Kjarninn - 29.08.2013, Síða 30
meðal annars með kaupum á hluta- og skuldabréfum. Til að
vera gjaldgengur í Einkabankaþjónustu Arion banka þarftu
að setja að minnsta kosti tíu milljónir króna í stýringu.
Þessir þrír aðilar stýra því allir starfsemi þar sem fjárfest er í
skuldabréfum.
Margir leikendur á markaði, og starfsmenn annarra fjár-
málafyrirtækja, eru mjög hissa, og jafnvel reiðir, yfir þessari
stöðu. Þeim þykir augljóst að fjárfestar muni ekki sitja við
sama borð né hafa sama aðgengi að upplýsingum þegar
fulltrúar ákveðinna fjármálafyrirtækja sitja í hópunum. Þeir
fulltrúar muni hafa innherjaupplýsingar er varða skulda-
bréfamarkað. Þótt ekki sé tilefni til að ætla að umræddir
aðilar nýti upplýsingarnar til að hjálpa fyrirtækjum sínum að
hagnast skapi þessar aðstæður vantraust á markaði sem leiði
til þess að viðskipti verði tortryggð.
FME sendi dreifibréf
Kjarninn sendi fyrirspurn á Fjármálaeftirlitið (FME) til að
athuga hvort það hefði gert einhverjar athugasemdir við
setu starfsmanna fjármálafyrirtækja í sérfræðingahópunum,
hvort farið yrði fram á að þeir vikju úr sínum daglegu störf-
um á meðan hóparnir störfuðu, og ef ekki, hvort viðskipti
sem fyrirtækin sem þessir þrír aðilar starfa hjá yrðu vöktuð
sérstaklega í ljósi þess að þeir myndu búa yfir mögulegum
innherjaupplýsingum.
3/06 kjarninn Efnahagsmál
smelltu til að lesa dreifibréf fmE
um reglur um meðferð innherja-
upplýsinga og viðskipti innherja
Nýr EFNahagsráðgjaFi ríkisstjórNariNNar
Benedikt árnason, sem starfað
hefur sem ráðgjafi hjá samkeppnis-
eftirlitinu, hefur verið ráðinn efna-
hags ráðgjafi ríkisstjórnarinnar og
allra þeirra ráðgjafanefnda sem hún
hefur skipað. Benedikt mun vinna í
samkeppniseftirlitinu út september-
mánuð og í kjölfarið hefja störf sem
efnahagsráðgjafi. hann hefur unnið
hjá eftirlitinu frá 1. nóvember 2010. Í
kveðjubréfi sem Benedikt sendi sam-
starfsfólki sínu sagði hann: „...það
áreiti og illa umtal sem óhjákvæmi-
lega fylgir slíku starfi [efnahags-
ráðgjafa] finnst mér ekki fýsilegt.
Viðræður mínar síðustu vikur við
forsætisráðuneytið og fjármálaráðu-
neytið hafa hins vegar fært mér heim
sanninn um hversu spennandi er að
vinna í þeim óvenjulega krefjandi
verkefnum sem nú bíða úrlausnar,
svo sem afnám gjaldeyrishafta“.