Búskapur hins opinbera 1994-1995 - 01.04.1996, Page 28

Búskapur hins opinbera 1994-1995 - 01.04.1996, Page 28
hefur vandinn verið mjög mismunandi milli einstakra landa, en meginvandinn hefur verið: (1) Ofullnægjandi aðgangur að heilbrigðisþjónustu, (2) Oásættanlegur vöxtur heilbrigðisútgjalda og (3) Ohagkvæmur rekstur og slæleg frammistaða þjónustueininga. Ljóst er að í framtíðinni munu miklar breytingar í aldurssamsetningu flestra þjóða og hraðar tækniframfarir enn auka á þennan vanda. Mikið umrót hefur því verið í aðildaríkjunum við að ná tökum á þessum vanda. Gripið hefur verið til Qölmargra kostnaðaraðhaldsaðgerða13 og einnig hefur verið ráðist í róttækar skipulagsbreytingar í sama skyni. í þessari vinnu hefur samanburður milli landa komið að góðu gagni við að varpa ljósi á svipuð vandamál og svipaðar lausnir. Þótt heilbrigðiskerfí einstakra landa séu um margt frábrugðin þá eru íjölmargir þættir sameiginlegir og því má hafa gagn af slíkum samanburði. Með hliðsjón af þessari framvindu er Ijóst að stefnumörkun í heilbrigðismálum verður meginmál margra OECD-ríkja á næstu árum. 8.1.1 Markmið í heilbrigðismálum Flest OECD-ríki keppa að svipuðum markmiðum í heilbrigðismálum. í fyrsta lagi að jöfnuði sem felst í því að viðunandi lágmarks heilbrigðisþjónusta standi öllum til boða án þess að ógna efnahag þeirra. Þjónustan tekur m.ö.o. mið af þörfum sjúklinga en ekki tekjum. I öðru lagi að þjóðhagslega hagkvœmu þjónustustigi, þar sem kostnaður við heilbrigðisþjónustu yfirstigi ekki þann ávinning sem hún gefur. Þetta markmið er af almennum toga, oft sem ákveðið hlutfall af landsframleiðslu, og miðar að því að draga úr umframeftirspurn og offramboði á þjónustu. í þriðja lagi að rekstrarhagkvœmni sem felur í sér að hámarka heilbrigðisárangur og hag sjúklinga við lágmarkskostnað. I ljórða lagi að valfrelsi sjúklinga við eftirspum eftir þjónustu og í fimmta lagi að læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk hafí sem mest faglegt sjálfstœði í starfi sínu. Ljóst er af þessum markmiðum að margar þjóðir eiga langt í land hvað þau varðar. Einnig að sum markmiðin falla saman að hluta og önnur stangast á. Spurningin er ofit um jafnvægi milli markmiða, s.s. milli jafnaðar og hagkvæmnissjónarmiða. 8.1.2 Frjáls markaður í flestum atvinnugreinum leysir frjáls markaóur, með viðeigandi tekjudreifingu fyrir tilstuðlan hins opinbera, það verkefni best af hendi að ná ofangreindum mark- miðum. Samkeppnismarkaður er á flestum sviðum efnahagsstarfseminnar árangurs- *3 Ein algengasta kostnaðaraðhaldsaðgerðin í opinberu kerfi er strangt aðhald á Jjárlögum (oft með refsingu sé farið framúr heimildum en umbun að öðrum kosti). Einnig hefur verið gripið til strangs aðhalds í mannahaldi og í jjárfestingu. Myndun biðlista hafa einnig verið inn í myndinni með vissum skilyrðum. Sömuleiðis kostnaðarþátttaka sjúkiinga, bestukaupalistar fyrir lyf, fjölbreyttara form á þjónustu o.s.frv. Þá hafa ýmis hagkvæmnishvetjandi greiðslukerfi verið notuð eins og svokallað DRG-greiðslukerfi, en samkvæmt því er sett verð á meðferð sérhvers sjúkdóms. Efasemdir eru um margar þvingandi aðhaldsaðgerðir (macro) þar sem þær snerta oft á tíðum ekki hvata kerfana sem nauðsynlegt er til að árangur þeirra verði varanlegur, og hafa jafnvel neikvæð áhrif á framleiðnina. 26
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Búskapur hins opinbera 1994-1995

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búskapur hins opinbera 1994-1995
https://timarit.is/publication/1008

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.