Félagsbréf - 01.01.1958, Blaðsíða 52

Félagsbréf - 01.01.1958, Blaðsíða 52
42 FÉLAGSBRÉF Thomas. Hann kafar jafnvel niður í leyndardóm fóstursins, áður en það kemur í heiminn. Ekkert nútímaskáld hefur mér vitan- lega tjáð í ríkara mæli gleðina yfir því að vera til, lifa, anda. Það er stundum eins og sjálfur púls lífsins slái í kvæðum hans. Thomas hafði skrifað fjöldann allan af ljóðum innan við tvítugt. Mikið af skáldskap hans er brot úr sjálfsævisögu, en hann er jafnframt algildur: tjáir almenna reynslu uppvaxt- arins. Kjarninn í verkum hans er lífið og dauðinn, samleikur þeirra, tvíræðið. Það er eins og maður og náttúra renni saman í dulúðga heild hjá honum; hann á sterka trúræna æð. Dylan Thomas hefur í miklu ríkara mæli en Auden tragíska sýn á lífinu. Hann horfist í augu við hin tragísku lögmál alls, sem lífsanda dregur: hrörnunina, dauðann. En hin sterka vitund hans um dauðann og fallvaltleikann verður hon- um tilefni lofsöngs um lífið. Hann er lofsyngjandi skáld engu síður en Hopkins, Rilke og Auden. Vitund hans um dauð- ann skerpir lífsskynjan hans; lífið verður honum fegurst af því hann sættir sig við endalokin. Ljósið er eitt af algengustu tákn- unum í ljóðum hans. Lífsskilningur hans er ekki ósvipaður skiln- ingi grísku harmleikaskáldanna. Dylan Thomas er líklega skyldari D. H. Lawrance en nokkru öðru skáldi. Báðir sáu þeir einingu allra hluta, samband manns- ins við náttúruna og alheiminn; báðum var tíðrætt um hin „myrku öfl blóðsins", um manninn nakinn og frumstæðan. Báðir notuðu mikið táknmál Biblíunnar. Eitthvert kunnasta kvæði Thomas „Fern Hill“, gefur góða hugmynd um stílbrögð hans. Dylan Thomas.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.