor- réttindastétt. “ Fj 24 o 1 n i r tirrwit handa islcndingum sumar '97 1. Af hverju stundar þú myndlist? „Ég hef fengið mikilvæga hvatningu utan frá sem hefur reynst mér ögrun til að halda áfram. Að vinna að myndlist, halda sýn- ingar og fá aldrei nein viðbrögð er til lengdar vonlaust mál — í mínu tilfelli í það minnsta. Ég gengi ekki endalaust á innri þörf og sköpunarkraftinum góða. Maður verður að hafa á tilfinning- unni að þetta skipti einhverju máli, að maður sé ekki bara að þessu fyrir sjálfan sig." 2. Hvað hefur aðallega mótað list þína? (bannað að vísa til listrænna áhrifavalda og íslenskrar náttúru) „Ég byrjaði í málaradeildinni, var ung, efnileg og áköf. Síðan kom að því að mér fannst listrænir hæfileikar út af fyrir sig ekki koma mér neitt áfram. Ég lenti í smá krísu sem snerist meðal annars um mikilvægi listrænna hæfileika og tilgang listsköpun- ar yfirleitt. Og smátt og smátt jókst áhugi minn á hvunndags- menningu sem varð til annars vegar í gegnum móðurhlutverk- ið sem tengdi mig meira við jörðina; hins vegar í gegnum kúrsa sem ég valdi mér I náminu, nýja stefnu sem ég tók i náminu með nýjum prófessorum með önnur viðhorf til myndlistaren ég hafði vanist áður. Ég fór að fá meiri áhuga á fólki en mynd- list." 3. Hvernig hefur list þín mótað umhverfið? „Ég frétti að dag einn í desember hefði skapast umferðarteppa í ingólfsstræti þegar slidesmyndum á minum vegum var varpað út ijólamyrkrið." 4. Hver er eftirmínnilegasta stundin á ferlinum? „Ég geri engan skýran greinarmun á „ferli mínum" og lífi mínu almennt." 5. Ef þú værir lokuð inni í herbergi í tíu ár og mættir mála það, hvaða lít myndir þú velja? „Þegar ég var lítil var blátt uppáhaldsliturinn minn — ég hef ekki hugmynd um hvers vegna. Og ég málaði herbergið mitt kóbalblátt. En fullorðin og meðvituð á ég eiginlega engan uppáhaldslit lengur. Litir hafa oft svo mikla merkingu, maður sér þá ekki fordómalaust..." 6. Nefndu fimm bækur/greinar sem opnuðu þér nýjan skilníng á listum. „Susan Sontag: On Photograþhy, Gallazzi: Pleasures and Terror of Domestic Comforts, August Sander: Menschen des 20. Jahr- hunderts, Duchamp: The Bride and the Bachelor, Andy warhol: Philosophy A to B and Back Again." 7. Hvað einkennir góða myndlist? „Myndlist þarf ekki endilega að vera góð eða slæm, það skiptir máli að hún fúnkeri." 8. Af hverju á það besta í íslenskri myndlist fullt erindi við umheiminn? „Pað besta i íslenskri myndlist á hvorki meira né minna erindi en það besta í útlenskri myndlist. Spurningin er hvort mynd- listin éigi eitthvert erindi yfirhöfuð." 9. Hvernig hefur vægi myndlistar aukist undanfarinn áratug? „Mikilvægi myndmenntunar er að aukast, myndmálið er alltaf að verða mikilvægara (auglýsingar, margmiðlun o.s.frv.) en kannski er mikilvægi myndlistarað minnka. Pörfin fyrir myndlist er kannski líka að minnka. I dag er erfiðara að vera ungur og reiður en oft áður. Engin krassandi pólitík, alls staðar samskon- ar blandað lýðræðiskerfi, ekkert hægri og vinstri, ekkert svart og hvítt. Myndlistin á ef til vill eftir að þróast út i að verða myndskreyting." 10. Hver er höfuðstyrkleikí þinn? „kostir mínir eru jafnframt gallar. f þýska listumhverfinu þyki ég vera sþontant og fljót að framkvæma án þess endilega að þurfa að hafa kenningar og fleira á bak við mig. Ég flokkast þar frekar undir „Bauchmensch" heldur en „Koþfmensch". Á íslandi er staðan einhvern veginn öðruvísi. Hér flokkast ég sennilega undir „Koþfmensch" frekar en „Bauchmensch"." 11. Tílgreindu þrjár ástæður fyrir sýningarhaldi þínu sem ekki liggja í augum uppi. „Mér finnst oft mikilvægt að hafa sýningu til að vinna að. Pað veitir ákveðið aðhald og í mínu tilfelli verða verkin oft fyrst til út frá sýningu og þeirri sitúasjón sem fylgir sýningarstaðnum." 12. Skiptir almenningshylli þig máli? „Hvað er almenningur og hvar er hann? Býr hann í Breiðholt- inu? Ég vona að myndlistin mín höfði ekki bara til þröngrar elítu og að mínu mati er það mikilvægt atriði fyrir myndlist yfirhöfuð." 13. Hvað er mest gefandi við það að vera myndlistarmaður? „Það eru forréttindi þegar maður getur skaþað sér verkefni sjálfur og unnið útfrá eigin forsendum. Myndlistarfólk er oftast á skjön við þjóðfélagið og fyrir vikið nýtur það meira frelsis en mjög margir þjóðfélagsþegnar. Og þrátt fyrir lág meðallaun og mikið væl tilheyrir myndlistarfólk forréttindastétt." ia. Að hve miklu leyti lifir þú á listinni (og hvernig bitnar það á þínum nánustu)? „Mér hefur tekist að lifa nokkurn veginn á listinni síðan ég lauk námi (styrkir o.fl.) en ég sé fram á að það komi til með að breyt- ast í íslenska raunveruleikanum." 15. Ef þú fengir 70 milljónir fyrir að búa ekki til myndlist, tækir þú boðinu? „Ef ég fengi allt í einu 70 milljónir væri ég orðinn ellilífeyrisþegi fyrir aldur fram, sem er frekar dauflegt fyrir unga og efnilega listakonu. Ég held raunar að ef trésmiður á besta aldri þyrfti að hætta að vinna uþþ á sömu býti myndi hann ekki samþykkja það heldur." 16. Á hvern hátt hefur myndlistin gert þig að heilsteyptari manneskju? „Þetta á ekki aðeins við um myndlist en ég held að ef maður tekur einhverja ákvörðun (og áhættu) af heilum hug og reynir að fylgja henni eftir og er sæmilega ánægður í þeim farvegi þá hljóti maður að koma út sem heilsteyþtari manneskja en ella." 17. Á hvern hátt hefur myndlistin treyst þjóðfélagsstöðu þina? „Ég endurtek — þrátt fyrir að ég fái stundum dálítið skrítið augnaráð þegar ég segist vera myndlistarmaður — að ég tilheyri forréttindastétt." 18. Hvar sérðu sjálfa þig eftir 20 ár? „Eftir 20 ár á ég uppkomin börn, kannski barnabörn og verð sennilega nokkuð ánægð með mig. Þegar ég hugsa svona langt fram í tímann er eitt sem ég hef smá áhyggjur af og það eru lífeyrissjóðsmál myndlistarmanna." 19. Hvernig sérðu framtíð myndlistarinnar fyrir þér? „Myndiist, auglýsingar og hönnun eru að renna saman í eitt og allt stefnir í eitt allsherjar hnattvætt myndmál (kannski kryddað smá þjóðlegum klisjum frá hverjum stað). Ég er ekkert viss um að myndlistin eigi langa framtíð sem sérstök grein." 20. Hvernig viltu að þín verði minnst? „Ég ætla að láta aðra um minningargreinarnar."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.