Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Page 26

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Page 26
FELAGSMAL 7. mynd jafnlega eftir. Minnstu sveitarfélög- in hafa dregist æ meira aftur úr. Þau eru í eins konar vítahring; það er ætlast til að þau veiti þjónustu sem þau ráða ekki við sakir mannfæðar og einmitt vegna þessa þjónustu- leysis flýr fólk þau á náðir hinna burðarmeiri bæja. Sveitarstjórnir hafa lengst af hvorki borið gæfu til þess að sameina hreppa né taka upp samvinnu um þjónustu og horfa margar aðgerðalitlar, sumar jafnvel í besta skapi, á þessa þróun, sem getur ekki endað nema á einn veg. Núna er sprottið upp ákaflega flókið og ógagnsætt opinbert til- færslukerfi peninga í landinu, sem a.m.k. í orði hefur að markmiði að jafna kjör fólks; með öðrum orðum taka fé af hinum betur megandi og aflögufæru og flytja til hinna verr stöddu, dæmi: tekjutrygging, upp- bót, heimilisuppbót, sérstök uppbót, bensínstyrkur, vaxtabætur, húsa- leigubætur, bamabætur, barnabóta- auki o.s.frv. o.s.frv. Hrói höttur beitti tiltölulega gagnsærri aðferð við kjarajöfnun; hann rændi ríkis- bubba og gaf fátækum en það er alls ekki auðsætt hver samanlögð heild- amiðurstaða þessara tilfærslna allra í íslenska velferðarkerfmu er; hvort fé er í raun tekið af hinum vel stæða og hvort það sem tekið er lendir í raun hjá hinum illa stæða. (1. mynd). Margir óttast að í reynd sé það sem hinir fátæku fá alls ekki komið frá hinum ríku, heldur til dæmis frá þeim næstfátækustu, þannig að til verði hringrás fólks kringum fátækt- armörkin; aðferð við tekjujöfnun sem stundum er kölluð „haltur-leið- ir-blindan“. (2. mynd). Árið 1991 voru sett lög um fé- lagslega þjónustu sveitarfélaga og þá féllu framfærslulögin frá 1947 úr gildi. Hvað fjárhagsaðstoð snerti breyttu þessi nýju lög að vísu ýmsu en þó ekki því meginatriði að sveit- arfélögin hafa eftir sem áður skyldu til að veita þeim íbúum fjárhagsað- stoð til framfærslu sem þeim er sjálfum um megn - að aðstoðin skuli vera sem nauðsyn krefur - og eftir sem áður er það á ábyrgð sveit- arstjómar að meta hve mikils nauð- syn krefur, þ.e. hve mikil fjárhags- aðstoðin skal vera hverju sinni. Nýtt var hins vegar í lögunum frá 1991 að sveitarfélögin eru nú skylduð til að setja reglur um fjárhagsaðstoð og gera ráðuneyti félagsmála grein fyr- ir þeim. Þau eru samkvæmt lögun- um alveg sjálfráð um hvemig regl- urnar eru og grunnupphæðir fjár- hagsaðstoðar eru ekki lögbundnar hérlendis eins og þekkist frá ná- grannalöndum okkar. Ákvæðin um sveitfesti, sem um aldir höfðu kost- að svo mikið af bleki og támm, em afnumin með lögunum frá 1991, framfærsluskylda uppkominna barna gagnvart foreldrum sínum öldruðum sömuleiðis og nú getur borgarinn áfrýjað ákvörðunum um fjárhagsaðstoð til ráðuneytisins og fengið leiðréttingu, a.m.k. ef sveit- 20

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.