Fjárfesting 1945-1989 - 01.06.1991, Blaðsíða 23
Tegundaskipting fjárfestingarinnar felst í skiptingu fjárfestingarinnar í
eftirtalda fjóra liði:
Byggingar
Vélar og tæki
Önnur mannvirki
Bústofnsbreytingar (frá og með árinu 1957)
Tegundaskiptingin er sýnd í sömu töflum og atvinnugreina- og geiraskipt-
ingin. Til véla og tækja í tegundaskiptingunni teljast skip, flugvélar og
bifreiðar til atvinnurekstrar auk hefðbundinna véla og tækja. Til annarra
mannvirkja teljast raforkumannvirki, hita- og vatnsveitur og samgöngu-
mannvirki en þó að undanskildum byggingum pósts og síma, útvarps og
sjónvarps. Þessar byggingar ásamt Flugstöð Leifs Eiríkssonar eru taldar með
byggingum. Að auki eru eftirtaldir liðir flokkaðir með öðrum mannvirkjum:
ræktun og girðingar, landgræðsla og skógrækt, klak- og eldisstöðvar og
loðdýrarækt.
Síðasti liður tegundaskiptingarinnar, bústofnsbreytingar, eru taldar með
fjárfestingunni frá og með 1957. Fyrir þann tíma voru bústofnsbreytingarnar
ýmist sjálfstæður liður eða meðtaldar í birgðabreytingum. Um þennan lið er
nánar fjallað í kafla 2.1 um skilgreiningu fjárfestingar. Þessi breyting var gerð
til samræmis við þjóðhagsreikningakerfi Sameinuðu þjóðanna.
Framangreind yfirlit eru sýnd bæði á verðlagi hvers árs og eins á föstu
verði. Tilgangurinn með umreikningi til fasts verðs er að fá mynd af
þróuninni þar sem áhrifum verðbreytinga hefur verið eytt. Grunnár staðvirð-
ingar eru þrjú en það eru árin 1960, 1969 og 1980. Fjárfesting áranna 1945 til
1965 er verðlögð á verði ársins 1960, árin 1965 til 1977 er árið 1969 lagt til
grundvallar en árin 1977-1989 er það árið 1980. Ár eru tvítekin til þess að
hægt sé að tengja frá einu verði til annars. Ut frá þessum fastaverðstölum eru
magnvísitölurnar (töflur 5.1-5.6) reiknaðar. í töflum 6.1-6.6 er sýnd hlut-
fallsleg skipting fjárfestingarinnar og er þá miðað við verðlag hvers árs.
Auk talna um fjárfestingu sem eru að sjálfsögðu meginefni skýrslunnar eru
í 7. töflukaflanum birtar ýmsar upplýsingar til þess að varpa frekara ljósi á
fjárfestinguna. Má þar nefna tölur um rúmmál fullgerðra bygginga, þjóðar-
auð og fleira. í 8. og síðasta töflukaflanum eru birtar ýmsar yfirlitstölur um
þjóðarbúskapinn.
4. Heimildir og aðferðir við mat á einstökum fjárfestingarliðum.
Fjárfestingarskýrslan nær yfir 45 ára tímabil. Á þessum tíma hefur orðið
nokkur breyting á áætlunaraðferðum, en reynt hefur verið að haga þeim
breytingum þannig, að samræmi verði sem best milli ára. Hér á eftir verður í
stuttu máli getið helstu heimilda og áætlunaraðferða, og verður vikið að
hverjum lið fjárfestingarinnar í þeirri röð sem þeir eru birtir í hinu sundurlið-
aða yfirliti.