Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Síða 28

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Síða 28
346 Orkumál Þórhallur S. Bjarnason tœknifrœðingur: Orkuvinnsla úr glatvarma - orkuspamaður - umhverfisvemd 1. Inngangur Undanfarin ár hefur verið gert átak til að nýta innlenda orku til varma- og raforkuvinnslu með góðum árangri. Einnig er í gangi sérstakt átak til jarðhitaleitar á svokölluðum „köldum“ svæðum sem styrkt er af opinberum aðilum. Minni áhersla hefur verið lögð á orkusparnað og nýtingu af- gangsorku. Til dæmis fellur til mikill varmi hjá verksmiðjum, iðnfyrirtækjum og orkuveitum sem oft og tíðum má nýta mun betur en nú er gert. Augu manna eru þó að opnast fyrir þeim sóknar- færum sem felast í aukinni nýtingu á tilfallandi afgangsorku og orkusparnaði. Verkfræðistofan Utrás hefur um nokkurt skeið unnið með Orkusjóði að úttekt á möguleikum til aukinnar orkunýtingar hjá sveitarfélögum, verk- smiðjum og stærri iðnfyrirtækjum. Sérstaklega hafa verið skoðaðir möguleikar á aukinni nýtingu varma frá lághitasvæðum, glatvarma frá verk- smiðjum og iðnfyrirtækjum og samnýtingu á varma til upphitunar og raforkuframleiðslu. Aukin samkeppni á orkumarkaði ásamt nýrri og betri tækni hefur opnað spennandi sóknarfæri á þessu sviði. Hér verður ijallað nánar um möguleika á nýtingu glatvarma frá verksmiðjum og stærri iðnfyrir- Þórhallur S. Bjarnason er vél- tæknifrœðingur hjá verkfrœði- stofunni Útrás á Akureyri. Hann hefur BSc.-próf í orku- tœknifræði frá Tœkniskólanum i Óðinsvéum (Odense Teknikum) i Danmörku auk sveinsprófs í vélvirkjun og vél- stjómarréttinda. Þórhallur starfaði í mörg ár sem sviðs- stjóri tœknideiidar ogyfirtœknifræðingur Slippstöðv- arinnar á Akureyri. Frá árinu 1993 hefur Þórhallur starfað sem tœkniráðgjaji hjá verkfræðistofunni Útrás. tækjum til upphitunar, nýtingu á glatvarma og jarð- hita til raforkuframleiðslu og samnýtingu á varma til raforkuframleiðslu og upphitunar. Einnig er vert að benda á að í Vestmannaeyjum er glatvarmi frá fiskimjölsverksmiðju þegar not- aður til upphitunar fyrir ijarvarmaveituna þar. 2. Nýting glatvarma til upphitunar Víða má finna sóknarfæri til aukinnar nýtingar á glatvarma. Þar má nefna varma frá framleiðslu- ferlum iðnfyrirtækja og verksmiðja, kælivatn frá vélum og tækjum, brennsluvarma frá sorp- brennslum o.fl. Auðvelt er að nálgast útblásturs- og þéttivarma frá fiskimjölsverksmiðjum, en margar þeirra eru á svonefndum „köldum“ svæðum þar sent lítill eða enginn jarðhiti hefur fundist. Einnig er umhugsunarvert hvort nýta megi varma frá sorpbrennslum til upphitunar en mörg sveitarfélög standa núna frammi fyrir viðamiklum úrbótum í sorpförgunarmálum. Hér á effir eru dregnar saman niðurstöður úr úttektarskýrslum frá Seyðisfirði, Krossanesverk- smiðjunni á Akureyri, álverksmiðju Norðuráls á Grundartanga og Nýju kaffibrennslunni á Akur- eyri. Seyðisfjarðarkaupstaður Uttekt sem gerð var fyrir Seyðisfjarðarkaupstað bendir til að frá fiskimjölsverksmiðjunni megi virkja ónýttan glatvarma fýrir fjarvarmaveituna og framleiða varmaafl sem nemur um 3,5 MW eða um 14.000 MWh árlega. Frá sorpbrennslu væri hægt að virkja varmaafl sem nemur um 200 kW eða um 1.200 MWh árlega. Heildarvarmaaflþörf Seyðisfjarðarkaupstaðar er um 3,2 MW og árleg varmaorkuþörf um 13.500 MWh. Þannig gæti virkjanlegur glatvarmi frá fiski- mjölsverksmiðjunni einni annað allri upphitunar- þörf bæjarins þegar verksmiðjan er í gangi. Verksmiðjan er í gangi meira en hálft árið og fellur vinnslutíminn einnig vel að álagstíma fjar-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.