Læknablaðið : fylgirit - 01.02.1978, Qupperneq 23

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.1978, Qupperneq 23
AF HAGLEIK LÆKNISHANDA - 21 Sýnishorn úr sjúkradagbókum fíjörns Ólafssonar augnlœknis frá 1902 sem var þá algeng bæði hér á landi og í nágrannalöndum, en þekkist nú vart eða ekki. Einnig munu þessir kvillar hafa verið fylgifiskar hörgulsjúkdóma og skorts á almennri mótstöðu hjá þjóð, sem leið af næringarskorti og bjó í lélegum og köldum húsakynnum og átti vart skjólflíkur eða vatnshelda skó. Björn skráir allmarga sjúklinga með fylgikvilla kirtlaveiki í augum (keratitis og conjunctivitis phlyctenularis, augnbóluangur), en þó tiltölulega færri en Guðmundur Hannesson á Akureyri. Börn og unglingar þjáðust oft mánuðum eða árum saman af þessum ömurlega kvilla og þurftu að hafast við í hálfrökkri, því þau þoldu enga birtu. Margir báru ævilöng örkuml af þessum augn- meinum, því stundum kom fyrir að vagl kom á glæru eða bólgan hljóp inn í augað og hafði sjóndepru í för með sér. Algengt var að herpingur kom í augnalok með stöðugu tárarennsli. Er greinargóð lýsing á einkennum og meðferð augn- bóluangurs í Læknablaði Guðm. Hannessonar [30]. Einn alvarlegasti bólgusjúkdómur í augum var skriðsæri á glæru (ulcus corneae serpens) og fylgikvilli þess, gröftur í framhólfi augans (hypo- pyonkeratitis) og holbekkt sár á glæru með innklemmdri lithimnu. Leiddi þetta oft til verulegs sjóntaps eða blindu, þar eða sjúklingarnir fengu oftast litubólgu, drer, vagl á glæru og stundum glærugúlp (staphyloma corneae). Oft lyktaði þessu með fylgigláku (glaucoma secundarium), er blind- aði augað og stundum þurfti að ncma það brott vegna verkja. Að hægfara gláku undanskilinni voru skriðsár á glæru sá sjúkdómur, sem stakk augun úr höíði fleiri íslendinga en nokkur annar augnkvilli. Sem betur fer er þessi sjúkdómur nú sjaldgæfur, eða kemst sjaldan á hátt stig, því lækning er nú ekki torveld, ef nógu snemma er tekið í taumana. Öðru máli var að gegna á dögum Bjöms. Lækning var erfiðleikum bundin, en Birni lánaðist oft að lækna þennan sjúkdóm, ýmist með lyfjum, brennslu eða skurðaðgerð. Hinn 23. janúar 1899 leitaði 30 ára vinnumaður úr Ölfusi til Björns. Sjúkdómsgreiningin var hypopyonkeratitis OD. Hafði sjúkdómurinn byrjað fyrir 4 vikum. Kringlótt sár var á miðri glæru, rúmlega 2 mm að þvermáli. Hypopyon, er nær yfir hálft framhólf. Gerð var paracentesis corneae þvert yfir sárið og ögn út fyrir það báðum megin. Paracentesissárið var opnað þrjá næstu daga vegna hypopyon. Atropin og jodoform var gefið daglega og sjúklingur útskrifaðist og fór til síns heima eftir 3 vikur á góðum batavegi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.