Fjárfesting 1945-1989 - 01.06.1991, Blaðsíða 38
Hlutfall framkvæmda við íbúðarhús af landsframleiðslu í nokkrum löndum
árin 1975, 1980 og 1988.
1975 1980 1988
% % %
Danmörk 6,7 5,3 4,2
Noregur 5,5 4,7 5,0
Svíþjóð 4,0 4,7 4,8
Finnland 8,1 7,2 6,5
ísland 6,6 6,2 4,0
Bretland 4,4 3,8 4,0
Vestur-Þýskaland 5,8 6,8 5,2
Frakkland 8,4 7,4 5,2
Bandaríkin 3,9 4,5 4,8
Meðaltal 5,9 5,6 4,9
Heimild: OECD, National Accounts.
Hlutfall íslands er í hærra lagi árin 1975 og 1980, en lægst ásamt hlutfalli
Bretlands árið 1988. Það ber að hafa í huga, hvað ísland varðar, að hlutfall
íbúðabygginga af landsframleiðslu er í lægð 1988. Hlutfall íslands að
meðaltali á árunum 1945-1988 er 6,3%.
Á árunum 1945-1989 var lokið byggingu 68.300 íbúða. Ef gert er ráð fyrir
því að 3 íbúar búi að meðaltali í hverri íbúð, lætur nærri að byggt hafi verið
yfir 205 þús. manns, eða rúmlega 80% þjóðarinnar miðað við mannfjölda í
árslok 1989. Frá árinu 1945 til ársins 1989 fjölgaði þjóðinni um rúmlega 123
þús. íbúa. Á þessu sést, hve mikið hefur áunnist í húsnæðismálum á umræddu
tímabili.
5.5 Byggingar og mannvirki hins opinbera.
Framkvæmdir við byggingar og mannvirki hins opinbera hafa aukist að
meðaltali um 4,7% á ári frá 1945 til 1989. Framkvæmdir voru í hámarki 1976
og 1981. Frá árinu 1981 til ársins 1989 drógust framkvæmdir saman um 11%.
Þessum samdrætti valda minni raforkuframkvæmdir og minni hitaveitufram-
kvæmdir.
Hlutfall bygginga og mannvirkja hins opinbera af heildarfjárfestingu varð
hæst á árunum 1952, 1968, 1969 og 1976, um og yfir 40%. Öll þessi ár voru í
gangi miklar framkvæmdir við raforkumannvirki. Lægst varð hlutfall bygg-
inga og mannvirkja hins opinbera af heildarfjárfestingu 19% 1955 og 20%
1948.
5.5.1 Rafvirkjanir og rafveitur.
Raforkuframkvæmdir voru mestar á árunum 1975-1976 og á árunum
1980-1982. Framkvæmdir hafa dregist mikið saman frá 1982. Árið 1989 voru
raforkuframkvæmdir aðeins 42% þess sem þær voru árið 1981.