Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Page 73

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Page 73
Allar þessar tegundir vaxa að vísu í nágrenni garðsins, nema bláklukkulyngið, það gat ég ekki fundið þarna í gilinu annars staðar, og er það atliyglisvert að það skyldi berast í garðinn, því það er eitt hinna svokölluðu útsveitaplantna, sem að- eins finnast við utanverðan Eyjafjörð, en þetta dæmi sýnir ótvírætt, að það vantar ekki dreifingarhæfni, og vantar þvi ekki af þeim sökum í innsveitunum. Hið sama er raunar að segja urn litunarjafnann. Samsetning gróðursins í garðinum er nokkuð önnur en utan hans, enda eru tegundirnar saman komnar í garðinum af meiri eða rninni tilviljun. Hið næsta garð- inum var næstum einlitur krækilyngsmór og grasbrekkur með finnung og ilmreyr, en bláberjalyngsmór lengra í burtu. Þar höfðu tegundirnar af aldalangri reynslu skipað sér saman eftir kröfum sínum og liæfni, þar var gróðurinn orðinn stöðugur, við þau skilyrði sem nú ríkja (loftslag, beit o. s. frv.), en í garðinum ægir öllu sam- an, og því má búast við að þar verði allmiklar breytingar á gróðrinum á næstu ára- tugum. A meðan torfgarðurinn helzt við og skýlir garðinum, og veldur því að fönn leggur þar yfir á vetrum, er líklegt að gróður garðsins verði nokkuð frábrugðinn næsta umhverfinu. Mosalyngið, bláklukkulyngið og litunarjafninn eru allt snjó- dældaplöntur, sem líklegar eru til að geta keppt við kræki- og bláberjalyng, meðan skilyrðin eru lítið breytt í garðinum. Loks er það athyglisvert, að engin ræktarplanta er enn við lýði í garðinum, og engin illgresisplanta heldur. Það eina, sem ef til vill vitnar um ræktun og mannavist er munablómið, en jrað finnst j)ó víðar í dalnum. H.Hg. GÓÐAR GJAFIR TIL GRASASAFNSINS Á AKUREYRI. A árunum 1966—67 hafa grasasafni Náttúrugripasafnsins á Akureyri borizt niargar góðar gjafir, sem vert er að jmkka, og verður þeirra helztu getið hér á eftir. Stærsta gjöfin er urn 1500 eintök sænskra plantna, sem prófessor Askell Löve í Boulder, Bandaríkjunum, gaf safninu síðastliðinn vetur (jan. 1967), en safn þetta hafði hann fengið í skiptum fyrir íslenzkar plöntur fyrir nokkrum áratugum síðan. Safnið er svokallað exsiccat, en svo kalla útlendingar plöntusöfn, sem gerð eru í allmörgum eintökum (sama tegund frá sama fundarstað á allt að 20 spjöldum) og síðan „gefin út“ á svipaðan hátt og bækur. Eru slík söfn því vandlega upplímd, með prentuðum merkimiðum, og jafnan vandað sem mest til nafngreininga teg- undanna. Ennfremur fylgir slíkum söfnum prentaður listi (Schedae) yfir tegundir safnsins, og inniheldur hann venjulega allar sömu upplýsingar og merkimiðarnir, enda prentaður sramhljóða jreim. Utgáfa þessa exsiccats, sem hér um ræðir, var hafin af prófessor G. Samuelsson í Stokkhólmi um 1930, enda er safnið venjulega kennt við hann, en síðari hlutinn er gefinn út af prófessor Eric Hultén, sem okkur er að góðu kunnur. Þarf því vart að efa, að nafngreiningar séu vandaðar, þar sem slíkir höfuðskörungar liafa vélt um safnið. Þess má geta, að tegundir sænsku flórunnar eru oftast taldar um 2000 og sést af því, að safnið nær yfir um þrjá fjórðu hluta hennar. Eins og gefur að skilja eru margar tegundir í safninu hinar sömu og hérlendis vaxa, og er það mikilvægt að TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - Flóra 71
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði
https://timarit.is/publication/1052

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.