Fjárfesting 1945-1989 - 01.06.1991, Page 14
Samkvæmt þessu var tæpum 20% landsframleiðslunnar ráðstafað til
fjárfestingar á árinu 1989. Sé litið yfir lengra árabil hefur þetta hlutfall verið á
bilinu 17,2-32,1%. í töflu 8.4 í töfluhluta skýrslunnar er meðal annars að
finna yfirlit yfir hlutfallslega skiptingu landsframleiðslunnar samkvæmt
ofangreindum meginliðum ráðstöfunaruppgjörsins. Sýndar eru hlutfallstölur
yfir allt tímabilið 1945-1989. í töflu 8.3 eru sýndar heildartölur um fjárfest-
ingu allt tímabilið frá 1945-1989.
1.3 Söguleg þróun skýrslugerðar um fjárfestingu.
Með lögum frá 24. desember 1953 var Framkvæmdabanka íslands falið að
fylgjast með fjárfestingu í landinu. Með sömu lögum var bankanum falið að
semja þjóðhagsreikninga, en fjárfestingarskýrslugerðin er hluti þeirra.
Fyrstu áætlanir Framkvæmdabankans um fjárfestingu voru birtar í riti
bankans „Úr þjóðarbúskapnum“, sem út kom í júní 1955. Á næstu árum var
unnið að öflun upplýsinga um fjárfestingu frá og með árinu 1945 og voru
niðurstöður birtar í riti bankans.
Frá og með 1954 hóf Innflutningsskrifstofan að safna heimildum um
byggingarstig húsa og vinna úr þeim skýrslur bæði um byggingarframkvæmd-
ir og um fullgerðar byggingar, en byggingarframkvæmdir áranna 1945-1953
voru unnar úr sundurleitum og fremur ófullkomnum gögnum. Reykjavík var
eini staðurinn sem ítarlegar upplýsingar lágu fyrir um. Allar byggingartölur
árin 1945-1953 gilda um fullgerðar byggingar hvert ár, en frá og með 1954
gilda þær um byggingarframkvæmdir hvers árs, þ.e. áfallinn byggingarkostn-
að á hverju ári. Með lögum nr.30 frá 1960 var Framkvæmdabankanum falið
að annast þá skýrslugerð um byggingarstarfsemi, sem Innflutningsskrifstofan
hafði áður haft með höndum. Byggingarnefndir og byggingarfulltrúar senda
skýrslur um byggingarframkvæmdir í umdæmum sínum, eins og nánar er