Félagsbréf - 01.01.1955, Blaðsíða 39

Félagsbréf - 01.01.1955, Blaðsíða 39
FÉLAGSBRÉF 29 verk rithöfundarins Þóris Bergsson- ar. Var efnt til kynningarinnar í til- efni af sjötugsafmæli Þóris. Hlutverk stjórnarinnar hefur hins vegar fyrst og fremst verið að tryggja félaginu nægilegt rekstursfé og aðstöðu til þróttmikillar starf- semi. Þegar á fyrsta stjórnarfund- inum, hinn 17. febrúar, var fimm fé- lögum í Almenna bókafélaginu falið að gangast fyrir stofnun hlutafélags til að tryggja fjárhagslegan grund- völl Bókafélagsins. Hlutafélagið Stuðlar var formlega stofnað hinn 18. maí 1955. Hafði þá tekizt að afla hlutafjárloforða, sem námu 500.000,00 krónum, en sú fjár- hæð var talin algjört lágmark til að hrinda af stað svo veigamikilli út- gáfu, sem Almenna bókafélagið hafði á prjónunum. Á stofnfundi Stuðla h.f. var kosin bráðabirgðastjórn fyrir fé- lagið. Var Geir Hallgrímsson, hér- aðsdómslögmaður, kosinn formaður og með honum í stjórn þeir: Hall- dór S. Gröndal, framkvæmdastjóri, Kristján L. Gestsson, framkvæmda- stjóri, Loftur Bjarnason, forstjóri, og Magnús Víglundsson, forstjóri. Tilgangur hlutafélagsins Stuðla er .,að styðja og efla bókaútgáfu og menningarstarfsemi í landinu, hafa með höndum sjálft og í samráði við aðra bókaútgáfu, bóksölu og aðra skylda starfsemi“. Fé það, sem aflað hafði verið á stofnfundi Stuðla h.f., hugðist félag- ið lána Almenna bókafélaginu, svo að það gæti hrundið af stað útgáfu sinni. Almenna bókafélaginu gekk mjög erfiðlega að afla sér hagkvæms hús- næðis fyrir starfsemi sína. Varð því •að ráði, að Stuðlar keyptu hluta af fasteigninni Tjarnargata 16 í Reykjavík og tryggðu Bókafélaginu þar aðsetur. í sambandi við þá ákvörðun var hafin ný sókn til að afla aukins hlutafjár til Stuðla h.f. og hefur hlutafjársöfnun gengið mjög vel, svo að Stuðlar hafa þegar leyst af hendi sitt fyrsta virðulega hlutverk að tryggja fjárhagslegan grundvöll Bókafélagsins. Skrifstofa Almenna bókafélagsins, Tjarnargötu 16, hefur framkvæmt ákvaríanir stjórnar og bókmennta- ráðs. Meginkapp hefur verið lagt á öflun félagsmanna, en allir þeir, sem gerast félagar fyrir næstu áramót, verða taldir til stofnenda Almenna bókafélagsins. Hefur félagið nú í þjónustu sinni hátt á annað hundrað umboðsmenn um allt land, og vinna þeir að kynningu á félaginu, öflun félagsmanna, dreifingu bóka félags- ins og innheimtu félagsgjalda. I Reykjavík annast skrifstofa félags- ins þessi störf. Árangurinn af öflun félagsmanna hefur orðið meiri en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Þegar þetta er ritað hafa nákvæmar upplýsingar ekki borizt frá umboðsmönnum fé- lagsins, og er því ekki tímabært að birta árangurinn af fyrstu sókn fé- lagsins. Þó er óhætt að fullyrða, að Almenna bókafélagið verður þegar á fyrsta starfsári sínu eitthvert fjöl- mennasta og sterkasta menningar- félag, sem starfað hefur hérlendis. Hverjum einstökum þátttakanda í Bókafélaginu — og svo auðvitað fé- laginu í heild — er það geysimikið hagsmunamál, að félagatalan aukist sem allra mest, því að útgáfukostn- aður einstakra bóka lækkar mjög

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.