Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.1984, Síða 7
IFRÉTTIR
•*. i. fjfe
PpÉr " mÆ&m'ÍKM- ' 1 'Mlll' .Im . I i
: VbbÍ 1 & Æ JafiJBisMsP1 M.
j mmr
v j
1 ÍMsíFI' 5. I
1 J % * 1 . mm ¥
[ . II \ j
\Æ M ~4 BwjHí. Mb~ Æ Æ 2 L
. A JHh
„Mér leist vel á táning-
ana mína“
Síðastliðinn laugardag lék
IBV sinn fyrsta leik á þessu
keppnistímabili. Var leikinn
æfingaleikur við Þrótt hér í
Löngulág. Leiknum lyktaði
með sigri IBV 2-0 og skoruðu
Jón Oli og Sigurjón mörk
IBV.
Þjálfari IBV, Einar Frið-
þjófsson hafði þetta um leik-
inn að segja:
„Hvernig mér leist á tán-
ingana. Jú, bara vel. Það
vantaði hjá okkur tvo menn,
Kára Þorleifs og Jóa Georgs.
En annars var þetta bara gott
hjá peyjunum. Aðstæðurnar
voru nú ekki uppá það besta,
rok og svoleiðis. En ég hef
enga ástæðu til annars en
vera kátur, og held að þetta
geti orðið betra.
Hlynur og Lúlli spiluðu á
miðjunni ogstóðu sigþrælvel.
Og vörnin sterk. Þeir voru
haffsentar Þórður og Snorri.
Og bakverðir Þórarinn Þór-
halls og Viðar. Síðan skipti
Þórarinn við Óla Árna. Eins
voru markverðirnir Bimbó og
Steini Gunnars ágætir. Steini
varði t.d. tvisvar sinnum
alveg stórglæ'silega.
Næstu leikir hjá okkur
verða á laugardaginn við
Fram og Akurnesinga á ann-
an í páskum.
Tvö Eyjalið komin
í 1. deild
í handboltanum
Um síðustu helgi luku
Þórarar keppni sinni í 2.
unnu tvo af þeim þrem
leikjum sem þeir léku. Unnu
Fram með 23 mörkum gegn
18, og Breiðablik með 34
mörkum gegn 26. Töpuðu
hins vegar fyrir Gróttu með
24 mörkum gegn 25. Var
sigurmark Gróttu, eina skipt-
ið sem þórarar voru undir í
leiknum.
Báru leikirnir nokkurn
keim af því, að úrslit deild-
aiinnar voru löngu ráðin.
I lokin voru Þórurum og
Breiðablik afhent sigurlaunin
í 2. deild. Og við heim-
komuna, beið hópur dyggra
stuðningsmanna Þórs á ílug-
vellinum og tók á móti
sigurvegurunum með blóm-
um og kampavíni. Á mynd-
um Sigurgeirs, hér að ofan er
hópurinn við heimkomuna,
en því miður vantaði Gylfa
Birgisson og Karl Jónsson,
sem voru fjarri góðu gamni í
betta sinn.
Gylfi
marka-
kóngur
Hin unga stórskytta,
Gylfi Birgisson, varð
markakóngur Þórsliðsins
þetta árið. Skoraði alls 157
mörk í 2. deildinni, einu
marki meira en Þorbergur
Aðalsteinsson. En lítum á
markaskorið í heild:
Gylfi Birgisson......157
Þorb. Aðalsteinsson . . 156
Ragnar Hilmarsson ... 65
Sigbjörn Óskarsson ... 58
Páll Scheving..........47
Óskar F. Brynjarsson . 42
Karl Jónsson ..........32
Þór Valtýsson..........28
Herbert Þorleifsson ... 19
Elías Bjarnhéðinsson .. 18
Gestur Mattíasson......2
Sigmar Þ. Óskarsson ... 2
Lokastaðan í efri
hluta 2. deildar:
Þór ................ 44 stig
Breiðablik.......... 34 stig
Grótta.............. 29 stig
Fram................ 25 stig
Eftirmáli.
Það verður að teljast til
mikils áfanga hér í Vest-
mannaeyjum, að nú skuli
Eyjarnar geta státað af tveim-
ur 1. deildarliðum í hand-
bolta í fyrsta sinn í sögu
handboltans. En það skyggir
á slík tímamót, að Týrurum
tókst ekki að fylgja eftir
góðum árangri sínum í 3.
deildinni framan af vetri og
ná 2. deildarsæti. En það
kemur vetur eftir þennan,
sagði Stefán Jónsson form.
handknattleiksdeildar Týs í
viðtali við Fréttir fyrir
nokkru.
En hversvegna skyldi það
einmitt verða nú, að við
eignumst tvö 1. deildarlið?
Handboltaiðkun hólst al
alvöru hér í Eyjum með
tilkomu Iþróttahússins árið
1976. Síðan hefur verið stöð-
ug framþróun hjá okkur í
íþróttinni, góður stigandi.
Hjá stelpunum small þetta
saman nú, bæði er að þær
hafa haft þjálfara, sem hefur
haft góð tök á því sem hann
hefur verið að gera. Og svo
hitt, að hópurinn er sam-
stilltur og þær þekkja orðið
hvor aðra. Hafa á að skipa
nokkuð jöfnu liði og tveimur
stórskyttum. Leikreynsla
verður án efa þeirra þyngsta
þraut næsta vetur í 1. deild-
inni.
Hjá Þórurum eru það fyrst
og fremst þrotlausar æfingar,
samhliða góðri liðsheild, sem
hefur verið tilbúin að leggja
mikið á sig og frábærum
þjálfara og stjórnanda, sem
sannarlega verður eftirsjá í.
Það er áreiðanlega sann-
leikur, að ekkert vestmanna-
eyskt íþróttalið hefur nokk-
urn tíman æft eins mikið og
þetta Þórslið hefur gert.
Þegar síðasta leiknum var
lokið, þá voru það einmitt
orð Þorbergs Aðalsteinssonar
til leikmanna sinna, að nú viti
þeir hvað það er, sem skapi
meistarann.
Um Týsliðið er það að
segja, að varla er við því að
búast að þeir geti náð topp-
árangri, eins og mál hafa þar
æxlast. I hitteðfyrra var þar
þjálfari að nafni Stefán
Halldórsson, maður sem ekki
tók sitt hlutverk alvarlega og
enda veturinn hrein martröð
fyrir liðið. I fyrra var hins-
vegar verið að reyna að gera
góða hluti, en afraksturinn
enginn. Svo er það í vetur, að
Sigurlás Þorleifsson tekur að
sér þjálfunina, en hverfur á
braut á miðju tímabili. Þar
misstu Týrarar auk þess sína
einu skyttu, sem skorað hafði
meiripart marka þeirra. Þá
tekur Þorvarður Þorvaldsson
við hans hlutverki sem þjálf-
ari. Þá var hinsvegar orðinn
of naumur tími, til að fylla
skarð Sigurláss og liðið missti
af lestinni í þetta sinn. Þetta
ætti hinsvegar að verða þeim
sá lærdómur, að svona eigi
ekki að stýra. til sigurs.
Þær 10
vinsælustu:
hjá
MUSIK OG MYNDUM:
1. The Mackintosh men
2. The man with the golden
gun.
3. Shining
4. Hellisbúinn
(The cavemen)
5. The last song
6. Demantar vara að eilífu
7. North by northwest
8. Arthur
9. Pabbi tekur til
10. Eldíjallaeyjan
Fasteigna-
markaðurinn
Skrifgtofa Vnstmannaoyjum
Barugotu 2. 2 h»ö ViAtalstimi.
15 30-19 00, þriðjudaga
laugardaga Simi 1847
Skrifstofa Reykjavik Garða
straeti 13 Viðtalstimi a
manudogum Simi 13945
Jón Hjaltason hrl
Þorbergur
Það er nú afráðið, að
Þorbergur Aðalsteinsson
muni ekki þjálfa 1. deildarlið
Þórs í handbolta næsta vetur.
En hvað skyldi hann hafa um
veturinn í vetur að segja. Við
slógum á þráðinn:
,,Ég var náttúrlega ekkert
öruggur með það, að við
næðum þessum áfanga, að
vinna okkur sæti í 1. deild.
Hinsvegar stefndum við frá
upphafi að því, í áföngum.
Fyrst að komast í 4 liða
úrslitin og síðan að 1. deildar-
sætinu. Og auðvitað er mað-
ur ánægður, eftir svona vel
heppnað úthald. Um næsta
vetur vil ég segja það, að ég
tel að strákarnir eigi alla
möguleika á að standa sig í 1.
deildinni. Ég vona bara að
það takist að fá góðan þjálf-
að kveðja
ara, því það þarf að fmisera
margt hjá þeim. Og endilega
að gefa sér góðan tíma til
æfinga í sumar.
Ég held að eftirminnileg-
asti leikurinn í vetur, hafi
verið fyrri leikurinn við
Breiðabíik í deildinni. Hann
var leikinn í Mosféllssveit og
vannst. Eftir hann fannst mér
allt miklu bjartara. Þeirvoru
ekki eins góðir og ég hélt, og
sigurinn íagaði mikið stöð-
una hjá okkur.
Það hefur verið mjög gam-
an að vera hér í Eyjum í vetur
og mikinn lærdóm, sem ég hef
fengið af dvölinni.
Mig langar svo bara til að
þakka Eyjamönnum fyrir góð
kynni í vetur og það verður
gaman að mæta Þórurunum í
1. deildinni næsta vetur.