Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2007, Síða 20
miðvikudagur 22. ágúst 200720 Skóladagar DV
Verkmenntaskólinn á Akureyri er jafnframt því að vera einn stærsti fram-
haldsskólinn á landinu eini skólinn á landsbyggðinni sem býður upp á fjar-
nám. Fjarnám virkar þannig að nemendur stunda námið einungis í gegnum
netið og þurfa því ekki að mæta í kennslustundir. Eftirspurn eftir fjarnámi
óx hratt fyrstu árin eftir tilkomu þess og hefur það nú fest sig í sessi sem full-
gild og fær leið að stúdentsprófi.
Fjarkennslan er
óháð stað og stund
„Árið 1994 tók Haukur Ágústs-
son upp á því tilraunaverkefni
að kenna ensku í gegnum netið,
en það var upphafið að fjarnámi
hér í Verkmenntaskólanum,“ seg-
ir Ingimar Árnason, kennslustjóri
fjarnáms við Verkmenntaskól-
ann á Akureyri. Það eru því 13 ár
síðan skólinn hóf að bjóða upp á
áfanga sem einungis eru kenndir í
gegnum netið. Ingimar segir mik-
ið vatn hafa runnið til sjávar síðan
Haukur reið á vaðið.
Frá tölvupóstum til
kennsluvefja
Fyrst voru aðeins nokkrir tug-
ir nemenda í fjarnámi við skólann
en eftir því sem námsframboð
og tölvuvæðing jókst hefur eftir-
spurnin eftir fjarnámi farið vax-
andi. „Þetta vatt hratt upp á sig
og fjótlega buðum við upp á flesta
bóklega áfanga til stúdentsprófs. Í
kjölfarið bættist við bóklegur hluti
meistaraskóla iðnsveina í flest-
um iðngreinum,“ útskýrir Ingi-
mar. Hann segir fjarnámið sjálft
hafa tekið miklum breytingum
frá því kennsla hófst 1994. „Þetta
hefur verið að þróast frá því að
vera nær eingöngu kennt í gegn-
um tölvupóstsendingar, í það að
vera kennt í gegnum kennsluvefi
eins og Web CT. Þar geta nem-
endur nálgast öll námsgögn, tekið
próf og leyst verkefni svo fátt eitt
sé nefnt. Nemendur eru því ekki
háðir tölvupóstsendingum frá
kennara heldur geta sótt náms-
efnið þegar þeim hentar.“
engar kennslustundir
Undanfarin ár hefur ný
kennslutækni rutt sér rúms, svo-
kölluð fjarkennsla, þar sem nem-
endur mæta í kennslustundir sem
sjónvarpað er úr kennslustofum í
skólunum sjálfum. Ingimar seg-
ir Verkmenntaskólann ekki hafa
í hyggju að nýta sér þann mögu-
leika. „Við stillum fjarkennslunni
þannig upp að hún sé óháð stað
og stund. Nemandinn fer inn á
vefinn þegar hann hefur tíma en
þarf ekki að mæta í kennslustund
á fyrir fram ákveðnum tíma. Þegar
nemendur þurfa að binda sig við
námið og mæta í kennslustund-
ir er ekki alveg hægt að kalla það
fjarnám í þeim skilningi sem við
leggjum í orðið. Þá er það orðið
eins konar blanda af fjarnámi og
dreifnámi.“
hröð fjölgun fjarnámsnema
Undanfarin ár hafa á bilinu sjö
til átta hundruð manns stundað
fjarnám við Verkmenntaskólann
á Akureyri. Ingimar segir fjöld-
ann fara hægt vaxandi. „Fram
til aldamóta fjölgaði nemend-
um mjög hratt. Þetta byrjaði í
nokkrum tugum sem urðu svo
að nokkrum hundruðum þeg-
ar á leið. Eftir árið 2000 hægði
verulega á fjölguninni en und-
anfarin þrjú ár hafa á milli sjö
og átta hundruð manns stundað
fjarnám við skólann.“ Aðspurð-
ur segir Ingimar fjarnámið ekki
dýrara en staðbundið nám. „Fólk
greiðir fast einingagjald fyr-
ir fyrstu 9 einingarnar. Eftir það
kemur til endurgreiðsla þannig
að nemandi sem er í fullu námi
greiðir heldur minna en sá sem
er í staðbundnu námi.“
Fjölbreytt val
Ingimar segir fjarnámið gera
það að verkum að nemendur
hafa aukið val um hvernig þeir
haga náminu. „Fjarnámið opnar
svo marga möguleika fyrir fólk.
Fólk getur valið um að hve miklu
leyti það stundar skólann. Ef fólk
er til dæmis að vinna með skól-
anum, þá getur það valið að taka
hluta námsins í hefðbundnu
námi og hluta í fjarnámi. Þannig
getur það sniðið skólann að sín-
um þörfum. Mér finnst hafa orð-
ið aukning í því að fólk haldi
vinnunni áfram þótt það setj-
ist á skólabekk.“ Ingimar segir
að undanfarin ár hafi nemend-
um í 9. og 10. bekkjum grunn-
skóla staðið til boða að stunda
nám við skólann og sé það eitt
skýrasta dæmið um fljótandi skil
milli skólastiga. „Þeir nemend-
ur sem velja að þreyta eitt eða
fleiri samræmd próf í 8. eða 9.
bekk geta sótt um að fá að hefja
nám í einstökum fögum hjá okk-
ur. Jafnvel þótt þeir eigi 10. bekk-
inn eftir. Þá halda þeir sínu striki
í grunnskólanum en taka svo
einn eða fleiri áfanga í fjarnámi
á framhaldsskólastigi.“
Skóladagar
Ingimar árnason, kennslustjóri
fjarnáms við VMa segir færast í
vöxt að grunnskólanemendur skrái
sig í einn og einn fjarnámsáfanga.
D
V
m
yn
d
Vi
lh
el
m
Skoðið
Gagnvirkt efni og leikir – heima og í skólanum
Það er leikur að læra á vef Námsgagnastofnunar
má finna ýmislegt fróðlegt
og skemmtilegt fyrir krakka á
öllum aldri. Vefurinn er opinn
fyrir alla.
Á www.nams.is
NÁMSGAGNASTOFNUN